1Um þessar mundir fór Jesús um sáðlönd á hvíldardegi. Lærisveinar hans kenndu hungurs og tóku að tína kornöx og eta.2Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við hann: Lít á, lærisveinar þínir gjöra það, sem ekki er leyft að gjöra á hvíldardegi.3Hann svaraði þeim: Hafið þér eigi lesið, hvað Davíð gjörði, þegar hann hungraði og menn hans?4Hann fór inn í Guðs hús, og þeir átu skoðunarbrauðin, sem hvorki hann né menn hans og engir nema prestarnir máttu eta.5Eða hafið þér ekki lesið í lögmálinu, að prestar vanhelga hvíldardaginn í musterinu á hvíldardögum, og eru þó án saka?6En ég segi yður: Hér er meira en musterið.7Ef þér hefðuð skilið, hvað felst í orðunum: Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir, munduð þér ekki hafa sakfellt saklausa menn.8Því að Mannssonurinn er herra hvíldardagsins.9Hann fór þaðan og kom í samkundu þeirra.10Þar var maður með visna hönd. Og þeir spurðu Jesú: Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi? Þeir hugðust kæra hann.11Hann svarar þeim: Nú á einhver yðar eina sauðkind, og hún fellur í gryfju á hvíldardegi. Mundi hann ekki taka hana og draga upp úr?12Hve miklu er þó maðurinn sauðkindinni fremri! Það er því leyfilegt að gjöra góðverk á hvíldardegi.13Síðan segir hann við manninn: Réttu fram hönd þína. Hann rétti fram höndina, og hún varð heil sem hin.14Þá gengu farísearnir út og tóku saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans.15Þegar Jesús varð þess vís, fór hann þaðan. Margir fylgdu honum, og alla læknaði hann.16En hann lagði ríkt á við þá, að þeir gjörðu hann eigi kunnan.17Þannig rættist það, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns:18Sjá þjón minn, sem ég hef útvalið, minn elskaða, sem sál mín hefur þóknun á. Ég mun láta anda minn koma yfir hann, og hann mun boða þjóðunum rétt.19Eigi mun hann þrátta né hrópa, og eigi mun raust hans heyrast á strætum.20Brákaðan reyr brýtur hann ekki, og rjúkandi hörkveik mun hann ekki slökkva, uns hann hefur leitt réttinn til sigurs.21Á nafn hans munu þjóðirnar vona.22Þá var færður til hans maður haldinn illum anda, blindur og mállaus. Hann læknaði hann, svo að hinn dumbi gat talað og séð.23Allt fólkið varð furðu lostið og sagði: Hann er þó ekki sonur Davíðs?24Þegar farísear heyrðu það, sögðu þeir: Þessi rekur ekki út illa anda nema með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda.25En Jesús vissi hugsanir þeirra og sagði við þá: Hvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt, leggst í auðn, og hver sú borg eða heimili, sem er sjálfu sér sundurþykkt, fær ekki staðist.26Ef Satan rekur Satan út, er hann sjálfum sér sundurþykkur. Hvernig fær ríki hans þá staðist?27Og ef ég rek illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar.28En ef ég rek illu andana út með Guðs anda, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.29Eða hvernig fær nokkur brotist inn í hús hins sterka og rænt föngum hans, nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.30Hver sem er ekki með mér, er á móti mér, og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir.31Þess vegna segi ég yður: Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin, en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið.32Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum, verður það fyrirgefið, en þeim sem mælir gegn heilögum anda, verður ekki fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né í hinum komanda.33Annaðhvort er tréð gott og ávöxturinn góður eða tréð vont og ávöxturinn vondur. Því af ávextinum þekkist tréð.34Þér nöðru kyn, hvernig getið þér, sem eruð vondir, talað gott? Af gnægð hjartans mælir munnurinn.35Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði, en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði.36En ég segi yður: Hvert ónytjuorð, sem menn mæla, munu þeir verða að svara fyrir á dómsdegi.37Því af orðum þínum muntu sýknaður, og af orðum þínum muntu sakfelldur verða.38Þá sögðu nokkrir fræðimenn og farísear við hann: Meistari, vér viljum sjá þig gjöra tákn.39Hann svaraði þeim: Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar spámanns.40Jónas var í kviði stórhvelisins þrjá daga og þrjár nætur, og eins mun Mannssonurinn vera þrjá daga og þrjár nætur í skauti jarðar.41Nínívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og sakfella hana, því að þeir gjörðu iðrun við prédikun Jónasar, og hér er meira en Jónas.42Drottning Suðurlanda mun rísa upp í dóminum ásamt þessari kynslóð og sakfella hana, því að hún kom frá endimörkum jarðar að heyra speki Salómons, og hér er meira en Salómon.43Þegar óhreinn andi fer út af manni, reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis, en finnur ekki.44Þá segir hann: Ég vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór. Og er hann kemur og finnur það tómt, sópað og prýtt,45fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri, og þeir fara inn og setjast þar að, og verður svo hlutur þess manns verri eftir en áður. Eins mun fara fyrir þessari vondu kynslóð.46Meðan hann var enn að tala við fólkið kom móðir hans og bræður. Þau stóðu úti og vildu tala við hann.47Einhver sagði við hann: Móðir þín og bræður standa hér úti og vilja tala við þig.48Jesús svaraði þeim, er við hann mælti: Hver er móðir mín, og hverjir eru bræður mínir?49Og hann rétti út höndina yfir lærisveina sína og sagði: Hér er móðir mín og bræður mínir.50Hver sem gjörir vilja föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir.

