1Vei þeim, sem hugsa upp rangindi og hafa illt með höndum í hvílurúmum sínum og framkvæma það, þegar ljómar af degi, jafnskjótt og þeir megna.2Langi þá til að eignast akra, þá ræna þeir þeim, eða hús, þá taka þeir þau burt. Þeir beita ofríki gegn húsbóndanum og húsi hans, gegn manninum og óðali hans.3Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég bý yfir óhamingju, sem ég mun senda þessari kynslóð, og þér skuluð ekki fá af yður hrundið né gengið hnarreistir undir, því að það munu verða vondir tímar.4Á þeim degi munu menn háðkvæði um yður kveða og hefja harmatölur á þessa leið: Vér erum gjörsamlega eyðilagðir, landeign þjóðar minnar er úthlutað með mæliþræði, og enginn fær mér hana aftur. Ökrum vorum er skipt milli þeirra, er oss hafa hertekið!5Fyrir því skalt þú engan hafa, er dragi mæliþráð yfir landskika í söfnuði Drottins.6Prédikið ekki, svo prédika þeir. Menn eiga ekki að prédika um slíkt! Skömmunum linnir ekki!7Hvílíkt tal, Jakobs hús! Er Drottinn óþolinmóður, eða eru gjörðir hans slíkar? Eru ekki orð hans gæskurík við þá, sem breyta ráðvandlega?8En þjóð mín hefir nú þegar lengi risið upp á móti mér sem óvinur. Utan af kyrtlinum dragið þér yfirhöfnina af þeim, sem ugglausir fara um veginn, sem fráhverfir eru stríði.9Konur þjóðar minnar rekið þér út úr húsunum, sem hafa verið yndi þeirra, rænið börn þeirra prýði minni að eilífu.10Af stað og burt með yður! Því að hér er ekki samastaður fyrir yður vegna saurgunarinnar, sem veldur tjóni, og það ólæknandi tjóni.11Ef einhver, sem færi með hégóma og lygar, hræsnaði fyrir þér og segði: Ég skal spá þér víni og áfengum drykk, það væri spámaður fyrir þessa þjóð!12Safna, já safna vil ég, Jakob, öllum þínum, færa saman leifar Ísraels eins og sauðfé í rétt, eins og hjörð í haga, og þar skal verða kliður mikill af mannmergðinni.13Forustusauðurinn fer fyrir þeim, þeir ryðjast fram, fara í gegnum hliðið og halda út um það, og konungur þeirra fer fyrir þeim og Drottinn er í broddi fylkingar þeirra.

2.1 Vei Jes 5.8-24; 28.1-4; Am 6.1; Hab 2.6-20; Matt 11.21+ ; Lúk 6.24+
2.2 Græðgi hinna voldugu Jes 5.8; Jer 22.13-14; Am 3.10; 8.4-6
2.3 Ógæfa í vændum Esk 7.5,26 – hörmungatíð Am 5.13
2.5 Landi úthlutað Jes 34.17; Slm 16.5-6
2.6 Þrugla Mík 2.11; Jes 21.2,7; Am 7.16 – bannað að spá Am 2.12+
2.8 Rífið Kyrtilinn af 5Mós 24.10-13
2.11 Áfengur drykkur Jes 5.11,22-23; Am 4.1 – spámenn án köllunar Jer 5.31; 28.15; 29.9,31; sbr Am 7.12
2.12 Ísrael safnað saman Mík 4.6-7; Jes 11.12; Jer 29.13; 31.8,10; Esk 37.21; Hós 2.2 – eins og sauðfé Jes 40.11; Jer 23.3-4; Esk 34.1-31 – leifar Ísrael Jes 4.3
2.13 Út um hliðið Jóh 10.3-4