1En Agrippa sagði við Pál: Nú er þér leyft að tala þínu máli. Páll rétti þá út höndina og bar fram vörn sína:2Lánsamur þykist ég, Agrippa konungur, að eiga í dag í þinni áheyrn að verja mig gegn öllu því, sem Gyðingar saka mig um,3því heldur sem þú þekkir alla siðu Gyðinga og ágreiningsmál. Því bið ég þig að hlýða þolinmóður á mig.4Allir Gyðingar þekkja líf mitt frá upphafi, hvernig ég hef lifað með þjóð minni, fyrst í æsku og síðan í Jerúsalem.5Það vita þeir um mig, vilji þeir unna mér sannmælis, að ég var farísei frá fyrstu tíð, fylgdi strangasta flokki trúarbragða vorra.6Og hér stend ég nú lögsóttur vegna vonarinnar um fyrirheitið, sem Guð gaf feðrum vorum7og vorar tólf kynkvíslir vona að öðlast með því að dýrka Guð án afláts nótt sem dag. Fyrir þessa von er ég nú ákærður, konungur, og það af Gyðingum.8Hvers vegna teljið þér það ótrúlegt, að Guð veki upp dauða?9Sjálfur taldi ég mér skylt að vinna af öllu megni gegn nafni Jesú frá Nasaret.10Það gjörði ég og í Jerúsalem, hneppti marga hinna heilögu í fangelsi með valdi frá æðstu prestunum og galt því jákvæði, að þeir væru teknir af lífi.11Og í öllum samkundunum reyndi ég þrásinnis með pyndingum að neyða þá til að afneita trú sinni. Svo freklega æddi ég gegn þeim, að ég fór til borga erlendis að ofsækja þá.12Þá er ég var á leið til Damaskus slíkra erinda með vald og umboð frá æðstu prestunum,13sá ég, konungur, á veginum um miðjan dag ljós af himni sólu bjartara leiftra um mig og þá, sem mér voru samferða.14Vér féllum allir til jarðar, og ég heyrði rödd, er sagði við mig á hebresku: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Erfitt verður þér að spyrna móti broddunum.15En ég sagði: Hver ert þú, herra? Og Drottinn sagði: Ég er Jesús, sem þú ofsækir.16Rís nú upp og statt á fætur þína. Til þess birtist ég þér, að ég vel þig til þess að vera þjónn minn og vitni þess, að þú hefur séð mig bæði nú og síðar, er ég mun birtast þér.17Ég mun frelsa þig frá lýðnum og frá heiðingjunum, og til þeirra sendi ég þig18að opna augu þeirra og snúa þeim frá myrkri til ljóss, frá Satans valdi til Guðs, svo að þeir öðlist fyrir trú á mig fyrirgefningu syndanna og arf með þeim, sem helgaðir eru.19Fyrir því gjörðist ég, Agrippa konungur, eigi óhlýðinn hinni himnesku vitrun,20heldur boðaði ég fyrst þeim í Damaskus og í Jerúsalem, síðan um alla Júdeubyggð og heiðingjunum að iðrast og snúa sér til Guðs og vinna verk samboðin iðruninni.21Sakir þessa gripu Gyðingar mig í helgidóminum og reyndu að ráða mér bana.22En Guð hefur hjálpað mér, og því stend ég allt til þessa dags og vitna bæði fyrir háum og lágum. Mæli ég ekki annað en það, sem bæði spámennirnir og Móse hafa sagt að verða mundi,23að Kristur ætti að líða og fyrstur rísa upp frá dauðum og boða bæði lýðnum og heiðingjunum ljósið.24Þegar Páll var hér kominn í vörn sinni, segir Festus hárri raustu: Óður ert þú, Páll. Þitt mikla bókvit gjörir þig óðan.25Páll svaraði: Ekki er ég óður, göfugi Festus, heldur mæli ég sannleiks orð af fullu viti.26Konungur kann skil á þessu, og við hann tala ég djarflega. Eigi ætla ég, að honum hafi dulist neitt af þessu, enda hefur það ekki gjörst í neinum afkima.27Trúir þú, Agrippa konungur, spámönnunum? Ég veit, að þú gjörir það.28Þá sagði Agrippa við Pál: Þú þykist ekki vera lengi að gjöra mig kristinn.29En Páll sagði: Þess bið ég Guð, hvort sem lengur dregst eða skemur, að ekki einungis þú, heldur og allir, sem til mín heyra í dag, verði slíkir sem ég er, að frátöldum fjötrum mínum.30Þá stóð konungur upp og landstjórinn, svo og Berníke og þeir, er þar sátu með þeim.31Þegar þau voru farin, sögðu þau sín á milli: Þessi maður fremur ekkert, sem varðar dauða eða fangelsi.32En Agrippa sagði við Festus: Þennan mann hefði mátt láta lausan, ef hann hefði ekki skotið máli sínu til keisarans.

26.1 Rétti út höndina Post 13.16; 21.40
26.4 Æska Páls Post 22.3
26.5 Farísei Post 23.6; Fíl 3.5-6
26.6 Af því að ég trúi … Post 23.6; 24.15,21; 28.20 – fyrirheitið, sem feðrunum var gefið Post 3.25-26
26.9-18 Köllun Páls Post 9.1-18; 22.3-16
26.9-11 Ofsótti hina kristnu Post 22.19+
26.9 Nafnið Post 3.16+
26.10 Hinir heilögu Post 9.13+ – teknir af lífi Post 8.1
26.14 Á hebresku Post 21.40
26.16 Statt á fætur Esk 2.1,3 – sýn Post 18.9+
26.17 Vernda 1Kro 16.35 – sendi þig Jer 1.5,7-8,10; Post 13.47; 22.21; 28.25-28
26.18 Opna augu þeirra Jes 35.5; 42.6-7; 61.1 – snúa … til ljóss Jes 42.16 – vald Satans Ef 2.2; Kól 1.13 – arfur með heilögum 5Mós 33.3-5; SSal 5.5; Post 20.32 – trú á Jesú Krist Post 2.44; 13.39
26.20 Í Damaskus Post 9.19-20 – um alla Júdeubyggð Gal 1.22 – sinnaskipti Post 3.19+ – sýna í verki Matt 3.8; Lúk 3.8
26.21 Páll handtekinn Post 21.30-31
26.22 Spámennirnir og Móse … Lúk 24.44; Post 3.18+
26.23 Þjáning, upprisa, boðun Lúk 24.46-47; Post 3.13-15; 4.2 – rísa upp fyrstur 1Kor 15.20; Kól 1.18 – ljós fyrir heiðingjana Jes 42.6; 49.6; Post 13.47
26.26 Ekki með leynd Jóh 18.20
26.29 Verða kristin Post 11.18; sbr Post 3.19+
26.31 Ekkert dauða vert Post 23.29
26.32 Málinu skotið til keisara Post 25.11