1Er Adónísedek, konungur í Jerúsalem, frétti að Jósúa hefði unnið Aí og gjöreytt hana, að hann hefði farið með Aí og konung hennar eins og hann fór með Jeríkó og konung hennar, og að Gíbeonbúar hefðu gjört frið við Ísrael og byggju meðal þeirra,2þá urðu þeir mjög hræddir, því að Gíbeon var stór borg, engu minni en konungaborgirnar, og hún var stærri en Aí og allir borgarbúar hreystimenn.3Sendi Adónísedek, konungur í Jerúsalem, þá til Hóhams, konungs í Hebron, til Pírams, konungs í Jarmút, til Jafía, konungs í Lakís, og til Debírs, konungs í Eglon, og lét segja þeim:4Komið til móts við mig og veitið mér fulltingi, að vér megum vinna Gíbeon, því að hún hefir gjört frið við Jósúa og Ísraelsmenn.5Þá söfnuðust saman fimm konungar Amoríta og fóru þangað með öllu liði sínu: konungurinn í Jerúsalem, konungurinn í Hebron, konungurinn í Jarmút, konungurinn í Lakís og konungurinn í Eglon. Settust þeir um Gíbeon og tóku að herja á hana.6Gíbeonmenn sendu þá til Jósúa í herbúðirnar í Gilgal, og létu segja honum: Slá ekki hendi þinni af þjónum þínum. Kom sem skjótast oss til hjálpar og veit oss fulltingi, því að allir konungar Amoríta, þeirra er búa í fjalllendinu, hafa safnast saman í móti oss.7Þá fór Jósúa frá Gilgal með allt lið sitt og alla kappa sína.8Drottinn sagði við Jósúa: Þú skalt ekki hræðast þá, því að ég mun gefa þá í þínar hendur. Enginn þeirra mun fá staðist fyrir þér.9Jósúa kom nú að þeim óvörum, því að hann hélt áfram ferðinni alla nóttina frá Gilgal.10Og Drottinn gjörði þá felmtsfulla fyrir Ísrael og biðu þeir mikinn ósigur við Gíbeon, en hinir eltu þá í áttina til stígsins, er liggur upp að Bet Hóron, og felldu menn á flóttanum allt til Aseka og Makeda.11En er þeir flýðu fyrir Ísrael og voru á leið niður frá Bet Hóron, þá lét Drottinn stóra steina falla yfir þá af himni alla leið til Aseka, svo að þeir dóu. Voru þeir fleiri, er féllu fyrir haglsteinunum, en þeir, er Ísraelsmenn drápu með sverðseggjum.12Þá talaði Jósúa við Drottin, þann dag er Drottinn gaf Amoríta á vald Ísraelsmönnum, og hann mælti í áheyrn Ísraels: Sól statt þú kyrr í Gíbeon, og þú, tungl, í Ajalondal!13Og sólin stóð kyrr, og tunglið staðnaði, uns lýðurinn hafði hefnt sín á óvinum sínum. Svo er skrifað í Bók hinna réttlátu. Þá staðnaði sólin á miðjum himni og hraðaði sér eigi að ganga undir nær því heilan dag.14Og enginn dagur hefir þessum degi líkur verið, hvorki fyrr né síðar, að Drottinn skyldi láta að orðum manns, því að Drottinn barðist fyrir Ísrael.15Jósúa fór þá aftur til herbúðanna í Gilgal og allur Ísrael með honum.16Konungarnir fimm, er fyrr var getið, flýðu og leyndust í hellinum hjá Makeda.17Þá var Jósúa sagt svo frá: Konungarnir fimm eru fundnir. Þeir leynast í hellinum hjá Makeda.18Þá sagði Jósúa: Veltið stórum steinum fyrir hellismunnann og setjið menn við hann til að gæta þeirra.19En sjálfir skuluð þér eigi staðar nema. Veitið óvinum yðar eftirför, vinnið á þeim, sem aftastir fara, og látið þá ekki komast inn í borgir sínar, því að Drottinn, Guð yðar, hefir gefið þá yður á vald.20Er Jósúa og Ísraelsmenn höfðu unnið mikinn sigur á þeim, svo að þeir voru frá með öllu en þeir af þeim, er undan höfðu komist, höfðu farið inn í víggirtu borgirnar ,21þá sneri allt liðið aftur til Jósúa í herbúðirnar við Makeda heilu og höldnu. Þorði enginn framar orð að mæla gegn Ísraelsmönnum.22Þá sagði Jósúa: Opnið hellismunnann og leiðið þessa fimm konunga út til mín úr hellinum.23Þeir gjörðu svo og leiddu þessa fimm konunga til hans úr hellinum: konunginn í Jerúsalem, konunginn í Hebron, konunginn í Jarmút, konunginn í Lakís og konunginn í Eglon.24Og er þeir höfðu leitt konunga þessa út til Jósúa, þá kallaði Jósúa saman alla menn í Ísrael og sagði við fyrirliða hermannanna, þá er með honum höfðu farið: Komið hingað og stígið fæti á háls konungum þessum! Þeir gengu þá fram og stigu fæti á háls þeim.25Þá sagði Jósúa við þá: Óttist ekki og látið ekki hugfallast, verið hughraustir og