1Þá svaraði Job og sagði:2Hlustið gaumgæfilega á mál mitt, og látið það vera huggun af yðar hendi.3Unnið mér þess, að ég tali, og þegar ég hefi talað út, þá mátt þú hæða.4Er ég þá að kvarta yfir mönnum? eða hví skyldi ég ekki vera óþolinmóður?5Lítið til mín og undrist og leggið hönd á munn!6Já, þegar ég hugsa um það, skelfist ég, og hryllingur fer um mig allan.7Hvers vegna lifa hinir óguðlegu, verða gamlir, já, magnast að krafti?8Niðjar þeirra dafna fyrir augliti þeirra hjá þeim og afsprengi þeirra fyrir augum þeirra.9Hús þeirra eru óhult og óttalaus, og hirtingarvöndur Guðs kemur ekki niður á þeim.10Boli þeirra kelfir og kemur að gagni, kýr þeirra ber og lætur ekki kálfi.11Þeir hleypa út börnum sínum eins og lambahjörð, og smásveinar þeirra hoppa og leika sér.12Þeir syngja hátt undir með bumbum og gígjum og gleðjast við hljóm hjarðpípunnar.13Þeir eyða dögum sínum í velgengni og fara til Heljar í friði,14og þó sögðu þeir við Guð: Vík frá oss að þekkja þína vegu girnumst vér eigi.15Hvað er hinn Almáttki, að vér skyldum dýrka hann, og hvað skyldi það stoða oss að leita hans í bæn?16Sjá, gæfa þeirra er ekki á þeirra valdi, ráðlag óguðlegra er fjarri mér.17Hversu oft slokknar þá á lampa hinna óguðlegu, og hversu oft kemur ógæfa þeirra yfir þá? Hversu oft deilir Guð þeim hlutskiptum í reiði sinni?18Hversu oft verða þeir sem strá fyrir vindi og sem sáðir, er stormurinn feykir burt?19Guð geymir börnum hans óhamingju hans. Endurgjaldi hann honum sjálfum, svo að hann fái að kenna á því!20Sjái augu sjálfs hans glötun hans, og drekki hann sjálfur af reiði hins Almáttka!21Því að hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann, þegar tala mánaða hans er fullnuð?22Ætla menn að kenna Guði visku eða dæma hinn hæsta?23Einn deyr í mestu velgengni, fullkomlega áhyggjulaus og ánægður,24trog hans eru full af mjólk, og mergurinn í beinum hans er safamikill.25Og annar deyr með beiskju í huga og hefir aldrei notið hamingjunnar.26Þeir hvíla báðir í duftinu, og maðkarnir hylja þá.27Sjá, ég þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi.28Þegar þér segið: Hvar er hús harðstjórans og hvar er tjaldið, sem hinir óguðlegu bjuggu í?29hafið þér þá ekki spurt vegfarendur, og sönnunum þeirra munuð þér ekki hafna30að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan.31Hver setur honum breytni hans fyrir sjónir? Og þegar hann gjörir eitthvað, hver endurgeldur honum?32Og til grafar er hann borinn og vakað er yfir legstaðnum.33Moldarhnausar dalsins liggja mjúklega ofan á honum, og eftir honum flykkjast allir menn, eins og óteljandi eru á undan honum farnir.34Og hvernig megið þér þá hugga mig með hégóma, og andsvör yðar sviksemin ein er eftir!

21.5 Leggja hönd á munn Job 29.9; 40.4; Mík 7.16; Sír 5.12
21.7 Guðleysingjar lifa Job 12.6+
21.11 Dansa sbr Sak 8.5
21.12 Trommur og sítar Jes 5.12; 14.11; Am 6.5
21.13 Til undirheima Job 24.24; Lúk 12.20
21.14 Farðu frá oss Job 22.17; Jes 30.11; Jer 2.31 – Viljum ekki þekkja … Mal 3.14; sbr Slm 16.11
21.17 Lampi Job 18.5+
21.18 Sem hálmur Slm 1.4
21.19 Misgjörðir feðranna 2Mós 20.5-6 og hlst.; sbr 5Mós 24.16; Esk 18.2-4
21.21 Eftir dauðann 2Kon 20.19
21.25 Bitur í bragði Job 7.11+
21.26 Hvíla í mold Job 3.19+
21.30 Illmenni þyrmt Job 24.22-23; Slm 73.5; Róm 9.22
21.32 Borinn til grafar Lúk 16.22
21.34 Hugga Job 15.11+