1Og ég heyrði raust mikla frá musterinu segja við englana sjö: Farið og hellið úr þeim sjö skálum Guðs reiði yfir jörðina.2Og hinn fyrsti fór og hellti úr sinni skál á jörðina. Og vond og illkynjuð kaun komu á mennina, sem höfðu merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess.3Og hinn annar hellti úr sinni skál í hafið, og það varð að blóði eins og blóð úr dauðum manni, og sérhver lifandi sál dó, sú er í hafinu var.4Og hinn þriðji hellti úr sinni skál í fljótin og uppsprettur vatnanna og það varð að blóði.5Og ég heyrði engil vatnanna segja: Réttlátur ert þú, að þú hefur dæmt þannig, þú sem ert og þú sem varst, þú hinn heilagi.6Þeir hafa úthellt blóði heilagra og spámanna, og því hefur þú gefið þeim blóð að drekka. Maklegir eru þeir þess.7Og ég heyrði altarið segja: Já, Drottinn Guð, þú alvaldi, sannir og réttlátir eru dómar þínir.8Og hinn fjórði hellti úr sinni skál yfir sólina. Og sólinni var gefið vald til að brenna mennina í eldi.9Og mennirnir stiknuðu í ofurhita og lastmæltu nafni Guðs, sem valdið hefur yfir plágum þessum. Og ekki gjörðu þeir iðrun, svo að þeir gæfu honum dýrðina.10Og hinn fimmti hellti úr sinni skál yfir hásæti dýrsins. Og ríki þess myrkvaðist, og menn bitu í tungur sínar af kvöl.11Og menn lastmæltu Guði himinsins fyrir kvalirnar og fyrir kaun sín og eigi gjörðu þeir iðrun og létu af verkum sínum.12Og hinn sjötti hellti úr sinni skál yfir fljótið mikla, Efrat. Og vatnið í því þornaði upp, svo að vegur yrði búinn fyrir konungana, þá er koma úr austri.13Og ég sá koma út af munni drekans og munni dýrsins og munni falsspámannsins þrjá óhreina anda, sem froskar væru,14því að þeir eru djöfla andar, sem gjöra tákn. Þeir ganga út til konunga allrar heimsbyggðarinnar til að safna þeim saman til stríðsins á hinum mikla degi Guðs hins alvalda.15Sjá, ég kem eins og þjófur. Sæll er sá sem vakir og varðveitir klæði sín, til þess að hann gangi ekki nakinn um og menn sjái blygðun hans.16Og þeir söfnuðu þeim saman á þann stað, sem á hebresku kallast Harmagedón.17Og hinn sjöundi hellti úr sinni skál yfir loftið og raust mikil kom út úr musterinu, frá hásætinu og sagði: Það er fram komið.18Og eldingar komu og brestir og þrumur og mikill landskjálfti, svo að slíkur hefur eigi komið frá því menn urðu til á jörðunni. Svo mikill var sá jarðskjálfti.19Og borgin mikla fór í þrjá hluta, og borgir þjóðanna hrundu. Og Guð gleymdi ekki hinni miklu Babýlon og gaf henni vínbikar heiftarreiði sinnar.20Og allar eyjar hurfu og fjöllin voru ekki lengur til.21Og stór högl, vættarþung, féllu niður af himni yfir mennina. Og mennirnir lastmæltu Guði fyrir haglpláguna, því að sú plága var mikil.

16.1 Raust frá musterinu Jes 66.6; Opb 16.17
16.2 Illkynjuð kaun 2Mós 9.10; 5Mós 28.35 – merki dýrsins Opb13.16+ – líkneski dýrsins Opb 13.8+
16.3-4 Vatn breytist í blóð Opb 8.8+
16.5 Réttlátur ert þú 5Mós 32.4; Slm 119.137; 145.17; Opb 15.3 – þú sem ert … Opb 1.4+
16.6 Blóð heilagra og spámanna Matt 23.35-37; Opb 17.6; 18.24; 19.2 – gefið þeim blóð að drekka Jes 49.26
16.7 Pílsarvottarnir Opb 6.9+ – sannir dómar Slm 19.10; 119.137; Opb 19.2
16.10 Myrkvast 2Mós 10.21-22; Jes 8.21-22
16.12 Fljótið þornaði Jes 11.15; 44.27; Jer 50.38; 51.36
16.15 Eins og þjófur Opb 3.3+
16.18 Eldingar, þrumur … Opb 4.5+
16.19 Bikar reiðinnar Opb 14.10+
16.20 Tákn endalokanna Opb 6.12-14+
16.21 Högl 2Mós 9.24; Opb 11.19