1Sál lét sér vel líka líflát hans. Á þeim degi hófst mikil ofsókn gegn söfnuðinum í Jerúsalem. Allir dreifðust út um byggðir Júdeu og Samaríu nema postularnir.2Guðræknir menn greftruðu Stefán og höfðu sorgarathöfn mikla.3En Sál gjörði sér allt far um að uppræta söfnuðinn. Hann óð inn í hvert hús, dró þaðan bæði karla og konur og lét setja í varðhald.4Þeir sem dreifst höfðu, fóru víðs vegar og fluttu fagnaðarerindið.5Filippus fór norður til höfuðborgar Samaríu og prédikaði Krist þar.6Menn hlýddu með athygli á orð Filippusar, þegar þeir heyrðu hann tala og sáu táknin, sem hann gjörði.7Margir höfðu óhreina anda, og fóru þeir út af þeim með ópi miklu. Og margir lama menn og haltir voru læknaðir.8Mikill fögnuður varð í þeirri borg.9Maður nokkur, Símon að nafni, var fyrir í borginni. Hann lagði stund á töfra og vakti hrifningu fólksins í Samaríu. Hann þóttist vera næsta mikill.10Allir flykktust til hans, háir og lágir, og sögðu: Þessi maður er kraftur Guðs, sá hinn mikli.11En því flykktust menn um hann, að hann hafði lengi heillað þá með töfrum.12Nú trúðu menn Filippusi, þegar hann flutti fagnaðarerindið um Guðs ríki og nafn Jesú Krists, og létu skírast, bæði karlar og konur.13Meira að segja Símon tók trú. Hann var skírður og gjörðist mjög fylgisamur Filippusi. Og er hann sá tákn og mikil kraftaverk gjörast, var hann frá sér numinn.14Þegar postularnir í Jerúsalem heyrðu, að Samaría hefði tekið við orði Guðs, sendu þeir til þeirra þá Pétur og Jóhannes.15Þeir fóru norður þangað og báðu fyrir þeim, að þeir mættu öðlast heilagan anda,16því að enn var hann ekki kominn yfir neinn þeirra. Þeir voru aðeins skírðir til nafns Drottins Jesú.17Nú lögðu þeir hendur yfir þá, og fengu þeir heilagan anda.18En er Símon sá, að heilagur andi veittist fyrir handayfirlagning postulanna, bauð hann þeim fé og sagði:19Gefið einnig mér þetta vald, að hver sá, er ég legg hendur yfir, fái heilagan anda.20En Pétur svaraði: Þrífist aldrei silfur þitt né sjálfur þú, fyrst þú hugðist eignast gjöf Guðs fyrir fé.21Eigi átt þú skerf né hlut í þessu, því að hjarta þitt er ekki einlægt gagnvart Guði.22Snú því huga þínum frá þessari illsku þinni og bið Drottin, að þér mætti fyrirgefast hugsun hjarta þíns,23því ég sé, að þú ert fullur gallbeiskju og í fjötrum ranglætis.24Símon sagði: Biðjið þér fyrir mér til Drottins, að ekkert komi það yfir mig, sem þér hafið mælt.25Er þeir höfðu nú vitnað og talað orð Drottins, sneru þeir aftur áleiðis til Jerúsalem og boðuðu fagnaðarerindið í mörgum þorpum Samverja.26En engill Drottins mælti til Filippusar: Statt upp og gakk suður á veginn, sem liggur ofan frá Jerúsalem til Gasa. Þar er óbyggð.27Hann hlýddi og fór. Þá bar að mann frá Eþíópíu. Hann var hirðmaður og höfðingi hjá Kandake, drottningu Eþíópa, og settur yfir alla fjárhirslu hennar. Hann hafði farið til Jerúsalem til að biðjast fyrir28og var á heimleið, sat í vagni sínum og las Jesaja spámann.29Andinn sagði þá við Filippus: Gakk að þessum vagni og vertu sem næst honum.30Filippus skundaði þangað og heyrði manninn vera að lesa Jesaja spámann. Hann spurði: Hvort skilur þú það, sem þú ert að lesa?31Hinn svaraði: Hvernig ætti ég að geta það, ef enginn leiðbeinir mér? Og hann bað Filippus stíga upp í og setjast hjá sér.32En orð þeirrar ritningar, sem hann var að lesa, voru þessi: Eins og sauður til slátrunar leiddur, og sem lamb þegir hjá þeim, er klippir það, svo lauk hann ekki upp munni sínum.33Í niðurlægingunni var hann sviptur rétti. Hver getur sagt frá ætt hans? Því að líf hans var hrifið burt af jörðinni.34Hirðmaðurinn mælti þá við Filippus: Seg þú mér: Um hvern segir spámaðurinn þetta, sjálfan sig eða einhvern annan?35Filippus tók þá til orða, hóf máls á ritningu þessari og boðaði honum fagnaðarerindið um Jesú.36Þegar þeir fóru áfram veginn, komu þeir að vatni nokkru. Þá mælti hirðmaðurinn: Hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast?[38Hann lét stöðva vagninn, og stigu báðir niður í vatnið, Filippus og hirðmaðurinn, og Filippus skírði hann.39En er þeir stigu upp úr vatninu, hreif andi Drottins Filippus burt. Hirðmaðurinn sá hann ekki framar og fór fagnandi leiðar sinnar.40En Filippus kom fram í Asdód, fór um og flutti fagnaðarerindið í hverri borg, uns hann kom til Sesareu.

8.1 Lét sér vel líka Post 7.58; 22.20 – dreifðust Post 8.4; 11.19 – söfnuðurinn Post 11.22; 13.1
8.2 Greftruðu hann Matt 14.12; Mrk 6.29
8.3 Ofsóttu söfnuðinn Post 9.1,13; 22.4; 26.9-11
8.4 Fluttu fagnaðarerindið Post 8.1; 11.19
8.5 Filippus Post 6.5; 8.12,26-40; 21.8 – Kristur boðaður í Samaríu Jóh 4.25 – prédika Post 2.36+ – í Samaríu Post 1.8
8.7 Óhreinir andar reknir út Matt 10.1; Mrk 6.7; 16.17
8.8 Fögnuður Lúk 1.14; Post 5.41; 8.39; 11.23; 13.48,52; 15.3,31; 16.34
8.12 Fagnaðarerindið um Guðs ríki Lúk 4.43+ – nafn Post 3.16+
8.14 Pétur og Jóhannes Post 3.1+
8.16 Til nafns Drottins Jesú Post 2.38+
8.17 Leggja hendur yfir Matt 9.18+ ; Mrk 5.23+ ; Post 6.6+ – fengu heilagan anda Post 19.6
8.21 Ekki einlægt hjarta Slm 78.37
8.23 Gallbeiskja 5Mós 28.18; Hlj 3.15 – fjötraður ranghugsun Jes 58.6
8.24 Biðjið fyrir mér 2Mós 8.4,24; 9.28
8.26 Engill Drottins Matt 1.20+ ; Post 5.19; 12.10; sbr Post 8.29,39
8.31 Leiðbeina Jóh 16.13
8.32-33 Sbr Jes 53.7-8
8.35 Tók til orða Dan 10.16; Job 3.1; Matt 5.2; Post 10.34
8.36 Hvað hamlar mér? Post 10.47 – skírn Matt 28.19+
8.39 Andinn hreif hann burt 1Kon 18.12 – fagnandi Post 8.8+
8.40 Filippus í Sesareu Post 21.8