öruggir, því að svo mun Drottinn fara með alla óvini yðar, er þér berjist við.26Eftir það lét Jósúa drepa þá, og er hann hafði líflátið þá, lét hann hengja þá á fimm tré, og þeir héngu á trjánum allt til kvelds.27En er komið var undir sólarlag, bauð Jósúa að taka þá ofan af trjánum. Þá köstuðu þeir þeim í hellinn, sem þeir höfðu leynst í, og báru síðan stóra steina fyrir hellismunnann, og eru þeir þar enn í dag.28Þennan sama dag vann Jósúa Makeda og tók hana herskildi, og hann bannfærði konung hennar, svo og borgina og alla þá menn, sem í henni voru. Lét hann engan komast undan, og með konunginn í Makeda fór hann eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.29Síðan fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Makeda til Líbna og herjaði á Líbna.30Og Drottinn gaf einnig hana í hendur Ísrael, svo og konung hennar, og hann tók hana herskildi og drap alla þá menn, er í henni voru. Lét hann þar engan komast undan, og hann fór með konung hennar eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.31Því næst fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Líbna til Lakís og settist um hana og herjaði á hana.32Og Drottinn gaf Lakís í hendur Ísrael, og hann vann hana á öðrum degi og tók hana herskildi og drap alla menn, sem í henni voru, öldungis eins og hann hafði farið með Líbna.33Þá fór Hóram, konungur í Geser, til liðs við Lakís, en Jósúa felldi hann og lið hans, svo að enginn þeirra komst undan.34Því næst fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Lakís til Eglon, og þeir settust um hana og herjuðu á hana.35Og þeir unnu hana samdægurs og tóku hana herskildi, og alla menn, er í henni voru, bannfærði hann þennan sama dag, öldungis eins og hann hafði farið með Lakís.36Þá fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Eglon til Hebron, og þeir herjuðu á hana.37„Og þeir unnu hana og tóku hana herskildi; og þeir felldu konung hennar og alla íbúana í borgunum þar umhverfis og alla menn, sem í henni voru, svo að enginn komst undan, öldungis eins og hann hafði farið með Eglon, og hann bannfærði borgina og alla menn, er í henni voru.“38Þá sneri Jósúa og allur Ísrael með honum aftur til Debír og herjaði á hana.39„Náði hann henni og konungi hennar og öllum borgunum þar umhverfis á sitt vald; felldu þeir þá með sverðseggjum og bannfærðu alla menn, er í henni voru, svo að enginn komst undan. Eins og hann hafði farið með Hebron, svo fór hann og með Debír og konung hennar, og eins og hann hafði farið með Líbna og konung hennar.“40Þannig braut Jósúa undir sig landið allt: fjalllendið, suðurlandið, láglendið og hlíðarnar , og hann felldi alla konunga þeirra, svo að enginn komst undan, og bannfærði allt, sem lífsanda dró, eins og Drottinn, Ísraels Guð, hafði boðið honum.41Og Jósúa lagði undir sig land allt frá Kades Barnea til Gasa og allt Gósenland til Gíbeon.42Og alla þessa konunga og land þeirra vann Jósúa í einu, því að Drottinn, Ísraels Guð, barðist fyrir Ísrael.43Sneri nú Jósúa og allur Ísrael með honum aftur til herbúðanna í Gilgal.

10.1 Aí unnin Jós 8.1-29 – eins og Jeríkó Jós 8.2+
10.6 Halda sáttmálann við Gíbeoníta Jós 9.1-15
10.10 Sigur við Gíbeon Jes 28.21 – Makeda Jós 10.16-27
10.11 Haglgrýti Jes 28.17; 30.30; SSal 5.22; Sír 46.5
10.13 Sólin stóð kyrr Hab 3.11; Sír 46.4
10.14 Guð bænheyrir 2Mós 2.24; 3.7; 6.5; Dóm 2.18; Slm 106.44 – Drottin fer að orðum manns 1Mós 16.11; 17.20; 30.6; 1Kon 17.1; 2Kon 13.4; 19.20; 20.5; Matt 6.6; 7.7-11 og hlst. 21.22 og hlst.; Lúk 11.5-13; 18.1-8; 1Jóh 5.14-15 – Drottinn barðist fyrir Ísrael Jós 10.42; 23.3,10; 2Mós 14.14; 5Mós 1.30; 3.22+
10.25 Verið hraustir Jós 1.6-7,9,18; 8.1; 5Mós 31.6
10.26 Til kvölds Jós 8.29; 5Mós 21.22-23
10.28 Eins og í Jeríkó Jós 8.2+
10.33 Geser Jós 16.10; Dóm 1.29; 1Kon 9.16
10.36 Hebron Jós 14.13-15; 15.13-14; Dóm 1.10-20
10.38 Debír Jós 15.15-17; Dóm 1.11-13
10.40 Allt landið sigrað Jós 11.16; Dóm 1.9; sbr 5Mós 1.7
10.42 Guð barðist Jós 10.14+ ; 5Mós 3.22+