1Þá svaraði Job og sagði:2Vissulega, ég veit að það er svo, og hvernig ætti maðurinn að hafa rétt fyrir sér gagnvart Guði?3Þóknist honum að deila við hann, getur hann ekki svarað einni spurningu af þúsund.4Hann er vitur í hjarta og máttkur að afli hver þrjóskaðist gegn honum og sakaði eigi?5Hann sem flytur fjöll, svo að þau vita ekki af, hann sem kollvarpar þeim í reiði sinni,6hann sem hrærir jörðina úr stað, svo að stoðir hennar leika á reiðiskjálfi,7hann sem býður sólinni, og hún rennur ekki upp, og setur innsigli fyrir stjörnurnar,8hann sem þenur út himininn aleinn, og gengur á háöldum sjávarins,9hann sem skóp Vagnstirnið og Óríon, Sjöstjörnuna og forðabúr sunnanvindsins,10hann sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega og dásemdarverk, er eigi verða talin,11sjá, hann gengur fram hjá mér, en ég sé hann ekki, hann strýkst fram hjá, en ég verð hans ekki var.12Þegar hann þrífur til, hver vill þá aftra honum, hver vill segja við hann: Hvað gjörir þú?13Guð heldur ekki aftur reiði sinni, bandamenn hafdrekans beygðu sig undir hann.14Hversu miklu síður mundi ég þá geta svarað honum, geta valið orð mín gagnvart honum,15ég sem ekki mætti svara, þótt ég hefði rétt fyrir mér, heldur verð að beiðast miskunnar af dómara mínum.16Þótt ég kallaði og hann svaraði mér, þá mundi ég ekki trúa, að hann hlustaði á mig.17Miklu fremur mundi hann hvæsa á mig í stormviðri og margfalda sár mín án saka,18aldrei leyfa mér að draga andann, heldur metta mig beiskri kvöl.19Sé um kraft að ræða, er mátturinn hans, sé um rétt að ræða, hver vill þá stefna honum?20Þótt ég hefði rétt fyrir mér, þá mundi munnur minn sakfella mig, þótt ég væri saklaus, mundi hann koma á mig sektinni.21Saklaus er ég, ég hirði ekkert um líf mitt, ég virði að vettugi tilveru mína!22Mér stendur á sama um það. Fyrir því segi ég: hann tortímir jafnt saklausum sem óguðlegum.23Þegar svipan deyðir snögglega, þá gjörir hann gys að örvænting hinna saklausu.24Jörðin er gefin í vald hinna óguðlegu, hann byrgir fyrir andlitið á dómendum hennar. Sé það ekki hann hver þá?25Dagar mínir voru skjótari en hraðboði, liðu svo hjá, að þeir litu enga hamingju.26Þeir brunuðu áfram eins og reyrbátar, eins og örn, sem steypir sér niður á æti.27Ef ég segi: Ég ætla að gleyma volæði mínu, ég ætla að breyta andlitssvip mínum og vera kátur,28þá hryllir mig við öllum þjáningum mínum, því ég veit þú sýknar mig ekki.29Ég á nú að vera sekur, hví skyldi ég þá vera að mæðast til ónýtis?30Þótt ég þvægi mér úr snjó og hreinsaði hendur mínar í lút,31þá mundir þú dýfa mér ofan í forarvilpu, svo að klæðum mínum byði við mér.32Guð er ekki maður eins og ég, að ég geti svarað honum, að við getum gengið saman fyrir réttinn.33Enginn er sá, er úr skeri okkar í milli, er lagt geti hönd sína á okkur báða.34Hann taki vönd sinn frá mér og láti ekki skelfing sína hræða mig,35þá vil ég tala og eigi óttast hann, því að svo er mér eigi farið hið innra.

9.2 Hvernig getur maðurinn … ? Job 4.17+
9.3 Fara í mál við Guð Job 9.32; 13.18; 22.4; 33.13; sbr Jes 41.1; Mík 6.1-8
9.5 Flytur fjöll Jes 13.13; Slm 114.7; Heb 12.26
9.7 Skipar sólinni Jós 10.12-14; Jl 2.10; Am 8.9
9.8 Þenur út himininn Jes 40.22; Jer 10.12; Slm 104.2
9.9 Skapari stjarnanna Job 38.31-32; Am 5.8
9.10 Ekki verða könnuð Job 5.9+
9.11 Ég sé hann ekki Job 23.3,8-9; 35.14
9.12 Hver hindrar Guð? Job 11.10; SSal 12.12
9.13 Rahab Job 7.12; 26.12; Jes 51.9; Slm 89.11
9.14 Svara Guði Job 9.32; Jes 29.16; Préd 6.10; Róm 9.20
9.17 Í storminum Job 38.1; 40.6
9.18 Lætur ekki Job 7.19+
9.22 Ber að sama brunni Préd 9.2-3
9.23 Hæðir sbr Job 8.20
9.24 Guð styður guðlausa sbr Job 8.20
9.25 Eins og hraðboði Job 7.6
9.28 Sýknar mig ekki sbr Job 8.6
9.30 Þvo syndir Jes 1.18; Jer 2.22; Slm 51.9
9.32 Svara Guði Job 9.14+ – saman fyrir rétt Job 9.3+
9.34 Ótti Job 6.4+