1Þetta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: Faðir, stundin er komin. Gjör son þinn dýrlegan, til þess að sonurinn gjöri þig dýrlegan.2Þú gafst honum vald yfir öllum mönnum, að hann gefi eilíft líf öllum þeim, sem þú hefur gefið honum.3En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist.4Ég hef gjört þig dýrlegan á jörðu með því að fullkomna það verk, sem þú fékkst mér að vinna.5Faðir, gjör mig nú dýrlegan hjá þér með þeirri dýrð, sem ég hafði hjá þér, áður en heimur var til.6Ég hef opinberað nafn þitt þeim mönnum, sem þú gafst mér úr heiminum. Þeir voru þínir, og þú gafst mér þá, og þeir hafa varðveitt þitt orð.7Þeir vita nú, að allt, sem þú hefur gefið mér, er frá þér,8því ég hef flutt þeim þau orð, sem þú gafst mér. Þeir tóku við þeim og vita með sanni, að ég er frá þér út genginn, og trúa því, að þú hafir sent mig.9Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum, heldur fyrir þeim sem þú hefur gefið mér, því að þeir eru þínir,10og allt mitt er þitt og þitt er mitt. Í þeim er ég dýrlegur orðinn.11Ég er ekki lengur í heiminum. Þeir eru í heiminum, en ég kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, því nafni, sem þú hefur gefið mér, svo að þeir verði eitt eins og við.12Meðan ég var hjá þeim, varðveitti ég þá í nafni þínu, sem þú hefur gefið mér, og gætti þeirra, og enginn þeirra glataðist nema sonur glötunarinnar, svo að ritningin rættist.13Nú kem ég til þín. Þetta tala ég í heiminum, til þess að þeir eigi í sjálfum sér fögnuð minn fullkominn.14Ég hef gefið þeim orð þitt, og heimurinn hataði þá, af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum.15Ég bið ekki, að þú takir þá úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá frá hinu illa.16Þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum.17Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur.18Ég hef sent þá í heiminn, eins og þú sendir mig í heiminn.19Ég helga mig fyrir þá, svo að þeir séu einnig helgaðir í sannleika.20Ég bið ekki einungis fyrir þessum, heldur og fyrir þeim, sem á mig trúa fyrir orð þeirra,21að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur, til þess að heimurinn trúi, að þú hefur sent mig.22Og ég hef gefið þeim þá dýrð, sem þú gafst mér, svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt,23ég í þeim og þú í mér, svo að þeir verði fullkomlega eitt, til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.24Faðir, ég vil að þeir, sem þú gafst mér, séu hjá mér, þar sem ég er, svo að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefur gefið mér, af því að þú elskaðir mig fyrir grundvöllun heims.25Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki, en ég þekki þig, og þessir vita, að þú sendir mig.26Ég hef kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra, svo að kærleikur þinn, sem þú hefur auðsýnt mér, sé í þeim og ég sé í þeim.

17.1 Hóf augu sín til himins Mrk 6.41; Lúk 18.13; Jóh 11.41 – stundin er komin Jóh 13.1+ ; sbr 5.25 – faðirinn og sonurinn dýrlegur Jóh 13.31-32
17.2 Allt vald Matt 28.18; Jóh 3.35; 5.19-30; 13.3
17.3 Eilíft líf Jóh 4.14,36; 6.27; 12.25; 1Jóh 5.13,20 – þekkja Guð SSal 15.3 – hinn eini, sanni Guð 1Þess 1.9; 1Jóh 5.20
17.4 Dýrlegur á jörðu Jóh 13.31-32; 14.13 – verkin Jóh 4.34; 5.30; 6.38; 8.29; 9.4; 10.37-38; sbr 13.1; 19.30
17.5 Dýrð Jesú Jóh 2.11; sbr 7.39+ – áður en heimurinn varð til Jóh 1.1-2; 8.58; 17.24
17.6 Ég hef opinberað nafn þitt Jóh 1.18; 12.28; 14.7-11; 17.26 – gafst mér þá Jóh 6.37,39,44; 10.29; 17.2,9,12,24
17.8 Frá Guði Jóh 3.2; 16.30; sbr 8.42+
17.9 Heimurinn Jóh 1.10; 15.19; sbr 3.16-17
17.10 Mitt er þitt Lúk 15.31 – þitt er mitt Jóh 16.15
17.11 Lærisveinarnir eru í heiminum Jóh 13.1 – til föðurins Jóh 13.1,3; 16.28 – heilagi faðir 3Mós 11.44; 19.2; 1Pét 1.16 – eitt eins og við Jóh 10.30; 17.21; Gal 3.28
17.12 Gæta Jóh 18.8-9 – glatast Matt 7.13; Jóh 3.16; 6.39; 10.28; 12.25; Post 8.20; Róm 9.22; Fil 3.19 – sonur glötunarinnar Jóh 6.70; sbr 2Þess 2.3 – rætast Jóh 13.18; Slm 41.10
17.13 Fögnuðirnn fullkominn Jóh 15.11+
17.14 Hataðir af heiminum Jóh 15.18-19 – ekki af heiminum Jóh 8.23
17.15 Úr heiminum Jóh 15.19-16.4 – varðveita frá illu Matt 6.13; 2Þess 3.3; 1Jóh 5.18
17.17 Helga Jer 1.5; Sír 45.4; Jóh 10.36
17.18 Sendir Jóh 20.21
17.19 Ég helga mig sbr Jóh 6.51; 10.18; 15.13 – fyrir þá Mrk 14.24; Lúk 22.20; 1Kor 11.24; 15.3; Heb 2.9; 5.1; 9.7; 10.12
17.20 Jesús biður fyrir lærisveinunum Jóh 17.9
17.21 Að allir séu eitt Gal 3.28 – eins og faðirinn og sonurinn Jóh 10.38; 17.11
17.24 Hjá mér Jóh 12.26; 14.3 – sjá dýrð Jesú Jóh 1.14; sbr 2Kor 3.18; 4.6 – fyrir grundvöllun heims Jóh 17.5
17.25 Heimurinn þekkir ekki föðurinn Jóh 1.10; 8.55 – Jesús þekkir föðurinn Jóh 8.55+ – réttláti faðir Slm 7.18; 9.5; 96.13; 116.5; 129.4; 145.17; Róm 3.26; Opb 16.5
17.26 Kunngjöra Jóh 17.6