1Hann tók sig upp þaðan og hélt til byggða Júdeu og yfir um Jórdan. Fjöldi fólks safnast enn til hans, og hann kenndi þeim, eins og hann var vanur.2Farísear komu og spurðu hann, hvort maður mætti skilja við konu sína. Þeir vildu freista hans.3Hann svaraði þeim: Hvað hefur Móse boðið yður?4Þeir sögðu: Móse leyfði að rita skilnaðarbréf og skilja við hana.5Jesús mælti þá til þeirra: Vegna harðúðar hjartna yðar ritaði hann yður þetta boðorð,6en frá upphafi sköpunar gjörði Guð þau karl og konu.7Fyrir því skal maður yfirgefa föður sinn og móður og bindast konu sinni,8og þau tvö skulu verða einn maður. Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður.9Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.10Þegar lærisveinarnir voru komnir inn, spurðu þeir hann aftur um þetta.11En hann sagði við þá: Sá sem skilur við konu sína og kvænist annarri, drýgir hór gegn henni.12Og ef kona skilur við mann sinn og giftist öðrum, drýgir hún hór.13Menn færðu börn til hans, að hann snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá.14Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.15Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.16Og hann tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.17Þegar hann var að leggja af stað, kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: Góði meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?18Jesús sagði við hann: Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn.19Þú kannt boðorðin: Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt ekki pretta, heiðra föður þinn og móður.20Hinn svaraði honum: Meistari, alls þessa hef ég gætt frá æsku.21Jesús horfði á hann með ástúð og sagði við hann: Eins er þér vant. Far þú, sel allt, sem þú átt, og gef fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan, og fylg mér.22En hann varð dapur í bragði við þessi orð og fór burt hryggur, enda átti hann miklar eignir.23Þá leit Jesús í kring og sagði við lærisveina sína: Hve torvelt verður þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki.24Lærisveinunum brá mjög við orð Jesú, en hann sagði aftur við þá: Börn, hve torvelt er að komast inn í Guðs ríki.25Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.26En þeir urðu steini lostnir og sögðu sín á milli: Hver getur þá orðið hólpinn?27Jesús horfði á þá og sagði: Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt.28Þá sagði Pétur við hann: Vér yfirgáfum allt og fylgdum þér.29Jesús sagði: Sannlega segi ég yður, að enginn hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, móður eða föður, börn eða akra vegna mín og fagnaðarerindisins,30án þess að hann fái hundraðfalt aftur, nú á þessum tíma heimili, bræður og systur, mæður, börn og akra, jafnframt ofsóknum, og í hinum komandi heimi eilíft líf.31En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.32Þeir voru nú á leið upp til Jerúsalem. Jesús gekk á undan þeim, en þeir voru skelfdir, og þeir sem eftir fylgdu voru hræddir. Og enn tók hann til sín þá tólf og fór að segja þeim, hvað fram við sig ætti að koma.33Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða og framselja hann heiðingjum.34Og þeir munu hæða hann, hrækja á hann, húðstrýkja og lífláta, en eftir þrjá daga mun hann upp rísa.35Þá komu til hans Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: Meistari, okkur langar, að þú gjörir fyrir okkur það sem við ætlum að biðja þig.36Hann spurði þá: Hvað viljið þið, að ég gjöri fyrir ykkur?37Þeir svöruðu: Veit okkur, að við fáum að sitja þér við hlið í dýrð þinni, annar til hægri handar þér og hinn til vinstri.38Jesús sagði við þá: Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég drekk, eða skírst þeirri skírn, sem ég skírist?39Þeir sögðu við hann: Það getum við. Jesús mælti: Þann kaleik, sem ég drekk, munuð þið drekka, og þið munuð skírast þeirri skírn, sem ég skírist.40En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið.41Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við þá Jakob og Jóhannes.42En Jesús kallaði þá til sín og mælti: Þér vitið, að þeir, sem teljast ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar þeirra láta menn kenna á valdi sínu.43En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar.44Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé allra þræll.45Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.46Þeir komu til Jeríkó. Og þegar hann fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda, sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður.47Þegar hann heyrði, að þar færi Jesús frá Nasaret, tók hann að hrópa: Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!48Margir höstuðu á hann, að hann þegði, en hann hrópaði því meir: Sonur Davíðs, miskunna þú mér!49Jesús nam staðar og sagði: Kallið á hann. Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.50Hann kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.51Jesús spurði hann: Hvað vilt þú, að ég gjöri fyrir þig? Blindi maðurinn svaraði honum: Rabbúní, að ég fái aftur sjón.52Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.

10.1-12 Hlst. Matt 9.1-12
10.2 Jesú freistað Matt 16.1+ ; Mrk 8.11; 12.13-15
10.4 Skilnaðarbréf 5Mós 24.1,3; Matt 5.31; 19.7
10.5 Þverúð Mrk 3.5+
10.6 Karl og kona 1Mós 1.27; 5.2
10.7 Sbr 1Mós 2.24; Ef 5.31
10.11-12 Skilnaður og hór Matt 5.32; Lúk 16.18; sbr 1Kor 7.10-11
10.13-16 Hlst. Matt 19.13-15; Lúk 18.15-17
10.15 Eins og barn Matt 18.3 – inn í Guðs ríki Matt 5.20+
10.17-31 Hlst. Matt 19.16-30; Lúk 18.18-30
10.19 Boðorðin 2Mós 20.12-16; 5Mós 5.16-20 – þú skalt ekki pretta 5Mós 24.14; Jak 5.4
10.21 Fjársjóður á himni Matt 6.20; Lúk 12.33
10.23 Torvelt hinum ríku Mrk 4.19
10.27 Guði ekkert um megn 1Mós 18.14; Job 42.2; Sak 8.6; Mrk 14.36
10.29 Vegna fagnaðarerindisins Mrk 8.35; sbr Mrk 1.1+
10.31 Fyrstir og síðastir Matt 19.30; 20.16; Lúk 13.30
10.32-34 Hlst. Matt 20.17-19; Lúk 18.31-34
10.32 Til Jerúsalem Lúk 9.51+ ; Jóh 11.7-16
10.33-34 Sagt fyrir um þjáningar Matt 16.21; 17.22-23; Mrk 8.31; 9.31; Lúk 24.7
10.35-45 Hlst. Matt 20.20-28
10.35 Jakaob og Jóhannes Matt 4.21+
10.36 Hvað viljið þið? Mrk 10.51 og hlst.
10.37 Hlutdeild í dýrð Krists Matt 19.28; Lúk 22.30
10.38 Kaleikur Matt 20.22; sbr Slm 75.9; Jes 51.17-22; Esk 23.31-34; Mrk 14.36 – skírn Lúk 12.50
10.39 Píslarvætti Jakobs Post 12.2
10.42 Beita valdi Lúk 22.25
10.43-44 Þjónusta Matt 20.26+
10.45 Mannssonurinn Matt 8.20+ – til lausnargjalds fyrir alla Jes 53.11-12; Mrk 14.24 og hlst.; 1Tím 2.5-6
10.46-52 Hlst. Matt 20.29-34; Lúk 18.35-43
10.47 Sonur Davíðs Matt 1.1+ – miskunna þú mér Matt 9.27; 15.22
10.51 Hvað vilt þú? Mrk 10.36 – Herra minn sbr Mrk 9.5
10.52 Trú þín Matt 9.22+ ; Mrk 5.34 og hlst.; Lúk 7.50; 17.19; sbr Post 3.16