1Allir konungar Amoríta, þeirra er bjuggu fyrir vestan Jórdan, og allir konungar Kanaaníta, sem búa við hafið, heyrðu, að Drottinn hefði þurrkað vatnið í Jórdan fyrir Ísraelsmönnum, uns þeir voru komnir yfir um. Þá kom þeim æðra í brjóst og þeim féllst hugur fyrir Ísraelsmönnum.2Í það mund sagði Drottinn við Jósúa: Gjör þér steinhnífa og umsker Ísraelsmenn öðru sinni.3Jósúa gjörði sér þá steinhnífa og umskar Ísraelsmenn á Yfirhúðahæð.4En sú var orsök til þess, að Jósúa umskar þá, að allur lýðurinn, sem af Egyptalandi fór, karlmennirnir, allir vígir menn, höfðu dáið í eyðimörkinni á leiðinni, eftir að þeir voru farnir af Egyptalandi.5Allir þeir, er þaðan fóru, höfðu verið umskornir, en allir þeir, sem fæðst höfðu í eyðimörkinni á leiðinni eftir brottför þeirra af Egyptalandi, höfðu eigi verið umskornir.6Í fjörutíu ár fóru Ísraelsmenn um eyðimörkina, uns allt það fólk, allir vígir menn, er farið höfðu af Egyptalandi, voru dánir, því að þeir hlýddu ekki raust Drottins. Þess vegna hafði Drottinn svarið þeim, að þeir skyldu ekki fá að sjá landið, sem hann sór feðrum þeirra að gefa oss, land, sem flýtur í mjólk og hunangi.7En hann hafði látið sonu þeirra koma í þeirra stað. Þá umskar Jósúa, því að þeir voru óumskornir, þar eð þeir höfðu eigi verið umskornir á leiðinni.8Er gjörvallt fólkið hafði verið umskorið, héldu þeir kyrru fyrir, hver á sínum stað, í herbúðunum, uns þeir voru grónir.9Þá sagði Drottinn við Jósúa: Í dag hefi ég velt af yður brigsli Egypta! Fyrir því heitir þessi staður Gilgal fram á þennan dag.10Þegar Ísraelsmenn höfðu sett búðir sínar í Gilgal, héldu þeir páska á Jeríkóvöllum, hinn fjórtánda dag mánaðarins, að kveldi.11Og daginn eftir páska átu þeir ósýrð brauð og bakað korn af gróðri landsins, einmitt þennan dag.12Daginn eftir þraut manna, er þeir átu af gróðri landsins, og upp frá því fengu Ísraelsmenn ekki manna, heldur átu þeir af gróðri Kanaanlands það árið.13Það bar til, er Jósúa var staddur hjá Jeríkó, að hann leit upp og sá, hvar maður stóð gegnt honum með brugðið sverð í hendi. Jósúa gekk til hans og sagði við hann: Hvort ert þú vor maður eða af óvinum vorum?14Hann svaraði: Nei! heldur er ég fyrirliði fyrir hersveit Drottins. Nú er ég kominn. Þá féll Jósúa fram á ásjónu sína til jarðar, laut og sagði: Hvað vilt þú, herra, mæla við þjón þinn?15Þá sagði fyrirliðinn fyrir hersveit Drottins við Jósúa: Drag skó þína af fótum þér, því að það er heilagur staður, er þú stendur á! Og Jósúa gjörði svo.

5.1 Óvinirnir missa móðinn Jós 2.11
5.4 Dóu í eyðimörkinni 4Mós 14.22-23; Heb 3.16-19
5.6 Fjörutíu ár 4Mós 14.33-34; 5Mós 2.14; Post 7.36 – hlýddu ekki 5Mós 8.20+ – Drottinn sór 5Mós 2.14 – fyrirheitna landið 5Mós 1.8+
5.10 Páskar 2Mós 12.1+
5.11 Ósýrð brauð 2Mós 12.15+
5.13 Maður með brugðið sverð 4Mós 22.23,31; 1Kro 21.16; sbr 2Sam 24.16
5.14 Sendiboði Guðs 2Mós 23.20; 32.34; Dan 12.1