1Þetta ár í upphafi ríkisstjórnar Sedekía konungs í Júda, fjórða árið, í fimmta mánuðinum sagði Hananja spámaður Assúrsson frá Gíbeon við mig í musteri Drottins í viðurvist prestanna og alls lýðsins:2Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Ég brýt sundur ok Babelkonungs!3Áður en tvö ár eru liðin, flyt ég aftur á þennan stað öll áhöldin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnesar Babelkonungur tók á þessum stað og flutti til Babýlon.4Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, og alla hina herleiddu úr Júda, þá er komnir eru til Babýlon, flyt ég og aftur á þennan stað segir Drottinn því að ég brýt sundur ok Babelkonungs!5Þá talaði Jeremía spámaður til Hananja spámanns í viðurvist prestanna og alls lýðsins, sem stóð í musteri Drottins,6og Jeremía spámaður mælti: Verði svo! Drottinn gjöri það! Drottinn láti orð þín, er þú hefir spáð, rætast, svo að hann flytji aftur frá Babýlon á þennan stað áhöldin úr musteri Drottins og alla hina herleiddu!7En heyr þessi orð, sem ég kunngjöri þér og öllum lýðnum:8Þeir spámenn, sem komið hafa fram á undan mér og á undan þér frá alda öðli, þeir spáðu voldugum löndum og stórum konungsríkjum ófriði, óhamingju og drepsótt.9En sá spámaður, sem spáir heill, ef orð hans rætast, þá þekkist á því sá spámaður, er Drottinn hefir sannarlega sent.10Þá tók Hananja spámaður okið af hálsi Jeremía spámanns og braut það sundur.11Síðan mælti Hananja í viðurvist alls lýðsins á þessa leið: Svo segir Drottinn: Eins skal ég sundurbrjóta ok Nebúkadnesars Babelkonungs áður tvö ár eru liðin af hálsi allra þjóða! En Jeremía spámaður fór leiðar sinnar.12En orð Drottins kom til Jeremía, eftir að Hananja spámaður hafði sundurbrotið okið af hálsi Jeremía spámanns:13Far og seg við Hananja: Svo segir Drottinn: Tré-ok hefir þú sundurbrotið, en ég vil í þess stað gjöra járn-ok!14Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Járnok legg ég á háls allra þessara þjóða, til þess að þær verði þegnskyldar Nebúkadnesar Babelkonungi og þjóni honum, já, jafnvel dýr merkurinnar gef ég honum.15Þá sagði Jeremía spámaður við Hananja spámann: Heyr þú, Hananja! Drottinn hefir ekki sent þig, og þó hefir þú ginnt lýð þennan til að reiða sig á lygar!16Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég kippi þér burt af jörðinni. Á þessu ári skalt þú deyja, því að þú hefir prédikað fráhvarf frá Drottni.17Og Hananja spámaður dó þetta ár, í sjöunda mánuðinum.

28.1 Sedekía Jer 1.3+ – fjórða árið Jer 51.59
28.2 Ok konungsins í Babýlon Jer 27.8+
28.3 Ker Jer 27.19-22; 2Kon 24.13
28.4 Jekonja Jer 22.24+ – útlagar 2Kon 24.12,14-16
28.5 Jeremía svarar Jer 28.12; 42.7-8; sbr Matt 10.19
28.6 Vill ekki spá hörmungum Jer 17.16; 20.8 – vonandi… 1Kon 1.36
28.8 Fyrri spámenn Jer 26.18; sbr Am 1.3-2.3; Jes 13-23 – stríð, böl sbr Jer 14.12+
28.9 Í nafni Drottins 5Mós 18.22
28.14 Járnok 5Mós 28.48
28.15 Ekki frá Drottni Jer 14.14+ – lygi Jer 13.25+
28.16 Fráhvarf Jer 29.32; 5Mós 13.5