1Gangið nær, þér þjóðir, að þér megið heyra! Hlýðið til, þér lýðir! Heyri það jörðin og allt, sem á henni er, jarðarkringlan og allt, sem á henni vex!2Drottinn er reiður öllum þjóðunum og gramur öllum þeirra her. Hann hefir vígt þær dauðanum og ofurselt þær til slátrunar.3Vegnum mönnum þeirra er burt kastað, og hrævadaunn stígur upp af líkum þeirra, og fjöllin renna sundur af blóði þeirra.4Allur himinsins her hjaðnar, og himinninn vefst saman eins og bókfell. Allur hans her hrynur niður, eins og laufið fellur af vínviði og visin blöð af fíkjutré.5Sverð mitt hefir drukkið sig drukkið á himnum, nú lýstur því niður til dóms yfir Edóm, þá þjóð, sem ég hefi vígt dauðanum.6Sverð Drottins er alblóðugt, löðrandi af feiti, af blóði lamba og kjarnhafra, af nýrnamör úr hrútum, því að Drottinn heldur fórnarveislu í Bosra og slátrun mikla í Edómlandi.7Villinautin hníga með þeim, og ungneytin með uxunum. Land þeirra flýtur í blóði, og jarðvegurinn er löðrandi af feiti.8Því að nú er hefndardagur Drottins, endurgjaldsárið, til að reka réttar Síonar.9Lækirnir skulu verða að biki og jarðvegurinn að brennisteini, landið skal verða að brennandi biki.10Það skal eigi slokkna nætur né daga, reykurinn af því skal upp stíga um aldur og ævi. Það skal liggja í eyði frá einni kynslóð til annarrar, enginn maður skal þar um fara að eilífu.11Pelíkanar og stjörnuhegrar skulu fá það til eignar, náttuglur og hrafnar búa þar. Hann mun draga yfir það mælivað auðnarinnar og mælilóð aleyðingarinnar.12Tignarmenn landsins kveðja þar eigi til konungskosningar, og allir höfðingjarnir verða að engu.13Í höllunum munu þyrnar upp vaxa og klungrar og þistlar í víggirtum borgunum. Það mun verða sjakalabæli og strútsfuglagerði.14Urðarkettir og sjakalar skulu koma þar saman og skógartröll mæla sér þar mót. Næturgrýlan ein skal hvílast þar og finna sér þar hæli.15Stökkormurinn skal búa sér þar hreiður og klekja þar út, verpa þar eggjum og unga þeim út í skugganum. Gleður einar skulu flykkjast þar hver til annarrar.16Leitið í bók Drottins og lesið: Ekkert af þessum dýrum vantar, ekkert þeirra saknar annars. Því að munnur Drottins hefir svo um boðið, og það er andi hans, sem hefir stefnt þeim saman.17Hann hefir sjálfur kastað hlutum fyrir þau, og hönd hans hefir skipt landinu milli þeirra með mælivað. Þau munu eiga það um aldur og ævi og búa þar frá einni kynslóð til annarrar.

34.1 Þjóðirnar kallaðar saman Jes 41.1; 49.1; Am 3.9; Mík 1.2
34.2 Drottinn reiður þjóðum Jes 30.27-28
34.3 Líkum burt kastað Jes 5.25; 14.19-20
34.4 Himinsins her Jes 24.21 – vefst saman Jes 24.23 – himininn eins og bókfell Opb 6.12-14
34.5 Sverð Drottins Jes 27.1; 66.16; Jer 12.12; 46.10; Esk 21.14-22 – gegn Edóm Jes 63.1-6; Jl 4.19; Slm 137.7; Hlj 4.21-22
34.6 Bosra Jes 63.1; Jer 49.13,22; Am 1.12 – slátrunin mikla Jer 46.10; Esk 37.17-20; Sef 1.7
34.8 Endurgjaldsárið Jes 35.4; 59.18; 61.2; 63.4; 66.6; Jer 50.28; 51.6,11
34.11 Bústaður villidýra Jes 13.21+ – mælivaður, lóð Jes 28.17; 2Kon 21.13 – auðn 1Mós 1.2
34.13 Þyrnar sbr Jes 5.6+
34.14 Óvættir Jes 13.21+
34.16 Bók Drottins Jes 29.18; Opb 20.12+