1En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústus keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina.2Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi.3Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.4Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs,5að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð.6En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari.7Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi.8En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar.9Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir,10en engillinn sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum:11Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.12Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.13Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu:14Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á.15Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðarnir sín á milli: Förum beint til Betlehem að sjá það, sem gjörst hefur og Drottinn hefur kunngjört oss.16Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu.17Þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um barn þetta.18Og allir, sem heyrðu, undruðust það, er hirðarnir sögðu þeim.19En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það.20Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það, sem þeir höfðu heyrt og séð, en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.21Þegar átta dagar voru liðnir, skyldi umskera hann, og var hann látinn heita Jesús, eins og engillinn nefndi hann, áður en hann var getinn í móðurlífi.22En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse, fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni,23en svo er ritað í lögmáli Drottins: Allt karlkyns, er fyrst fæðist af móðurlífi, skal helgað Drottni,24og til að færa fórn eins og segir í lögmáli Drottins, tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur.25Þá var í Jerúsalem maður, er Símeon hét. Hann var réttlátur og guðrækinn og vænti huggunar Ísraels, og yfir honum var heilagur andi.26Honum hafði heilagur andi vitrað, að hann skyldi ekki dauðann sjá, fyrr en hann hefði séð Krist Drottins.27Hann kom að tillaðan andans í helgidóminn. Og er foreldrarnir færðu þangað sveininn Jesú til að fara með hann eftir venju lögmálsins,28tók Símeon hann í fangið, lofaði Guð og sagði:29Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, eins og þú hefur heitið mér,30því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt,31sem þú hefur fyrirbúið í augsýn allra lýða,32ljós til opinberunar heiðingjum og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.33Faðir hans og móðir undruðust það, er sagt var um hann.34En Símeon blessaði þau og sagði við Maríu móður hans: Þessi sveinn er settur til falls og til viðreisnar mörgum í Ísrael og til tákns, sem móti verður mælt,35og sjálf munt þú sverði níst í sálu þinni. Þannig munu hugsanir margra hjartna verða augljósar.36Og þar var Anna spákona Fanúelsdóttir af ætt Assers, kona háöldruð. Hafði hún lifað sjö ár með manni sínum frá því hún var mær37og síðan verið ekkja fram á áttatíu og fjögra ára aldur. Hún vék eigi úr helgidóminum, en þjónaði Guði nótt og dag með föstum og bænahaldi.38Hún kom að á sömu stundu og lofaði Guð. Og hún talaði um barnið við alla, sem væntu lausnar Jerúsalem.39Og er þau höfðu lokið öllu eftir lögmáli Drottins, sneru þau aftur til Galíleu, til borgar sinnar Nasaret.40En sveinninn óx og styrktist, fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.41Foreldrar hans ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni.42Og þegar hann var tólf ára gamall, fóru þau upp þangað eins og siður var á hátíðinni.43Þau voru þar út hátíðisdagana. En þegar þau sneru heimleiðis, varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem, og vissu foreldrar hans það eigi.44Þau hugðu, að hann væri með samferðafólkinu, og fóru eina dagleið og leituðu hans meðal frænda og kunningja.45En þau fundu hann ekki og sneru þá aftur til Jerúsalem og leituðu hans.46Eftir þrjá daga fundu þau hann í helgidóminum. Þar sat hann mitt á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá.47En alla, sem heyrðu til hans, furðaði stórum á skilningi hans og andsvörum.48Og er þau sáu hann þar, brá þeim mjög, og móðir hans sagði við hann: Barn, hví gjörðir þú okkur þetta? Við faðir þinn höfum leitað þín harmþrungin.49Og hann sagði við þau: Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki, að mér ber að vera í húsi föður míns?50En þau skildu ekki það er hann talaði við þau.51Og hann fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn. En móðir hans geymdi allt þetta í hjarta sér.52Og Jesús þroskaðist að visku og vexti, og náð hjá Guði og mönnum.

2.1 Hlst. Matt 1.18-25
2.4 Betlehem Mík 5.1; Matt 2.1+
2.5 María Matt 1.16,20; 2.11,20; 13.55; Mrk 6.3; Lúk 1.27-56; 2.16,19,34; Post 1.14
2.7 Fæðing Jesú Matt 1.25 – frumgetinn 2Mós 13.2,12,15; Lúk 2.23; Róm 8.29; Kól 1.15,18; Heb 1.6; Opb 1.5
2.9 Dýrð Drottins Lúk 9.26,32; 21.27; 24.26; Róm 3.23
2.11 Í dag Lúk 4.21; 5.26; 13.32; 19.9; 23.43 – frelsari 1) Guð 5Mós 32.15; 1Sam 10.19; Slm 24.5; 27.1,9; 62.2,7 o.fl.; Lúk 1.47; 1Tím 1.1 2) Jesús Jóh 4.42; Post 5.31; 13.23; Ef 5.23; Fil 3.20; 2Tím 1.10; Tít 1.4; 2.13; 3.6; 2Pét 1.1,11; 2.20; 3.18; 1Jóh 4.14; sbr Mrk 3.4; 5.23,28,34; 6.56; 10.52; 15.31 og hlst.
2.14 Í upphæðum … friður Lúk 19.38; sbr Lúk 1.79+
2.19 Geymdi og hugleiddi Lúk 2.51
2.20 Vegsama, lofa Guð Lúk 5.25-26; 7.16; 13.13; 17.15,18; 18.43; Post 4.21 – og lofa Lúk 18.43; 19.37; Post 3.8-9
2.21 Umskurn á áttunda degi 1Mós 17.12; 3Mós 12.3; Lúk 1.59 – áður en hann var getinn Lúk 1.31
2.22 Hreinsunardagur 3Mós 12.3-6
2.23 Fyrst af móðurlífi 2Mós 13.2,12,15; 34.20; 4Mós 18.15-16
2.24 Tvær turtildúfur 3Mós 12.8
2.25 Hann vænti Lúk 2.38; 23.51 – frelsun Ísraels Jes 40.1; 49.13; 51.12; 61.2 – heilagur andi var yfir honum 4Mós 11.17; 2Kon 2.15; Jes 11.2; 42.1; 61.1; Esk 11.5
2.26 Kristur Drottins 1Sam 24.7,11; 26.9,11,16,23; 2Sam 1.14,16
2.30 Hjálpræði þitt Lúk 1.69,71,77; 3.6; Tít 2.11
2.31 Í augsýn allra lýða Jes 52.10
2.32 Ljós fyrir heiðingjana Jes 42.6; 49.6; Lúk 24.47 – til vegsemdar lýð þínum Jes 46.13
2.34 Til falls og viðreisnar Jes 8.14; 1Kor 1.23; 1Pét 2.8
2.35 Hugsanir verða augljósar Mrk 7.6-8; Lúk 16.15; Post 1.24; 15.8
2.37 Bænahald nótt og dag 1Tím 5.5
2.38 Allir, sem væntu Lúk 2.25; 23.51 – lausn Jerúsalem Jes 52.9
2.39 Nasaret Matt 2.23
2.40 Sveinninn óx Lúk 2.52; sbr 1.80 – viska Lúk 2.52; 11.31; 21.15
2.41 Páskahátíðin 2Mós 12.24-27; 5Mós 16.1-8; Lúk 22.1,7-15 og hlst.; Jóh 2.13,23
2.49 Í húsi föður míns Jóh 2.16
2.51 Geymdi og hugleiddi Lúk 2.19
2.52 Þroskaðist að visku 1Sam 2.26, Okv 3.4; Lúk 1.80; 2.40