1Orðið sem Drottinn talaði um Babýlon, um land Kaldea, fyrir munn Jeremía spámanns.2Kunngjörið það meðal þjóðanna, boðið það og setjið upp merki! Boðið það, dyljið það ekki! Segið: Babýlon er unnin! Bel er orðin til skammar! Mardúk niður brotinn! Líkneskin eru orðin til skammar, skurðgoðin niður brotin!3Þjóð kemur á móti henni úr norðurátt, hún gjörir land hennar að auðn, svo að enginn maður býr þar framar, bæði menn og skepnur flýja, fara burt.4Á þeim dögum og á þeim tíma segir Drottinn munu Ísraelsmenn koma, ásamt Júdamönnum. Grátandi munu þeir ganga og leita Drottins, Guðs síns.5Þeir spyrja eftir Síon, þangað stefna þeir. Þeir koma og ganga Drottni á hönd með eilífum sáttmála, sem ekki mun gleymast.6Þjóð mín var sem týndir sauðir, hirðar þeirra leiddu þá afvega, tældu þá upp í fjöll, þeir reikuðu af hálsi á hæð, gleymdu bóli sínu.7Allir, sem hittu þá, átu þá, og mótstöðumenn þeirra sögðu: Vér bökum oss enga sekt, vegna þess að þeir syndguðu gegn Drottni, haglendi réttlætisins og von feðra þeirra, Drottni.8Flýið burt úr Babýlon og farið burt úr landi Kaldea og verið sem hafrar á undan hjörðinni.9Sjá, ég læt upp rísa safn mikilla þjóða frá norðlægum löndum, er fer á móti Babýlon. Þær munu skipa sér móti henni. Þaðan mun hún unnin verða. Örvar þeirra eru eins og giftusöm hetja, er ekki hverfur aftur við svo búið.10Kaldea skal verða að herfangi, allir, sem hana ræna, fá nægju sína segir Drottinn.11Gleðjist, já fagnið, þér ránsmenn eignar minnar, já stökkvið eins og þreskjandi kvíga og hvíið eins og stóðhestar.12Móðir yðar verður mjög til skammar, hún, sem ól yður, má fyrirverða sig. Sjá, hún er hin síðasta meðal þjóðanna, eyðimörk, þurrt land, heiði!13Vegna reiði Drottins mun hún verða óbyggð og verða algjörlega að auðn. Hvern, sem fer fram hjá Babýlon, mun hrylla við, og hann mun hæðast að öllum áföllunum, sem hún hefir orðið fyrir.14Skipið yður niður kringum Babýlon, allir þér bogmenn! Skjótið á hana, sparið ekki örvarnar, því að gegn Drottni hefir hún syndgað.15Ljóstið upp ópi hringinn í kringum hana: Hún hefir gefist upp, stoðir hennar eru fallnar, múrar hennar niður rifnir, það er hefnd Drottins. Hefnið yðar á henni. Gjörið við hana eins og hún hefir til gjört.16Afmáið í Babýlon sáðmanninn og þann, er sigðina ber um uppskerutímann. Fyrir hinu vígfreka sverði munu þeir hver og einn hverfa til sinnar þjóðar og flýja hver og einn til síns lands.17Ísrael er sem burtflæmdur sauður, er ljón hafa elt: Fyrst át Assýríukonungur hann og nú síðast hefir Nebúkadresar Babelkonungur nagað bein hans.18Fyrir því segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð, svo: Sjá, ég vitja Babelkonungs og lands hans, eins og ég vitjaði Assýríukonungs.19Ég leiði Ísrael aftur heim í haglendi sitt, og hann skal vera á beit á Karmel og í Basan og seðja hungur sitt á Efraím-fjöllum og í Gíleað.20Á þeim dögum og á þeim tíma segir Drottinn mun leitað verða að sekt Ísraels, en hún er ekki framar til, og að syndum Júda, en þær finnast ekki, því að ég mun fyrirgefa þeim, sem ég læt eftir verða.21Far móti Maratajím-héraði og gegn íbúum Pekod. Eyð þeim og helga þá banni segir Drottinn og gjör með öllu svo sem ég hefi fyrir þig lagt.22Heyr! Stríð í landinu og mikil eyðilegging!23Hversu er hamarinn, sem laust alla jörðina, höggvinn af skafti og sundurbrotinn! Hversu er Babýlon orðin að skelfingu meðal þjóðanna!24Ég lagði snöru fyrir þig Babýlon, og þú festist og vissir ekki af. Þú náðist og þú varst gripin, því að þú hafðir