1Opinberun Jesú Krists, sem Guð gaf honum til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms. Hann sendi engil sinn og lét hann kynna það Jóhannesi, þjóni sínum,2sem bar vitni um orð Guðs og vitnisburð Jesú Krists, um allt það er hann sá.3Sæll er sá, er les þessi spádómsorð, og þeir, sem heyra þau og varðveita það, sem í þeim er ritað, því að tíminn er í nánd.4Frá Jóhannesi til safnaðanna sjö, sem í Asíu eru. Náð sé með yður og friður frá honum, sem er og var og kemur, og frá öndunum sjö, sem eru frammi fyrir hásæti hans,5og frá Jesú Kristi, sem er votturinn trúi, frumburður dauðra, höfðinginn yfir konungum jarðarinnar. Hann elskar oss og leysti oss frá syndum vorum með blóði sínu.6Og hann gjörði oss að konungsríki og prestum, Guði sínum og föður til handa. Hans er dýrðin og mátturinn um aldir alda. Amen.7Sjá, hann kemur í skýjunum og hvert auga mun sjá hann, jafnvel þeir, sem stungu hann, og allar kynkvíslir jarðarinnar munu kveina yfir honum. Vissulega, amen.8Ég er Alfa og Ómega, segir Drottinn Guð, hann sem er og var og kemur, hinn alvaldi.9Ég, Jóhannes, bróðir yðar, sem í Jesú á hlutdeild með yður í þrengingunni, ríkinu og þolgæðinu, var á eynni Patmos fyrir sakir Guðs orðs og vitnisburðar Jesú.10Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raust mikla, sem lúður gylli,11er sagði: Rita þú í bók það sem þú sérð og send það söfnuðunum sjö, í Efesus, Smýrnu, Pergamos, Þýatíru, Sardes, Fíladelfíu og Laódíkeu.12Ég sneri mér við til að sjá, hvers raust það væri, sem við mig talaði. Og er ég sneri mér við, sá ég sjö gullljósastikur,13og milli ljósastikanna einhvern, líkan mannssyni, klæddan síðkyrtli og gullbelti var spennt um bringu hans.14Höfuð hans og hár var hvítt, eins og hvít ull, eins og mjöll, og augu hans eins og eldslogi.15Og fætur hans voru líkir málmi glóandi í deiglu og raust hans sem niður margra vatna.16Hann hafði í hægri hendi sér sjö stjörnur og af munni hans gekk út tvíeggjað sverð biturt, og ásjóna hans var sem sólin skínandi í mætti sínum.17Þegar ég sá hann, féll ég fyrir fætur honum sem dauður væri. Og hann lagði hægri hönd sína yfir mig og sagði: Vertu ekki hræddur, ég er hinn fyrsti og hinn síðasti18og hinn lifandi. Ég dó, en sjá, lifandi er ég um aldir alda, og ég hef lykla dauðans og Heljar.19Rita þú nú það er þú hefur séð, bæði það sem er og það sem verða mun eftir þetta.20Þessi er leyndardómurinn um stjörnurnar sjö, sem þú hefur séð í hægri hendi minni, og um gullstikurnar sjö. Stjörnurnar sjö eru englar þeirra sjö safnaða, og ljósastikurnar sjö eru söfnuðirnir sjö.

1.2 Orð Guðs og vitnisburður Jesú Opb 1.9; 6.9; 12.17; 19.10; 20.4
1.4 Sá sem er og var og kemur Opb 1.8; 4.8; 11.17; 16.5; sbr 2Mós 3.14 – andarnir sjö Jes 11.2; Opb 3.1; 4.5; 5.6
1.5 Frumburður Slm 89.28; Kól 1.18 – votturinn trúi Slm 89.38; Jes 55.4; Opb 2.13; 3.14; 19.11
1.6 Konungar, prestar 2Mós 19.6; Jes 61.6; 1Pét 2.5,9; Opb 5.10; 20.6
1.7 Í skýjum Dan 7.13; sbr 2Mós 19.16; Jes 6.4; Matt 24.30; Mrk 13.26; Lúk 21.27; Post 1.9; Opb 14.14 – þeir sem stungu hann Sak 12.10; sbr Jóh 19.37
1.8 Hinn alvaldi Opb 4.8; 11.17; 15.3; 16.7,14; 19.6,15; 21.22
1.10 Á Drottins degi Post 20.7; 1Kor 11.26; 16.2
1.12 Ljósastikur 2Mós 25.31-40; 27.20-21; Sak 4.1-14
1.13-15 Líkan mannssyni Dan 7.13; Opb 14.14 – gullbelti Dan 10.5 – hvítt hár Dan 7.9 – auga, fætur, raust Dan 10.6
1.16 Sjö stjörnur Opb 1.20; 2.1; 3.1 – beitt sverð Jes 49.2; Heb 4.12; Opb 19.13-15
1.17 Hinn fyrsti og hinn síðasti Jes 44.6; 48.12; Opb 2.8; 22.13; sbr 1.8
1.18 Hinn lifandi Heb 7.25 – lyklar Jes 22.22; Opb 3.7