12.1-8 Hlst. Mrk 2.23-28; Lúk 6.1-5
12.1 Deilur um hvíldardaginn Matt 12.9-14; Lúk 13.10-17; 14.1-6; Jóh 5.1-18; 7.19-24; sbr Matt 9.13
12.2 Ekki leyft 2Mós 34.21
12.4 Davíð og skoðunarbrauðin 1Sam 21.2-7; sbr 3Mós 24.5-9
12.6 Meira en … Matt 12.41-42; Lúk 11.31-32
12.7 Sbr Hós 6.6; Matt 9.13
12.9-14 Hlst Mrk 3.1-6; Lúk 6.6-11
12.10 Visna hönd 1Kon 13.4 – er leyfilegt að lækna? Lúk 14.3
12.11 Fellur í gryfju Lúk 14.5
12.12 Maðurinn fremri Matt 6.26; 10.31; Lúk 12.7,24 – góðverk á hvíldardegi Lúk 13.16; Jóh 5.9; 7.23; 9.14
12.14 Ráðagerðir gegn Jesú Matt 22.15; 27.1; 28.12; Mrk 11.18; Lúk 19.47; Jóh 5.16,18
12.15 Jesús fer burt Matt 14.13 – mikill mannfjöldi Matt 4.19+ ; Mrk 3.7-10; Lúk 6.17-19
12.16 Halda leyndu Matt 8.4+
12.17-21 Sbr Jes 42.1-4; Matt 1.22+
12.22-32 Hlst. Mrk 3.20-30; Lúk 11.14-23; 12.10
12.22 Mállaus Matt 9.27-33
12.23 Sonur Davíðs Matt 1.1+
12.24 Ágreiningur um Jesú Jóh 7.11-13; 10.19-21 – Beelsebúl Matt 10.25+ – höfðingi illra anda Matt 9.34
12.28 Með anda Guðs Post 10.38 – Guðs ríki Matt 3.2+ ; 6.10 – Yfir yður komið Matt 10.7; Mrk 1.15; Lúk 17.21
12.30 Með mér Mrk 9.40; Lúk 9.50 – safna saman, sundurdreifa Matt 3.12; 13.30; 25.24
12.31 Hver synd fyrirgefin 1Tím 1.13
12.33-37 Hlst. Lúk 6.43-45
12.33 Á ávextinum þekkist tréð Matt 7.16+
12.34 Nöðrukyn Matt 3.7+ – af gnægð hjartans Matt 15.18; Mrk 7.21
12.38-42 Hlst. Mrk 8.11-12; Lúk 11.29-32
12.38 Tákn Matt 16.1; 24.3,30; Jóh 6.30; 1Kor 1.22
12.39 Ótrú kynslóð 5Mós 32.5,20; Matt 11.16; 16.4; Lúk 11.29; Post 2.40; Fil 2.15
12.40 Sbr Jón 2.1 – Manssonurinn Matt 8.20+
12.41 Nínívemenn taka sinnaskiptum Jón 3.5,8
12.42 Drottning Suðurlanda 1Kon 10.1-10 – meira en Matt 12.6+
12.43-45 Hlst. Lúk 11.24-26
12.45 Verra en áður 2Pét 2.20
12.46-50 Hlst. Mrk 3.31-35; Lúk 8.19-21
12.46 Móðir og bræður Jesú Matt 13.55; Mrk 6.3; Jóh 2.12; Post 1.14
12.50 Gera vilja Guðs Matt 6.10+