dirfst að berjast gegn Drottni.25Drottinn hefir lokið upp vopnabúri sínu og tekið út vopn reiði sinnar, því að herrann, Drottinn allsherjar, hefir verk með höndum í landi Kaldea.26Komið móti henni úr öllum áttum, ljúkið upp hlöðum hennar, kastið henni eins og bundinum í bing og helgið hana banni! Látið engar leifar af henni eftir verða!27Drepið alla uxa hennar, þeir skulu hníga niður til slátrunar. Vei þeim, því að dagur þeirra er kominn, hegningartími þeirra.28Heyr! Hér eru menn, sem flúið hafa og komist undan frá Babýlon til þess að boða í Síon að Drottinn, Guð vor, hefnir, hefnir fyrir musteri sitt.29Bjóðið skyttum út gegn Babýlon, öllum þeim sem benda boga! Setjið herbúðir allt í kringum hana! Látið engan komast undan! Gjaldið henni eftir verkum hennar! Gjörið við hana að öllu svo sem hún hefir til gjört, því að hún hefir ofmetnast gegn Drottni, gegn Hinum heilaga í Ísrael.30Fyrir því skulu æskumenn hennar falla á torgunum og allir hermenn hennar farast á þeim degi segir Drottinn.31Sjá, ég ætla að finna þig, Drambsemi segir herrann, Drottinn allsherjar því að dagur þinn er kominn, hegningartími þinn.32Nú skal Drambsemi hrasa og falla, og enginn skal reisa hana á fætur, og ég mun leggja eld í borgir hennar, og hann skal eyða öllu því, sem umhverfis hana er.33Svo segir Drottinn allsherjar: Kúgaðir eru Ísraelsmenn og Júdamenn allir saman. Allir þeir, er þá hafa herleitt, halda þeim föstum, vilja ekki láta þá lausa.34En lausnari þeirra er sterkur, Drottinn allsherjar heitir hann. Hann mun reka mál þeirra með dugnaði, til þess að hann speki jörðina, en óspeki Babýlonsbúa.35Sverð komi yfir Kaldea segir Drottinn og yfir Babýlonsbúa og yfir höfðingja hennar og vitringa!36Sverð komi yfir þvaðrarana, svo að þeir standi eins og afglapar! Sverð komi yfir kappa hennar, svo að þeir verði huglausir!37Sverð komi yfir hesta hennar og vagna og yfir allan þjóðblendinginn, sem í henni er, svo að þeir verði að konum! Sverð komi yfir fjársjóðu hennar, svo að þeim verði rænt!38Sverð komi yfir vötn hennar, svo að þau þorni! Því að skurðgoðaland er það, og þeir láta sem vitfirringar með skelfingar-líkneskin.39Fyrir því munu urðarkettir búa hjá sjökulum, og strútsfuglar búa í henni, og hún skal ekki framar byggð vera að eilífu, né þar verða búið frá kyni til kyns.40Eins og Guð umturnaði Sódómu og Gómorru og nágrannaborgunum segir Drottinn svo skal og enginn maður búa þar né nokkurt mannsbarn hafast við í henni.41Sjá, lýður kemur úr norðurátt og mikil þjóð og voldugir konungar rísa upp á útkjálkum jarðar.42Þeir bera boga og skotspjót, þeir eru grimmir og sýna enga miskunn, háreysti þeirra er sem hafgnýr, og þeir ríða hestum, búnir sem hermenn til bardaga gegn þér, dóttirin Babýlon.43Babelkonungur hefir fengið fregnir af þeim, hendur hans eru magnlausar, angist hefir gripið hann, kvalir, eins og jóðsjúka konu.44Sjá, eins og ljón, sem kemur út úr kjarrinu á Jórdanbökkum og stígur upp á sígrænt engið, svo mun ég skyndilega reka þá burt þaðan, og hvern þann, sem útvalinn er, mun ég setja yfir hana. Því að hver er minn líki? Hver vill stefna mér? Hver er sá hirðir, er fái staðist fyrir mér?45Heyrið því ráðsályktun Drottins, er hann hefir gjört viðvíkjandi Babýlon, og þær fyrirætlanir, er hann hefir í huga viðvíkjandi landi Kaldea: Sannarlega munu þeir draga þá burt, hina lítilmótlegustu úr hjörðinni. Sannarlega skal haglendið verða agndofa yfir þeim.46Af ópinu: Babýlon er unnin nötrar jörðin, og neyðarkvein heyrist meðal þjóðanna.

