1Ég vil að þér vitið, hversu hörð er barátta mín vegna yðar og þeirra í Laódíkeu og allra þeirra, sem ekki hafa séð mig sjálfan.2Mig langar, að þeir uppörvist í hjörtum sínum, sameinist í kærleika og öðlist gjörvalla auðlegð þeirrar sannfæringar og skilnings, sem veitir þekkinguna á leyndardómi Guðs, Kristi.3En í honum eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.4Þetta segi ég til þess að enginn tæli yður með áróðurstali,5því að ég er hjá yður í andanum, þótt ég sé líkamlega fjarlægur, og ég horfi með fögnuði á góða skipan hjá yður og festu yðar í trúnni á Krist.6Þér hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum.7Verið rótfestir í honum og byggðir á honum, staðfastir í trúnni, eins og yður hefur verið kennt, og auðugir að þakklátsemi.8Gætið þess, að enginn verði til að hertaka yður með heimspeki og hégómavillu, sem byggist á mannasetningum, er runnið frá heimsvættunum, en ekki frá Kristi.9Því að í honum býr öll fylling guðdómsins líkamlega.10Og í honum, sem er höfuð hvers konar tignar og valds, hafið þér öðlast hlutdeild í þessari fyllingu.11Í honum eruð þér einnig umskornir þeirri umskurn, sem ekki er með höndum gjörð, heldur með umskurn Krists, við að afklæðast hinum synduga líkama,12þegar þér voruð greftraðir með Kristi í skírninni. Í skírninni voruð þér einnig með honum uppvaktir fyrir trúna á mátt Guðs, er vakti hann upp frá dauðum.13Þér voruð dauðir sökum afbrota yðar og umskurnarleysis. En Guð lífgaði yður ásamt honum, þegar hann fyrirgaf oss öll afbrotin.14Hann afmáði skuldabréfið, sem þjakaði oss með ákvæðum sínum. Hann tók það burt með því að negla það á krossinn.15Hann fletti vopnum tignirnar og völdin, leiddi þau opinberlega fram til háðungar og hrósaði sigri yfir þeim í Kristi.16Enginn skyldi því dæma yður fyrir mat eða drykk eða það sem snertir hátíðir, tunglkomur eða hvíldardaga.17Þetta er aðeins skuggi þess, sem koma átti, en líkaminn er Krists.18Látið þá ekki taka af yður hnossið, sem þykjast af auðmýkt sinni og engladýrkun og státa af sýnum sínum. Þeir hrokast upp af engu í hyggju holds síns19og halda sér ekki við hann, sem er höfuðið og styrkir allan líkamann og samantengir taugum og böndum, svo að hann þróast guðlegum þroska.20Ef þér eruð dánir með Kristi undan valdi heimsvættanna, hvers vegna hagið þér yður þá eins og þér lifðuð í heiminum og látið leggja fyrir yður boð eins og þessi:21Snertu ekki, bragðaðu ekki, taktu ekki á?22Allt þetta er þó ætlað til að eyðast við notkunina! mannaboðorð og mannalærdómar!23Þetta hefur að sönnu orð á sér um speki, slík sjálfvalin dýrkun og auðmýking og harðneskja við líkamann, en hefur ekkert gildi, heldur er til þess eins að fullnægja holdinu.

2.1 Laódíkea Kól 4.13-16; Opb 1.11; 3.14
2.2 Leyndardómur Ef 3.3+
2.4 Blekkja Kól 2.8; Ef 5.6; Róm 16.18
2.5 Festa í trúnni Kól 1.23,29; 1Pét 5.9
2.6 Tekið á móti 1Kor 11.23; 15.1-3; Ef 4.20-21
2.7 Rótfest Ef 3.17 – og byggð á Kristi Ef 2.20-22; Júd 20
2.8 Hertaka ykkur Kól 2.4+ ; 2Tím 4.3 – mannasetningar Matt 15.6; Kól 2.22
2.9 Fylling Ef 1.23+
2.10 Fullkomnun Ef 1.21-23; 3.19; Jóh 1.16
2.11 Umskurn Ef 2.11; Róm 2.29+
2.12 Afklæðast Kól 3.9; 1Pét 3.21 – greftruð með Kristi Róm 6.4-11 – uppvakin með Kristi Kól 3.1; Ef 2.5-6; Róm 8.11; Fil 3.10-11
2.13 Þið voruð dauð Ef 2.1+
2.14 Afmáði það sem þjakaði okkur Ef 2.14-15
2.15 Fletti vopnum tigningar 1Kor 15.24; 1Pét 3.22; Opb 12.7-8
2.16 Það sem snertir mat, drykk … Róm 14; 1Kor 8; 10.14-33; Gal 4.10
2.17 Skuggi þess, sem koma átti Heb 8.5; 10.1
2.19 Tengir saman Ef 2.21; 4.15-16
2.21 Bönn 1Kor 8.6; 1Tím 4.3
2.22 Boðorð … Jes 29.13; Matt 15.9; Kól 2.8
2.23 Fullnægja eigin hvötum Róm 13.14