1Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi, að stund hans var kominn og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem í heiminum voru. Hann elskaði þá, uns yfir lauk.2Kvöldmáltíð stóð yfir. Djöfullinn hafði þegar blásið því í brjóst Júdasi Símonarsyni Ískaríots að svíkja Jesú.3Jesús vissi, að faðirinn hafði lagt allt í hendur honum, að hann var frá Guði kominn og var að fara til Guðs.4Hann stóð upp frá máltíðinni, lagði af sér yfirhöfnina, tók líndúk og batt um sig.5Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum, sem hann hafði um sig.6Hann kemur þá að Símoni Pétri, sem segir við hann: Herra, ætlar þú að þvo mér um fæturna?7Jesús svaraði: Nú skilur þú ekki, hvað ég er að gjöra, en seinna muntu skilja það.8Pétur segir við hann: Aldrei að eilífu skaltu þvo fætur mína. Jesús svaraði: Ef ég þvæ þér ekki, áttu enga samleið með mér.9Símon Pétur segir við hann: Herra, ekki aðeins fætur mína, líka hendurnar og höfuðið.10Jesús segir við hann: Sá sem laugast hefur, þarf ekki að þvost nema um fætur. Hann er allur hreinn. Og þér eruð hreinir, þó ekki allir.11Hann vissi, hver mundi svíkja hann, og því sagði hann: Þér eruð ekki allir hreinir.12Þegar hann hafði þvegið fætur þeirra, tekið yfirhöfn sína og setst aftur niður, sagði hann við þá: Skiljið þér, hvað ég hef gjört við yður?13Þér kallið mig meistara og herra, og þér mælið rétt, því það er ég.14Fyrst ég, sem er herra og meistari, hef nú þvegið yður um fæturna, þá ber yður einnig að þvo hver annars fætur.15Ég hef gefið yður eftirdæmi, að þér breytið eins og ég breytti við yður.16Sannlega, sannlega segi ég yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans né sendiboði meiri þeim, er sendi hann.17Þér vitið þetta, og þér eruð sælir, ef þér breytið eftir því.18Ég tala ekki um yður alla. Ég veit, hverja ég hef útvalið. En ritningin verður að rætast: Sá sem etur brauð mitt, lyftir hæli sínum móti mér.19Ég segi yður þetta núna, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það er orðið, að ég er sá sem ég er.20Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem tekur við þeim, sem ég sendi, hann tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim er sendi mig.21Þegar Jesús hafði sagt þetta, varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.22Lærisveinarnir litu hver á annan og skildu ekki, við hvern hann ætti.23Sá lærisveinn Jesú, sem hann elskaði, sat næstur honum.24Símon Pétur benti honum og bað hann spyrja, hver sá væri, sem Jesús talaði um.25Hann laut þá að Jesú og spurði: Herra, hver er það?26Jesús svaraði: Það er sá sem ég fæ bita þann, er ég dýfi nú í. Þá dýfði hann í bitanum, tók hann og fékk Júdasi Símonarsyni Ískaríots.27Og eftir þann bita fór Satan inn í hann. Jesús segir við hann: Það sem þú gjörir, það gjör þú skjótt!28En enginn þeirra, sem sátu til borðs, vissi til hvers hann sagði þetta við hann.29En af því að Júdas hafði pyngjuna, héldu sumir þeirra, að Jesús hefði sagt við hann: Kauptu það, sem vér þurfum til hátíðarinnar, eða að hann skyldi gefa eitthvað fátækum.30Þá er hann hafði tekið við bitanum, gekk hann jafnskjótt út. Þá var nótt.31Þegar hann var farinn út, sagði Jesús: Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn, og Guð er orðinn dýrlegur í honum.32Fyrst Guð er orðinn dýrlegur í honum, mun Guð og gjöra hann dýrlegan í sér, og skjótt mun hann gjöra hann dýrlegan.33Börnin mín, stutta stund verð ég enn með yður. Þér munuð leita mín, og eins og ég sagði Gyðingum, segi ég yður nú: Þangað sem ég fer, getið þér ekki komist.34Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan.35Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.36Símon Pétur segir við hann: Herra, hvert ferðu? Jesús svaraði: Þú getur ekki fylgt mér nú þangað sem ég fer, en síðar muntu fylgja mér.37Pétur segir við hann: Herra, hví get ég ekki fylgt þér nú? Ég vil leggja líf mitt í sölurnar fyrir þig.38Jesús svaraði: Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.

13.1 Páskar Jóh 2.13+ – stund hans komin Matt 26.45; Mrk 14.41; Jóh 12.23,27; 17.1; sbr 2.4+ – til föðurins Jóh 16.28 – kærleikur og dauði Jesú Jóh 13.34; 15.9; 17.23; 1Jóh 3.16; sbr Róm 5.8; 8.35; 2Kor 5.14; Gal 2.20; Ef 3.18; 5.1-2
13.2 Júdas Matt 10.4+ – hafði blásið í brjóst honum Lúk 22.3; Jóh 13.27
13.3 Allt í hendur honum Matt 11.27; Lúk 10.22; Jóh 3.35; 5.19-20,36; 6.37,39 – frá Guði kominn Jóh 8.42; 16.27-28; 17.8 – fara til Guðs Jóh 7.33-34; 16.28; sbr 3.13; 6.62
13.5 Þvo fætur Lúk 7.44; sbr Jóh 12.3
13.10 Hreinn Jóh 15.3
13.11 Vissi, hver mundi svíkja Jóh 6.64,70-71
13.13 Kallið mig meistara Matt 23.8,10
13.14 Herrann þjónar Matt 20.28; Lúk 22.27 – þvo fætur 1Tím 5.10
13.15 Eftirdæmi Fil 2.5; 1Pét 2.21; sbr Jóh 13.34; 15.12
13.16 Þjónninn og herra hans Matt 10.24+ ; Lúk 22.24-30
13.17 Sælir Jak 1.22,25; sbr Matt 7.24-27; Róm 2.13
13.18 Útvelja Jóh 6.70; 15.16 – sá sem etur Slm 41.10; sbr Mrk 14.18
13.19 Áður en það verður Jóh 14.29; 16.4 – trúa að ég er Jóh 8.24,28,58
13.20 Taka við Jesú Matt 10.40; 18.5; Mrk 9.37; Lúk 9.48; 10.16; Jóh 12.44
13.21 Þungt um hjarta Jóh 11.33; 12.27
13.23 Lærisveinninn, sem Jesús elskaði Jóh 19.26; 20.2; 21.7,20
13.27 Satan fer inn í Júdas Lúk 22.3; Jóh 13.2
13.29 Hafði pyngjuna Jóh 12.6
13.30 Þá var nótt Lúk 22.53; Jóh 9.4; 11.10; 12.35
13.31 Mannssonurinn Matt 8.20+ – dýrlegur Jóh 16.14; 7.39+
13.33 Stutta stund enn Jóh 7.33; 19 – getið þér ekki komist Jóh 7.34,36; 8.21
13.34 Elskið hvert annað Jóh 15.12,17; 1Jóh 3.11,23 – nýtt boðorð 1Jóh 2.8; 2Jóh 5
13.35 Á því þekktur 1Jóh 3.14
13.36 Herra, hvert ferðu? Jóh 7.35; 14.5; sbr 16.5 – síðar Jóh 21.18-19