1Hlutur sá, er kynkvísl Júda sona fékk eftir ættum þeirra, lá að landamærum Edóms, suður undir Síneyðimörk, syðst í landinu.2Suðurtakmörkin að landi þeirra voru frá enda Saltasjós, frá víkinni, er snýr til suðurs,3og lágu fyrir sunnan Sporðdrekaskarð og yfir til Sín og upp eftir fyrir sunnan Kades Barnea og yfir til Hesron, þaðan upp til Adar og því næst í boga til Karka.4Þaðan lágu þau yfir til Asmón og alla leið til Egyptalandsár, og síðast lágu takmörkin til sjávar. Þetta skulu vera landamerki þeirra að sunnanverðu.5Austurtakmörkin voru Saltisjór, allt til þess er Jórdan fellur í hann. Norðurmörkin lágu frá nyrstu vík vatnsins, þar sem Jórdan fellur í það.6Þaðan lágu takmörkin upp til Bet Hogla og fram hjá Bet Araba að norðanverðu og þaðan upp til steins Bóhans, Rúbenssonar.7Þá lágu takmörkin upp til Debír úr Akordal, þaðan í norður til Gilgal, sem liggur þar gegnt sem upp er gengið til Adúmmím, sem er sunnanvert við lækinn. Þaðan lágu takmörkin yfir til En-Semesvatns og þaðan alla leið að Rógel-lind.8„Þaðan lágu landamerkin upp til Hinnomssonardals, að Jebúsítaöxl sunnanverðri; þar heitir nú Jerúsalem. Þaðan lágu landamerkin upp á fjallstindinn, sem er beint í vestur frá Hinnomsdal og við norðurendann á Refaímdal.“9„Frá fjallstindinum beygðust landamerkin til Neftóavatnslindar og lágu þaðan til borganna á Efronfjalli. Þaðan beygðust landamerkin til Baala; þar heitir nú Kirjat Jearím.“10„Frá Baala lágu landamerkin í boga vestur til Seírfjalls og þaðan yfir að öxl Jearímfjalls norðanverðri, það er Kesalon; og þaðan ofan til Bet Semes og yfir til Timna.“11Þá lágu landamerkin norður til Ekron-axlar, þaðan beygðust þau til Síkrón og yfir til Baala-fjalls og alla leið til Jabneel, og síðast lágu takmörkin til sjávar.12Vesturtakmörkunum réð hafið mikla alla leið. Þetta voru landamerki Júda sona hringinn í kring, eftir ættum þeirra.13„Kaleb Jefúnnesyni gaf hann hlut meðal Júda sona, eins og Drottinn hafði boðið Jósúa, sem sé borg Arba, föður Anaks; það er Hebron.“14Og Kaleb rak þaðan þrjá sonu Anaks: Sesaí, Ahíman og Talmaí, afkomendur Anaks.15Þaðan fór hann móti Debír-búum, en Debír hét áður Kirjat Sefer.16Kaleb sagði: Hver sem leggur Kirjat Sefer undir sig og vinnur hana, honum skal ég gefa Aksa dóttur mína að konu.17Þá vann Otníel Kenasson, bróðir Kalebs, borgina, og hann gaf honum Aksa dóttur sína að konu.18Þegar hún skyldi heim fara með bónda sínum, eggjaði hún hann þess, að hann skyldi beiðast lands nokkurs af föður hennar. Steig hún þá niður af asnanum. Kaleb spurði hana þá: Hvað viltu?19Hún svaraði: Gef mér gjöf nokkra, af því að þú hefir gefið mig til Suðurlandsins. Gef mér því vatnsbrunna. Gaf hann henni þá brunna hið efra og brunna hið neðra.20Þetta er óðal kynkvíslar Júda sona, eftir ættum þeirra.21Syðstu borgirnar í kynkvísl Júda sona, við landamæri Edóms, í Suðurlandinu voru: Kabseel, Eder, Jagúr,22Kína, Dímóna, Adada,23Kedes, Hasór og Jítnan,24Síf, Telem, Bealót,25„Hasór Hadatta og Keríjót Hesron, það er Hasór;“26Amam, Sema, Mólada,27Hasar Gadda, Hesmon, Bet Pelet,28Hasar Súal, Beerseba og