1Þegar Ísrael fór út af Egyptalandi, Jakobs ætt frá þjóðinni, er mælti á erlenda tungu,2varð Júda helgidómur hans, Ísrael ríki hans.3Hafið sá það og flýði, Jórdan hörfaði undan.4Fjöllin hoppuðu sem hrútar, hæðirnar sem lömb.5Hvað er þér, haf, er þú flýr, Jórdan, er þú hörfar undan,6þér fjöll, er þér hoppið sem hrútar, þér hæðir sem lömb?7Titra þú, jörð, fyrir augliti Drottins, fyrir augliti Jakobs Guðs,8hans sem gjörir klettinn að vatnstjörn, tinnusteininn að vatnslind.

114.1 Út af Egyptalandi 2Mós 12.41
114.2 Júda, helgidómur Guðs Slm 78.68-69; 2Mós 15.17; 25.8, 3Mós 20.26; 5Mós 7.6; Jer 2.3; 1Kor 3.16; 6.19-20; sbr 1Pét 2.4-5
114.3 Hafið flýði Slm 77.17; 104.7, 2Mós 14.21+
114.4 Fjöllin stukku Slm 29.6; sbr 2Mós 19.18
114.5 Jórdan hörfar Slm 66.6; 74.15; Jós 3.15-16
114.7 Fyrir augliti Guðs Slm 96.9
114.8 Gjörir klettinn að vatnsflaumi Slm 78.15-16; 105.41; 107.35+ ; 2Mós 17.5-6; 5Mós 8.15; Neh 9.15