50.1 Babýlon Jer 25.26; Jes 13-14; 21.1-10; 47.1-15; 48.14; Slm 137.8-9; Opb 18
50.2 Babýlon er sigruð Jer 50.24; 51.31; Jes 21.9 – Bel Jer 51.44; Jes 46.1 – skurðgoð Jer 50.38; 3Mós 26.1; 1Kon 15.12; 21.26; 2Kon 21.11; Jes 21.9; Esk 6.6
50.3 Úr norðri Jer 50.9,41; 1.14+ – engin framar Jer 9.10
50.4 Ísraelsmenn og Júdamenn Jer 3.18; Jes 11.13; Esk 37.15-28; Hós 2.2; Sak 9.13; 10.6 – grátandi Jer 31.9; Hós 3.5 – leita Drottins Jer 2.21-25; Slm 9.11+
50.5 Til Síon Jer 31.6 – ævarandi sáttmáli Jer 32.40+
50.6 Villuráfandi hjörð Jer 50.17; 4Mós 27.17; 1Kon 22.17, Jes 53.6, Esk 34.4-5; Slm 119.176; Matt 10.6; Lúk 15.6 – afvegaleiddir Jer 23.1; Sak 10.2
50.7 Rétt haglendi Jer 31.23 – von Jer 14.8
50.8 Farið frá Babýlon Jer 50.16; 51.6,45; Jes 48.20+; Sak 2.10-11; sbr Mrk 13.14 og hlst. – forystysauðir Jóh 10.4
50.13 Vegna heiftar Drottins Jer 4.26; 10.10; 12.13; 25.37; Jes 13.13 – hæðast að Jer 18.16+
50.15 Óp Jer 4.19; 49.2; Jós 6.5,20; Jes 44.23 – hefnd Drottins Jer 5.9; 51.6 – gjalda líku líkt Jer 50.29+ ; Opb 18.6
50.17 Nebúkadresar Jer 21.2+
50.18 Eins og Assýríukonung Jes 10.12
50.19 Í haglendi sitt Jer 23.3+ – Karmel og Basan Jes 33.9+
50.20 Sektin horfin Jer 3.22 – skil eftir Jes 4.3+ – fyrirgefa Jer 31.34; Jes 33.24
50.21 Pekod Esk 23.23 – helga banni Jer 50.26-27; 51.3
50.23 Kylfan sbr Jer 51.20; Jes 10.5; 14.5 – Babýlon að hryggðarmynd Jer 50.3,13; Opb 18.19
50.27 Tími uppgjörs Jer 8.12+
50.28 Greina frá á Síon Jer 51.10
50.29 Gjaldið verk hennar Jer 50.15; 25.14+ – hreykti sér Jer 48.26,42 – Hinn heilagi Jes 1.4+
50.31 Fer gegn þér Jer 21.13+
50.34 Drottinn hersveitanna Jer 46.18+ – rekur rétt Jer 51.36; Jes 51.22
50.36 Spáprestar Jes 44.25
50.37 Allar þjóðirnar í henni Jer 25.20
50.38 Vötnið þornar Jer 51.36
50.39 Yfirgefin borg Jes 13.21+
50.40 Eins og … Jer 49.18 – Sódóma og Gómorra Jes 1.9+
50.41-43 Þjóð kemur Jer 6.22-24
50.44-46 Líkt og ljón Jer 49.19-21