1Heyrið, allir þér sem þyrstir eruð, komið hingað til vatnsins, og þér sem ekkert silfur eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaupið korn án silfurs og endurgjaldslaust bæði vín og mjólk!2Hví reiðið þér silfur fyrir það, sem ekki er brauð, og gróða yðar fyrir það, sem ekki er til saðnings? Hlýðið á mig, þá skuluð þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti!3Hneigið eyru yðar og komið til mín, heyrið, svo að sálir yðar megi lifna við! Ég vil gjöra við yður eilífan sáttmála, Davíðs órjúfanlega náðarsáttmála.4Sjá, ég hefi gjört hann að vitni fyrir þjóðirnar, að höfðingja og stjórnara þjóðanna.5Sjá, þú munt kalla til þín þjóð, er þú þekkir ekki, og fólk, sem ekki þekkir þig, mun hraða sér til þín, sakir Drottins Guðs þíns og vegna Hins heilaga í Ísrael, af því að hann hefir gjört þig vegsamlegan.6Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur!7Hinn óguðlegi láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum sínum og snúi sér til Drottins, þá mun hann miskunna honum, til Guðs vors, því að hann fyrirgefur ríkulega.8Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir segir Drottinn.9Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.10Því eins og regn og snjór fellur af himni ofan og hverfur eigi þangað aftur, fyrr en það hefir vökvað jörðina, gjört hana frjósama og gróandi og gefið sáðmanninum sæði og brauð þeim er eta,11eins er því farið með mitt orð, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyrr en það hefir framkvæmt það, sem mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól því að framkvæma.12Já, með gleði skuluð þér út fara, og í friði burt leiddir verða. Fjöll og hálsar skulu hefja upp fagnaðarsöng fyrir yður, og öll tré merkurinnar klappa lof í lófa.13Þar sem áður voru þyrnirunnar, mun kýpresviður vaxa, og þar sem áður var lyng, mun mýrtusviður vaxa. Þetta mun verða Drottni til lofs og eilífs minningarmarks, sem aldrei mun afmáð verða.

55.1 Þyrstir Jes 41.17; Matt 5.6; Jóh 4.14; 7.37; Opb 21.6; 22.17 – komið, etið og drekkið Okv 9.5; Sír 24.19-21 – endurgjaldslaust Jes 45.13; 52.3 – vín og mjólk Jl 4.18; sbr 2Mós 3.8; Okv 9.1-2; 1Pét 2.2
55.2 Ekki seður 5Mós 8.3; Jóh 6.27 – Drottinn býður til veislu Jes 25.6-7; Slm 36.9-10
55.3 Leggja eyrun við og lifa 5Mós 30.15-16; sbr 8.1; Esk 20.11,21 – ævarandi sáttmála Jes 61.8; Jer 32.40; Esk 16.60; 37.26 – miskunn við Davíð Post 13.34
55.5 Til þín Jes 2.2-4; 49.7 – Guðs þíns Jes 51.15 – Hins heilaga í Ísrael Jes 1.4+ – gert vegsamlegan Jes 44.23; 49.3
55.6 Leitið Drottins Am 5.4+ ; Slm 9.11+ – er að finna Jer 29.13-14; sbr Jes 49.8 – nálægur Jes 49.8; 5Mós 4.7; Slm 145.18
55.7 Láti af breytni sinni Jer 18.11; Esk 33.11; 2Kro 7.14 – snúi sér Jer 31.18; Hós 6.1+ ; Hlj 5.21 – fyrirgefur ríkulega 2Mós 34.6-7; Lúk 15.20
55.8 Mínar hugsanir Job 11.7-9; Róm 11.3; sbr Jer 29.11
55.9 Himininn … jörðin Slm 103.11 – hugsanir Guðs Slm 92.6
55.10 Regn Slm 65.10-11; 104.13-15
55.11 Orð af munni mínum 5Mós 8.3; Jer 23.16 – framkvæmir Jes 44.26; 46.10-11; 48.13; Slm 33.6,9; sbr Jer 29.10 – Guð sendir orð sitt Slm 107.20; 147.18; sbr Jóh 1.9,30
55.12 Fagnandi Jes 35.10; 51.3,11 – fagnaðaróp Jes 44.23+ ; sbr 54.1+ – fjöll Slm 96.12; 98.8 – klappa saman lófum Slm 47.2
55.13 Þyrnirunnar Jes 5.6; 1Mós 3.18 – kýpresviður, myrtusviður Jes 41.19; Sak 1.8-11 – tákn Jes 56.5; 63.12; Jer 32.20