1Drottinn, þú ert minn Guð! Ég vil vegsama þig, lofa nafn þitt! Þú hefir framkvæmt furðuverk, löngu ráðin ráð, trúfesti og sannleika.2Þú hefir gjört bæi að grjóthrúgu, víggirtar borgir að hruninni rúst. Hallir óvinanna eru eigi framar bæir, þær skulu aldrei verða reistar aftur.3Þess vegna munu harðsnúnar þjóðir heiðra þig og borgir ofríkisfullra þjóða óttast þig.4Þú varst vörn lítilmagnans, vörn hins vesala í nauðum hans, skjól í skúrunum, hlíf í hitanum. Þótt andgustur ofríkismannanna sé eins og kuldaskúrir,5glaumkæti óvinanna eins og sólarbreiskja í ofþurrki, þá sefar þú sólarbreiskjuna með skugganum af skýinu, og sigursöngur ofríkismannanna hljóðnar.6Drottinn allsherjar mun á þessu fjalli búa öllum þjóðum veislu með krásum, veislu með dreggjavíni, mergjuðum krásum og skírðu dreggjavíni.7Og hann mun afmá á þessu fjalli skýlu þá, sem hylur alla lýði, og þann hjúp, sem breiddur er yfir allar þjóðir.8Hann mun afmá dauðann að eilífu, og hinn alvaldi Drottinn mun þerra tárin af hverri ásjónu, og svívirðu síns lýðs mun hann burt nema af allri jörðinni, því að Drottinn hefir talað það.9Á þeim degi mun sagt verða: Sjá, þessi er vor Guð, vér vonuðum á hann, að hann mundi frelsa oss. Þessi er Drottinn, vér vonuðum á hann. Fögnum og gleðjumst yfir hjálpræði hans!10Hönd Drottins mun hvíla yfir þessu fjalli, en Móab verða fótum troðinn þar sem hann er, eins og hálmur er troðinn niður í haugpolli.11Og hann mun breiða út hendur sínar niðri í pollinum, eins og sundmaður gjörir til þess að taka sundtökin. En hann mun lægja dramb hans þrátt fyrir brögð handa hans.12Vígi þinna háu múra mun hann að velli leggja, steypa því niður og varpa til jarðar, ofan í duftið.

25.1 Guð minn Slm 22.11+ – lofa nafn þitt Jes 12.1,4; Slm 118.28 – furðuverk Jes 28.29
25.2 Hrokafullra Jer 51.51; Esk 7.21; 11.9; 28.7,10; 30.12; 31.12; Ób 1; Hlj 5.2 – aldrei endurreist Jes 13.20
25.3 Ofstopafullra þjóða Esk 28.7; 30.11; 31.12; 32.12 – heiðingjar óttast Drottinn Jes 24.15-16
25.4 Vörn lítilmagnans Jes 26.1; 29.19-20
25.6 Veisla 2Mós 24.11; 5Mós 16.13-15; 1Sam 9.13; Okv 9.5; Neh 8.10-12; Matt 8.11; 22.2-10; Lúk 14.15-24; Opb 19.9 – öllum þjóðum Jes 2.2-3; 11.9-10; 18.7; 60.11,14; Sak 8.20-22; 14.16
25.7 Hula 1) sem blindar 1Kon 19.13; Jes 29.10-12; 2Kor 3.13-18 2) merki sorgar 2Sam 15.30; 19.4; Jer 14.3-4; Est 6.12 – svipt burt sbr Lúk 2.30-32
25.8 Afmá dauðann Jes 26.19; 1Kor 15.54 – þerra tárin Slm 116.8; Opb 21.4
25.9 Guð vor v.1; Slm 48.15
25.10 Móab Jes 15.1+ ; 16.8-10 – fótum troðinn Mík 7.10
25.11 Hroki Móabs Jes 16.6; Jer 48.29 – lægja Jes 2.11
25.12 Brjóta niður Jes 26.5