1Helgigönguljóð. Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi.2Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá.3Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.4Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.5Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.6Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.

126.1 Sneri við hag Slm 14.7; 53.7; 85.2
126.2 Fylltist hlátri Job 8.21
126.5 Tár, gleðisöngur Slm 30.12; Jes 25.8-9; 61.3; 65.19; Jer 31.9,13; Bar 4.23; Jóh 16.20