1Þrem dögum eftir að Festus hafði tekið við umdæmi sínu, fór hann frá Sesareu upp til Jerúsalem.2Æðstu prestarnir og fyrirmenn Gyðinga báru þá sakir á Pál fyrir honum og báðu hann3að veita sér að málum gegn honum og gera sér þann greiða að senda hann til Jerúsalem. En þeir hugðust búa honum fyrirsát og vega hann á leiðinni.4Festus svaraði, að Páll væri í varðhaldi í Sesareu, en sjálfur mundi hann bráðlega fara þangað.5Látið því, sagði hann, ráðamenn yðar verða mér samferða ofan eftir og lögsækja manninn, ef hann er um eitthvað sekur.6Festus dvaldist þar ekki lengur en í átta daga eða tíu. Síðan fór hann ofan til Sesareu. Daginn eftir settist hann á dómstólinn og bauð að leiða Pál fram.7Þegar hann kom, umkringdu hann Gyðingar þeir, sem komnir voru ofan frá Jerúsalem, og báru á hann margar þungar sakir, sem þeir gátu ekki sannað.8En Páll varði sig og sagði: Ekkert hef ég brotið, hvorki gegn lögmáli Gyðinga, helgidóminum né keisaranum.9Festus vildi koma sér vel við Gyðinga og mælti við Pál: Vilt þú fara upp til Jerúsalem og hlíta þar dómi mínum í máli þessu?10Páll svaraði: Ég stend nú fyrir dómstóli keisarans, og hér á ég að dæmast. Gyðingum hef ég ekkert rangt gjört, það veistu fullvel.11Sé ég sekur og hafi framið eitthvað, sem dauða sé vert, mæli ég mig ekki undan því að deyja. En ef ekkert er hæft í því, sem þessir menn kæra mig um, á enginn með að selja mig þeim á vald. Ég skýt máli mínu til keisarans.12Festus ræddi þá við ráðunauta sína og mælti síðan: Til keisarans hefur þú skotið máli þínu, til keisarans skaltu fara.13Eftir nokkra daga komu Agrippa konungur og Berníke til Sesareu að bjóða Festus velkominn.14Þegar þau höfðu dvalist þar nokkra daga, lagði Festus mál Páls fyrir konung og sagði: Hér er fangi nokkur, sem Felix skildi eftir.15Þegar ég kom til Jerúsalem, báru æðstu prestar og öldungar Gyðinga á hann sakir og heimtuðu hann dæmdan.16Ég svaraði þeim, að það væri ekki venja Rómverja að selja fram nokkurn sakborning fyrr en hann hefði verið leiddur fyrir ákærendur sína og átt þess kost að bera fram vörn gegn sakargiftinni.17Þeir urðu nú samferða hingað, og lét ég engan drátt á verða, heldur settist daginn eftir á dómstólinn og bauð að leiða fram manninn.18Þegar ákærendurnir komu fram, báru þeir ekki á hann sakir fyrir nein þau illræði, sem ég hafði búist við,19heldur áttu þeir í einhverjum deilum við hann um átrúnað sjálfra þeirra og um Jesú nokkurn, látinn mann, sem Páll segir lifa.20Fannst mér vandi fyrir mig að fást við þetta og spurði Pál, hvort hann vildi fara til Jerúsalem og láta dæma málið þar.21En hann skaut máli sínu til keisarans og krafðist þess að vera hafður í haldi, þar til hans hátign hefði skorið úr. Því bauð ég að hafa hann í haldi, þangað til ég gæti sent hann til keisarans.22Agrippa sagði þá við Festus: Ég vildi sjálfur fá að heyra manninn. Hinn svaraði: Á morgun skalt þú hlusta á hann.23Daginn eftir komu Agrippa og Berníke með mikilli viðhöfn og gengu ásamt hersveitarforingjum og æðstu mönnum borgarinnar inn í málstofuna. Var þá Páll leiddur inn að boði Festusar.24Festus mælti: Agrippa konungur og þér menn allir, sem hjá oss eruð staddir. Þarna sjáið þér mann, sem veldur því, að allir Gyðingar, bæði í Jerúsalem og hér, hafa leitað til mín. Þeir heimta hástöfum, að hann sé tekinn af lífi.25Mér varð ljóst, að hann hefur ekkert það framið, er dauða sé vert, en sjálfur skaut hann máli sínu til hans hátignar, og þá ákvað ég að senda hann þangað.26Nú hef ég ekkert áreiðanlegt að skrifa herra vorum um hann. Þess vegna hef ég leitt hann fram fyrir yður og einkum fyrir þig, Agrippa konungur, svo að ég hafi eitthvað að skrifa að lokinni yfirheyrslu.27Því það líst mér fráleitt að senda fanga og tjá eigi um leið sakargiftir gegn honum.

25.2 Páll ákærður Post 23.30; 24.1; 25.15
25.3 Páli búin fyrirsát Post 23.12-22
25.5 Ráðagerð mistekst Post 23.30
25.7 Margar og þungar sakir Post 24.5-6 – gátu ekki sannað Post 24.13; sbr Mrk 14.55-59; Lúk 23.14-15
25.8 Gegn lögmáli Gyðinga Post 6.11,13; 18.13,15; 21.21,28; 23.29 – gegn helgidóminum Post 6.13+ – gegn rómverskum lögum Post 16.21; 17.7; 18.12; 24.5
25.9 Koma sér vel Post 24.27
25.14 Sbr Post 24.27
25.15 Páll borinn sökum Post 25.1-2
25.17 Festus yfirheyrir Pál Post 25.6
25.18-19 Um átrúnað sjálfra þeirra Post 18.14-15; 23.29; sbr Post 26.31-32
25.20 Í Jerúsalem Post 25.9
25.21 Til keisara Post 25.11-12
25.22 Ég vildi sjálfur … sbr Lúk 23.8
25.23 Fyrir æðstu mönnum Matt 10.18; Mrk 13.9; Lúk 21.12
25.24 Sbr Post 25.11-12 – heimta líflát Post 22.22
25.25 Páll saklaus Post 25.1-12,14-21; 23.29; sbr Lúk 23.4,14,22; Post 13.28