1Kalla þú bara! Ætli nokkur svari þér? og til hvers af hinum heilögu viltu snúa þér?2Því að gremjan drepur heimskingjann, og öfundin deyðir einfeldninginn.3Ég hefi að vísu séð heimskingjann festa djúpar rætur, en varð þó skyndilega að formæla bústað hans.4Börn hans eru fjarlæg hjálpinni, þau eru troðin niður í hliðinu, og enginn bjargar.5Uppskeru hans etur hinn hungraði, já, jafnvel inn í þyrna sækir hann hana, og hinir þyrstu þrá eigur hans.6Því að óhamingjan vex ekki upp úr moldinni, og mæðan sprettur ekki upp úr jarðveginum.7Nei, maðurinn fæðist til mæðu, eins og neistarnir fljúga upp í loftið.8En ég mundi snúa mér til hins Almáttka og bera málefni mitt upp fyrir Guði,9honum, sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega, dásemdarverk, sem eigi verða talin,10sem gefur regn á jörðina og sendir vatn yfir vellina11„til þess að hefja hina lítilmótlegu hátt upp, og til þess að hinir sorgbitnu öðlist mikla sælu;“12honum, sem gjörir að engu áform hinna lævísu, svo að hendur þeirra koma engu varanlegu til leiðar,13sem veiðir vitringana í slægð þeirra, svo að ráð hinna slungnu kollsteypast.14Á daginn reka þeir sig á myrkur, og sem um nótt þreifa þeir fyrir sér um hádegið.15Þannig frelsar hann munaðarleysingjann úr gini þeirra og fátæklinginn undan valdi hins sterka.16Þannig er von fyrir hinn vesala, og illskan lokar munni sínum.17Sjá, sæll er sá maður, er Guð hirtir, lítilsvirð því eigi ögun hins Almáttka.18Því að hann særir, en bindur og um, hann slær, og hendur hans græða.19Úr sex nauðum frelsar hann þig, og í hinni sjöundu snertir þig ekkert illt.20Í hallærinu frelsar hann þig frá dauða og í orustunni undan valdi sverðsins.21Fyrir svipu tungunnar ert þú falinn og þarft ekkert að óttast, er eyðingin kemur.22Að eyðing og hungri getur þú hlegið, og villidýrin þarft þú ekki að óttast.23Því að þú ert í bandalagi við steina akurlendisins, og dýr merkurinnar eru í sátt við þig.24Og þú munt komast að raun um, að tjald þitt er heilt, þú kannar bústað þinn og saknar einskis.25Og þú munt komast að raun um, að niðjar þínir eru margir og afsprengi þitt sem gras á jörðu.26Í hárri elli munt þú ganga inn í gröfina, eins og kornbundinið er látið í hlöðuna á sínum tíma.27Sjá, þetta höfum vér útgrundað, þannig er það. Heyr þú það og set það vel á þig!

5.1 Hin heilögu Job 15.15; Sak 14.5; Dan 4.14
5.7 Borinn til böls 1Mós 3.17-19
5.9 Ómæld verk Job 9.10; Slm 40.6
5.11 Guð upphefur Job 42.10; 1Sam 2.7-8; Lúk 1.52-53
5.13 Geldur slóttugum … Job 37.24; 1Kor 3.19
5.14 Lenda í myrkri Okv 4.19; Matt 27.45 og hlst.; 1Jóh 2.9-11
5.17 Guð leiðbeinir 5Mós 8.5; Opb 3.19
5.18 Guð særir en bindur um Job 36.15; 5Mós 32.39; Hós 6.1
5.20 Verndar í hallæri Slm 33.19 – verndar gegn sverði Jer 39.18
5.21 Ver gegn rógburði Jes 54.17; Slm 12; 31.21
5.23 Bandalag við steina 2Kon 3.19,25; Jes 5.2 – og dýr merkurinnar Jes 11.6-8; Esk 34.25; Hós 2.20
5.25 Margir niðjar 5Mós 28.4,11
5.26 Njóta heilsu alla ævi Job 42.17