1Um þessar mundir spyr Heródes fjórðungsstjóri tíðindin af Jesú.2Og hann segir við sveina sína: Þetta er Jóhannes skírari, hann er risinn frá dauðum, þess vegna eru kraftarnir að verki í honum.3En Heródes hafði látið taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar bróður síns,4því Jóhannes hafði sagt við hann: Þú mátt ekki eiga hana.5Heródes vildi deyða hann, en óttaðist lýðinn, þar eð menn töldu hann vera spámann.6En á afmælisdegi Heródesar dansaði dóttir Heródíasar dans frammi fyrir gestunum og hreif Heródes svo,7að hann sór þess eið að veita henni hvað sem hún bæði um.8Að undirlagi móður sinnar segir hún: Gef mér hér á fati höfuð Jóhannesar skírara.9Konungur varð hryggur við, en vegna eiðsins og gesta sinna bauð hann að veita henni þetta.10Hann sendi í fangelsið og lét hálshöggva Jóhannes þar.11Höfuð hans var borið inn á fati og fengið stúlkunni, en hún færði móður sinni.12Lærisveinar hans komu, tóku líkið og greftruðu, fóru síðan og sögðu Jesú.13Þegar Jesús heyrði þetta, fór hann þaðan á báti á óbyggðan stað og vildi vera einn. En fólkið frétti það og fór gangandi á eftir honum úr borgunum.14Þegar Jesús steig á land, sá hann þar mikinn mannfjölda, og hann kenndi í brjósti um þá og læknaði þá af þeim, er sjúkir voru.15Um kvöldið komu lærisveinarnir að máli við hann og sögðu: Hér er engin mannabyggð og dagur liðinn. Lát nú fólkið fara, að þeir geti náð til þorpanna og keypt sér vistir.16Jesús svaraði þeim: Ekki þurfa þeir að fara, gefið þeim sjálfir að eta.17Þeir svara honum: Vér höfum hér ekki nema fimm brauð og tvo fiska.18Hann segir: Færið mér það hingað.19Og hann bauð fólkinu að setjast í grasið. Þá tók hann brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum, en þeir fólkinu.20Og þeir neyttu allir og urðu mettir. Og þeir tóku saman brauðbitana, er af gengu, tólf körfur fullar.21En þeir, sem neytt höfðu, voru um fimm þúsund karlmenn, auk kvenna og barna.22Tafarlaust knúði hann lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan sér yfir um, meðan hann sendi fólkið brott.23Og er hann hafði látið fólkið fara, gekk hann til fjalls að biðjast fyrir í einrúmi. Þegar kvöld var komið, var hann þar einn.24En báturinn var þegar kominn langt frá landi og lá undir áföllum, því að vindur var á móti.25En er langt var liðið nætur kom hann til þeirra, gangandi á vatninu.26Þegar lærisveinarnir sáu hann ganga á vatninu, varð þeim bilt við. Þeir sögðu: Þetta er vofa, og æptu af hræðslu.27En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir.28Pétur svaraði honum: Ef það ert þú, herra, þá bjóð mér að koma til þín á vatninu.29Jesús svaraði: Kom þú! Og Pétur sté úr bátnum og gekk á vatninu til hans.30En sem hann sá rokið, varð hann hræddur og tók að sökkva. Þá kallaði hann: Herra, bjarga þú mér!31Jesús rétti þegar út höndina, tók í hann og sagði: Þú trúlitli, hví efaðist þú?32Þeir stigu í bátinn, og þá lægði vindinn.33En þeir sem í bátnum voru, tilbáðu hann og sögðu: Sannarlega ert þú sonur Guðs.34Þegar þeir höfðu náð yfir um, komu þeir að landi við Genesaret.35Fólkið á þeim stað þekkti hann og sendi boð um allt nágrennið, og menn færðu til hans alla þá, er sjúkir voru.36Þeir báðu hann að mega rétt snerta fald klæða hans, og allir, sem snertu hann, urðu alheilir.

14.1-12 Hlst. Mrk 6.14-29; Lúk 9.7-9
14.1 Heródes fjórðungsstjóri Mrk 6.14-27; 8.15; Lúk 3.1,19; 8.3; 9.7,9; 13.31; 23.6-12,15; Post 4.27; 13.1
14.2 Jóhannes skírari Matt 3.1+
14.5 Óttaðist fólkið Matt 21.26,46; Lúk 20.19; 22.2 – Jóhannes talinn spámaður Matt 11.9; 21.26; Lúk 1.76; 7.26
14.12 Lærisveinar Jóhannesar Matt 9.14+
14.13-21 Hlst. Mrk 6.30-44; Lúk 9.10-17; Jóh 6.1-14
14.14 Kenndi í brjósti um þá Matt 9.36+
14.15 Mannfjöldinn sendur brott Matt 15.32; Mrk 6.36; 8.3; Lúk 9.12
14.17 Brauð og fiskar Matt 15.34; Mrk 8.5; Jóh 6.9
14.19 Þakkaði Guði Matt 15.35-39 og hlst. 26.26
14.20 Mettir 2Mós 16.4,12; Slm 78.29; Jóh 6.12 – bitarnir 2Kon 4.42-44 – tólf körfur Matt 10.1,2,5; 11.1; 19.28; 20.17; 26.20
14.22-33 Hlst. Mrk 6.45-52; Jóh 6.15-21
14.23 Jesús biðst fyrir Matt 26.36 og hlst.; Lúk 6.12; 9.28
14.26 Vofa Lúk 24.37
14.28 Pétur Matt 4.18+
14.31 Trúlitli maður Matt 6.30+
14.32 Vindinn lægði Mrk 4.39
14.33 Sonur Guðs Matt 4.3; 8.29; 16.16; 26.63; 27.54; Mrk 1.1; 14.61; 15.39; Lúk 1.32; 22.70; Jóh 1.49; 11.4,27; 19.7; 20.31; Post 8.37; 9.20; Róm 1.4; 2Kor 1.19; Gal 2.20; Ef 4.13; Heb 4.14; 6.6; 7.3
14.34-36 Hlst. Mrk 6.53-56
14.36 Lækna, bjarga Matt 9.22+