1Hver er þessi, sem kemur frá Edóm, í hárauðum klæðum frá Bosra? Þessi hinn tigulega búni, sem gengur fram hnarreistur í mikilleik máttar síns? Það er ég, sá er mæli réttlæti og mátt hefi til að frelsa.2Hví er rauð skikkja þín, og klæði þín eins og þess, er treður ber í vínþröng?3Vínlagarþró hefi ég troðið, aleinn, af þjóðunum hjálpaði mér enginn. Ég fótum tróð þá í reiði minni, marði þá sundur í heift minni. Þá hraut lögur þeirra á klæði mín, og skikkju mína ataði ég alla.4Hefndardagur var mér í hug, og lausnarár mitt er komið.5Ég litaðist um, en enginn var til að hjálpa, mig undraði, að enginn skyldi aðstoða mig. En þá hjálpaði mér armleggur minn, og heift mín aðstoðaði mig.6Ég tróð þjóðirnar í reiði minni og marði þær sundur í heift minni og lét löginn úr þeim renna á jörðina.7Ég vil víðfrægja hinar mildilegu velgjörðir Drottins, syngja honum lof fyrir allt það, sem hann hefir við oss gjört, og hina miklu gæsku hans við Ísraels hús, er hann hefir auðsýnt þeim af miskunn sinni og mikilli mildi.8Hann sagði: Vissulega eru þeir minn lýður, börn, sem ekki munu bregðast! Og hann varð þeim frelsari.9Ávallt þegar þeir voru í nauðum staddir, kenndi hann nauða, og engill auglitis hans frelsaði þá. Af elsku sinni og vægðarsemi endurleysti hann þá, hann tók þá upp og bar þá alla daga hinna fyrri tíða.10En þeir gjörðust mótsnúnir og hryggðu heilagan anda hans. Gjörðist hann þá óvinur þeirra og barðist sjálfur í móti þeim.11Þá minntist lýður hans hinna fyrri tíða, þá er Móse var á dögum: Hvar er hann, sem leiddi þá upp úr hafinu ásamt hirði hjarðar sinnar? Hvar er hann, sem lét heilagan anda sinn búa mitt á meðal þeirra?12Hann sem lét dýrðarsamlegan armlegg sinn ganga Móse til hægri handar, hann sem klauf vötnin fyrir þeim til þess að afreka sér eilíft nafn,13hann sem lét þá ganga um djúpin, eins og hestur gengur um eyðimörk, og þeir hrösuðu ekki?14Eins og búféð, sem fer ofan í dalinn, færði andi Drottins þá til hvíldar. Þannig hefir þú leitt lýð þinn til þess að afreka þér dýrðarsamlegt nafn.15Horf þú af himni ofan og lít niður frá hinum heilaga og dýrðarsamlega bústað þínum! Hvar er nú vandlæti þitt og máttarverk þín? Þín viðkvæma elska og miskunnsemi við mig hefir dregið sig í hlé!16Sannlega ert þú faðir vor, því að Abraham þekkir oss ekki og Ísrael kannast ekki við oss. Þú, Drottinn, ert faðir vor, Frelsari vor frá alda öðli er nafn þitt.17Hví lést þú oss, Drottinn, villast af vegum þínum, hví lést þú hjarta vort forherða sig, svo að það óttaðist þig ekki? Hverf aftur fyrir sakir þjóna þinna, fyrir sakir ættkvísla arfleifðar þinnar!18Um skamma stund fékk fólk þitt hið heilaga fjall þitt til eignar, en nú hafa óvinir vorir fótum troðið helgidóm þinn.19Vér erum orðnir sem þeir, er þú um langan aldur hefir ekki drottnað yfir, og eins og þeir, er aldrei hafa nefndir verið eftir nafni þínu.

63.1 Edóm, Bosra Jes 34.5-6+ ; Jer 49.7-22; Esk 25.12-14; 35.1-36.5; Ób 1-18; Mal 1.2-5 – mátt Jes 49.25; 51.22
63.2 Rauð skikkja Opb 19.13 – víntroðsla Jer 25.30; Jl 3.18; Hlj 1.15; Opb 14.19-20; 19.15
63.3 Enginn Jes 41.28+
63.4 Hefndardagur Jes 34.8; 61.2 – lausnarár Jes 41.14+
63.5 Enginn Jes 41.14+ ; 59.16 – armur Jes 40.10+
63.6 Heift sbr Jer 25.15+
63.7 Velgjörðir Drottins Slm 13.6; 89.2
63.8 Þjóð mín, börn 2Mós 4.22-23; 5Mós 14.1-2; Jer 3.14,19,22; 31.9,20; Hós 2.1; 11.1; Ssal 18.13 – Drottinn frelsar Jes 43.3+
63.9 Í þrengingum 1Sam 26.24; 2Sam 4.9; 1Kon 1.29; Slm 54.9 – í kærleika sínum Jer 31.3; Hós 3.1 – miskunn Mal 3.17 – bar þá Jes 46.3-4
63.10 Uppreisn 4Mós 20.10 – misbuðu heilögum anda Ef 4.30
63.11 Hirði 4Mós 27.15-20; Heb 13.20 – hjarðar sinnar Slm 77.21 – heilagan anda sinn 4Mós 11.17; sbr Jes 42.1
63.12 Armur Jes 40.10+ – klauf hafið 2Mós 14.16 – ævarandi frægaðar Jes 55.13
63.13 Um djúpið Jes 51.10
63.14 Eins og búfé Slm 77.21
63.15 Frá himni Slm 80.15 – ákafi þinn Jes 59.17
63.16 Faðir vor 5Mós 32.6; Jes 64.7; Matt 6.9; 23.9 – Abraham Jes 41.8 – frelsari vor Jes 41.14+
63.17 Hvers vegna? Slm 80.13 – vegi þínum Jes 64.4 – arfleið þín 5Mós 32.9 – snúðu aftur Slm 80.15; 90.13
63.18 Helgidóm Jes 64.10
63.19 Kenndir 5Mós 28.10; Jer 14.9 – sviptir himninum sundur Mrk 1.10; sbr Mrk 15.38 – fjöllin nötruðu Mík 1.4; Hab 3.6,10; Slm 18.8; sbr Jes 54.10 –