Bisjótja,29Baala, Ijím, Esem,30Eltólað, Kesíl, Horma,31Siklag, Madmanna, Sansanna,32Lebaót, Silhím, Aín og Rimmon, alls tuttugu og níu borgir og þorpin, er að liggja.33Á láglendinu: Estaól, Sórea, Asna,34Sanóa og En Ganním, Tappúa og Enam,35Jarmút og Adúllam, Sókó, Aseka,36Saaraím, Adítaím, Gedera og Gederótaím, fjórtán borgir og þorpin, er að liggja.37Senan, Hadasa, Migdal Gað,38Dílean, Mispe og Jokteel,39Lakís, Boskat, Eglon,40Kabbón, Lahmas, Kitlís41og Gederót, Bet Dagón, Naama og Makeda, sextán borgir og þorpin, er að liggja.42Líbna, Eter, Asan,43Jifta, Asna, Nesíb,44Kegíla, Aksíb og Maresa, níu borgir og þorpin, er að liggja.45Ekron með smáborgum hennar og þorpum.46Frá Ekron og vestur að hafi allt það, sem er á hlið við Asdód, og þorpin, er að liggja.47Asdód með smáborgum hennar og þorpum, Gasa með smáborgum hennar og þorpum, allt til Egyptalandsár, en vesturtakmörkum réð hafið mikla.48Í fjalllendinu: Samír, Jattír, Sókó,49„Danna, Kirjat Sanna, það er Debír;“50Anab, Estemó, Aním,51Gósen, Hólon og Gíló, ellefu borgir og þorpin, er að liggja.52Arab, Dúma, Esean,53Janúm, Bet Tappúa, Afeka,54„Húmta, Kirjat Arba, það er Hebron; og Síór, níu borgir og þorpin, er að liggja.“55Maon, Karmel, Síf, Júta,56Jesreel, Jokdeam, Sanóa,57Kaín, Gíbea og Timna, tíu borgir og þorpin, er að liggja.58Halhúl, Bet Súr, Gedór,59Maarat, Bet Anót og Eltekón, sex borgir og þorpin er að liggja.60„Kirjat Baal, það er Kirjat Jearím; og Rabba, tvær borgir og þorpin, er að liggja.“61Í eyðimörkinni: Bet Araba, Middín, Sekaka,62Nibsan, Saltborgin og Engedí, sex borgir og þorpin er að liggja.63En Jebúsítana, sem bjuggu í Jerúsalem, gátu Júda synir ekki rekið burt. Fyrir því hafa Jebúsítar búið í Jerúsalem ásamt Júda sonum fram á þennan dag.
15.2-4 Suðurlandamæri (Júda) 4Mós 34.3-5
15.6 Bet Hogla Jós 18.19 – Bet Araba Jós 18.22 – steinn Bóhans Jós 18.17
15.7 Akordalur Jós 7.24,26+ – Rógellind Jós 18.16; 2Sam 17.17; 1Kon 1.9
15.8 Hinnomssonardalur Jós 18.16; 2Kon 23.10; Jer 7.31-32; 19.2-6; 32.35 – Jebús, Jerúsalem Dóm 19.10+
15.9 Baala, Kirjat Jearím Jós 9.17; 1Kro 13.6
15.10 Bet Semes Jós 21.16 – Timma Jós 19.43
15.11 Ekron Jós 13.3
15.12 Vesturmörkin 4Mós 34.6 – hafið mikla Jós 23.4
15.13-15 Kaleb Jós 14.6 – Hebron að arfleið Jós 14.14-15
15.14 Synir Anaks 4Mós 13.22
15.15 Debír Jós 10.38-39; 11.21; 12.13; Dóm 1.11
15.16 Gifta dóttur mína 1Sam 17.25; sbr 18.20-27
15.17 Otníel Dóm 1.13+
15.18-19 Beiðast lands Dóm 1.14-15
15.20-32 Syðstu borgir Júda sbr Jós 19.2-9
15.30 Horma Jós 12.14; 4Mós 14.45
15.31 Siklag 1Sam 27.6; 30.1,14,26
15.33 Láglendið Jós 9.1; 10.40; 11.16; 12.8 – Estaól, Sórea Dóm 13.25+
15.35-36 Borgir á láglendinu sbr Jós 10.3-10; 12.11-15; 1Sam 17.1; 22.1
15.37-41 Senan, o.áfr. Mík 1.11; Jós 10.3; 2Kon 22.1; Jós 10.16; 12.16
15.42-44 Líbna, o.áfr. Jós 10.29; 12.15; 1Sam 23.1; Mík 1.14-15
15.45-47 Ekron, o.áfr. Jós 13.3
15.48-60 Borgir í fjalllendinu Jós 10.38-41; 11.16,21; 12.13; 21.14-15; 1Sam 30.27-28
15.61-62 Borgir í eyðimörkinni 1Sam 24.1; Esk 47.10; Ljl 1.14
15.63 Jebúsítar í Jerúsalem Dóm 1.21+ ; sbr 2Sam 5.6-9