1Nú bar svo til, að hann stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð.2Þá sá hann tvo báta við vatnið, en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín.3Hann fór út í þann bátinn, er Símon átti, og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.4Þegar hann hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við Símon: Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskjar.5Símon svaraði: Meistari, vér höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið, en fyrst þú segir það, skal ég leggja netin.6Nú gjörðu þeir svo, og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska, en net þeirra tóku að rifna.7Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana, svo að nær voru sokknir.8Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann fyrir kné Jesú og sagði: Far þú frá mér, herra, því að ég er syndugur maður.9En felmtur kom á hann og alla þá, sem með honum voru, vegna fiskaflans, er þeir höfðu fengið.10Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.11Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.12Svo bar við, er hann var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram á ásjónu sína og bað hann: Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.13Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: Ég vil, verð þú hreinn! Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin.14Og hann bauð honum að segja þetta engum. En far þú, sagði hann, sýn þig prestinum, og fórna fyrir hreinsun þína, eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar.15En fregnin um hann breiddist út því meir, og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum.16En hann dró sig einatt í hlé til óbyggðra staða og var þar á bæn.17Dag nokkurn var hann að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til þess að lækna.18Komu þá menn með lama mann í rekkju og reyndu að bera hann inn og leggja hann fyrir framan Jesú.19En vegna mannfjöldans sáu þeir engin ráð til að komast inn með hann og fóru því upp á þak og létu hann síga í rekkjunni niður um helluþekjuna beint fram fyrir Jesú.20Og er hann sá trú þeirra, sagði hann: Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar.21Þá tóku fræðimennirnir og farísearnir að hugsa með sér: Hver er sá, er fer með slíka guðlöstun? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?22En Jesús skynjaði gjörla hugsanir þeirra og sagði við þá: Hvað hugsið þér í hjörtum yðar?23Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar eru þér fyrirgefnar, eða segja: Statt upp og gakk?24En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér: og nú talar hann við lama manninn Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.25Jafnskjótt stóð hann upp frammi fyrir þeim, tók það, sem hann hafði legið á, fór heim til sín og lofaði Guð.26En allir voru furðu lostnir og lofuðu Guð. Og þeir urðu ótta slegnir og sögðu: Óskiljanlegt er það, sem vér höfum séð í dag.27Eftir þetta fór hann út. Þá sá hann tollheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá tollbúðinni og sagði við hann: Fylg þú mér!28Og hann stóð upp, yfirgaf allt og fylgdi honum.29Leví bjó honum veislu mikla í húsi sínu, og þar sat að borði með þeim mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra.30En farísearnir og fræðimenn þeirra vönduðu um við lærisveina hans og sögðu: Hvers vegna etið þér og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum?31Og Jesús svaraði þeim: Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru.32Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar.33En þeir sögðu við hann: Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar farísea, en þínir eta og drekka.34Jesús sagði við þá: Hvort getið þér ætlað brúðkaupsgestum að fasta, meðan brúðguminn er hjá þeim?35En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim dögum.36Hann sagði þeim einnig líkingu: Enginn rífur bót af nýju fati og lætur á gamalt fat, því að bæði rífur hann þá nýja fatið og bótin af því hæfir ekki hinu gamla.37Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður, en belgirnir ónýtast.38Nýtt vín ber að láta á nýja belgi.39Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: Hið gamla er gott.

5.1-11 Hlst. Matt 4.18-22; Mrk 1.16-20
5.1-3 Jesús kennir úr báti Matt 13.1-2; Mrk 3.9-10; 4.1-2
5.3 Símon Matt 4.18+
5.5 Meistari Lúk 8.24,45; 9.33,49; 17.13
5.11 Yfirgáfu allt Matt 19.27; Lúk 5.28; 14.33; 18.22; sbr Matt 4.19-20+
5.12-16 Hlst. Matt 8.1-4; Mrk 1.40-45
5.14 Bauð að segja engum Matt 8.4+ ; Mrk 1.25+ – fórna fyrir hreinsun þína 3Mós 14.2-32
5.16 Jesús á bæn Lúk 3.21+ ; sbr Matt 14.23+ ; Mrk 6.46+
5.17-26 Hlst. Matt 9.1-8; Mrk 2.1-12
5.17 Kraftur Drottins Lúk 1.35; 4.36; 6.19; 8.46; 9.1; Post 3.12; 4.7,33; 10.38
5.20 Syndir fyrirgefnar Lúk 7.48; sbr Matt 26.28+
5.21 Guðlöstun Matt 9.3+ – Guð einn fyrirgefur Slm 103.3; Jes 43.25; 1Jóh 1.9; sbr Lúk 7.49
5.22 Skynjaði hugsanir þeirra Matt 12.25; Lúk 6.8; 9.47 – hvað? Matt 16.8
5.24 Mannssonurinn Matt 8.20+ – statt upp Jóh 5.8; Post 9.33-35
5.25 Lofa Guð Lúk 2.20+
5.26 Í dag Lúk 2.11+
5.27-32 Hlst. Matt 9.9-13; Mrk 2.13-17
5.27 Tollheimtumaður Matt 5.46+
5.28 Yfirgaf allt Lúk 5.11+
5.29-30 Vinur tollheimtumanna og bersyndugra Matt 9.11; 11.19+ ; Mrk 2.16; Lúk 7.34; 15.1-2; 19.7
5.32 Syndarar til afturhvarfs Lúk 13.1-5; 15; 16.30; 24.47; sbr Matt 3.2+
5.33-39 Hlst. Matt 9.14-17; Mrk 2.18-22
5.33 Lærisveinar Jóhannesar Matt 9.14+ – fasta Matt 11.18; Lúk 18.12; sbr Matt 6.16+
5.34 Brúðgumi Matt 9.15+
5.36 Gamalt og nýtt 2Kor 5.17; Gal 1.6; 4.9