1Orð Drottins kom til mín:2Þú skalt ekki taka þér konu, og þú skalt enga sonu né dætur eignast á þessum stað.3Því að svo segir Drottinn um þá sonu og dætur, sem fæðast á þessum stað, og um mæðurnar, sem börnin ala, og um feðurna, sem geta þau í þessu landi:4Af banvænum sjúkdómum munu þau deyja, menn munu eigi harma þau né jarða, þau munu verða að áburði á akrinum. Fyrir sverði og hungri skulu þau farast, og líkamir þeirra munu verða fuglum himinsins og dýrum jarðarinnar að æti.5Já, svo segir Drottinn: Þú skalt ekki ganga í sorgarhúsið og eigi fara til þess að harma, né heldur sýna þeim hluttekning, því að ég hefi tekið minn frið frá þessum lýð segir Drottinn náðina og miskunnsemina,6og stórir og smáir skulu deyja í þessu landi. Þeir verða ekki jarðaðir, og ekki munu menn harma þá né þeirra vegna rista á sig skinnsprettur né gjöra sér skalla.7Og ekki munu menn brjóta sorgarbrauð þeirra vegna, til huggunar eftir látinn mann, né láta þá drekka huggunarbikar vegna föður síns og móður sinnar.8Eigi skalt þú heldur ganga í veisluhús, til þess að setjast með þeim til að eta og drekka.9Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég mun láta öll ánægju- og gleðihljóð, öll fagnaðarlæti brúðguma og brúðar hverfa burt úr þessum stað fyrir augum yðar og á yðar dögum.10Þegar þú nú kunngjörir þessum lýð öll þessi orð og menn segja við þig: Hvers vegna hefir Drottinn hótað oss allri þessari miklu ógæfu, og hver er misgjörð vor og hver er synd vor, sem vér höfum drýgt gegn Drottni, Guði vorum?11þá seg við þá: Vegna þess að feður yðar yfirgáfu mig segir Drottinn og eltu aðra guði og þjónuðu þeim og féllu fram fyrir þeim, en mig yfirgáfu þeir og héldu ekki lögmál mitt.12Og þér breytið enn verr en feður yðar, þar sem þér farið hver og einn eftir þverúð síns vonda hjarta og hlýðið mér ekki.13Fyrir því vil ég varpa yður burt úr þessu landi til þess lands, sem þér hafið ekki þekkt, hvorki þér né feður yðar, og þar skuluð þér þjóna öðrum guðum dag og nótt, þar eð ég sýni yður enga miskunn.14Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma segir Drottinn að ekki mun framar sagt verða: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi Ísraelsmenn út af Egyptalandi,15heldur: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi Ísraelsmenn út úr landinu norður frá og úr öllum þeim löndum, þangað sem hann hafði rekið þá. Og ég mun flytja þá aftur til lands þeirra, sem ég gaf feðrum þeirra.16Sjá, ég mun senda út marga fiskimenn segir Drottinn og þeir munu fiska þá, og eftir það mun ég senda marga veiðimenn, og þeir munu veiða þá á hverju fjalli, á hverri hæð og í bergskorunum.17Því að augu mín horfa á alla þeirra vegu, þeir eru ekki huldir fyrir mér og misgjörð þeirra er eigi falin fyrir augum mér.18En fyrst vil ég gjalda þeim tvöfalt misgjörð þeirra og synd, af því að þeir hafa vanhelgað land mitt með hræi viðurstyggða sinna og fyllt óðal mitt andstyggðum sínum.19Drottinn, styrkur minn, vígi mitt og hæli mitt á neyðardegi, til þín munu þjóðir koma frá endimörkum jarðar og segja: Lygar einar hafa feður vorir hlotið að eign, fánýta guði, og enginn þeirra er að neinu gagni.20Getur maðurinn gjört sér guði? Slíkt eru engir guðir!21Fyrir því vil ég í þetta sinn kenna þeim. Ég vil láta þá kannast við kraft minn og styrkleika, og þeir skulu viðurkenna, að nafn mitt er Drottinn.

16.2 Skírlífi sbr Esk 24.16; Matt 19.12; 1Kor 7.27
16.4 Hvorki grátin né grafin Jer 8.2+ – að æti Jer 7.33+
16.5 Vernd minni Jer 14.13; sbr 4Mós 6.26 – kærleikur Jer 31.3; 33.11 – miskunnsemi 2Mós 3.6 – svipta Jer 13.14
16.6 Syrgja ekki Jer 22.18; Esk 24.23 – skinnsprettur og rakað höfuð Jer 47.5; 5Mós 14.1
16.8 Forðast veisluhús Jer 15.17
16.9 Þagga niður gleðihróp Jer 25.10; Jes 24.8; sbr Jer 33.11
16.10 Hvers vegna? Jer 5.19; Jes 58.3
16.11 Yfirgefa Drottin Jer 2.5,13+,17 – vegna annarra guða Jer 5.19; 7.6,9+ ; sbr 5Mós 4.28; 28.64
16.12 Þrjóska Jer 3.17+
16.15 Leiddi að norðan Jer 31.8; sbr 1.14+ – í land feðranna Jer 12.15; 24.6; Bar 2.34
16.16 Veiðimenn Esk 12.13; 17.20; 29.4; 32.3; Am 4.2; Hab 1.14-17; Job 19.6
16.17 Guð sér allt Jer 11.20; 32.19; Hós 7.2; Slm 90.8; 139; Sír 17.15,19-20; 23.19-21
16.18 Tvöfalt Jer 2.13; sbr 17.18; Jes 40.; 61.7; Sak 9.12; Opb 18.6 – landið vanhelgað 3Mós 18.24-30; Esk 36.18, sbr Jer 2.7 – viðurstyggilegu Jer 4.1+ ; Jes 44.19
16.19 Styrkur minn og vígi Slm 28.7; 2Sam 22.3 – þjóðirnar koma Mík 4.1+ ; Jer 12.16 – vindur Jer 10.8+ – engum hjálpar Jer 2.8
16.20 Tilbúnir guðir Jer 2.28
16.21 Þeir skulu játa Jer 12.16; 1Kon 8.43 – nafn mitt er Drottinn Jer 31.35; sbr Esk 5.13