1Svo mælti Drottinn við mig: Far og kaup þér línbelti og legg það um lendar þér, en lát það ekki koma í vatn.2Og ég keypti beltið eftir orði Drottins og lagði um lendar mér.3Og orð Drottins kom til mín annað sinn, svohljóðandi:4Tak beltið, sem þú keyptir og um lendar þínar er, og legg af stað og far austur að Efrat og fel það þar í bergskoru.5Og ég fór og fal það hjá Efrat, eins og Drottinn hafði boðið mér.6En er alllangur tími var um liðinn, sagði Drottinn við mig: Legg af stað og far austur að Efrat og tak þar beltið, sem ég bauð þér að fela þar.7Og ég fór austur að Efrat, gróf og tók beltið á þeim stað, sem ég hafði falið það. En sjá, beltið var orðið skemmt, til einskis nýtt framar.8Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:9Svo segir Drottinn: Þannig vil ég skemma hroka Júda og hroka Jerúsalem, þann hinn mikla.10Þessir vondu menn, sem ekki vilja hlýða orðum mínum, sem fara eftir þverúð hjarta síns og elta aðra guði til þess að þjóna þeim og falla fram fyrir þeim þeir skulu verða eins og þetta belti, sem til einskis er nýtt framar.11Því að eins og beltið fellir sig að lendum manns, eins hafði ég látið allt Ísraels hús og allt Júda hús fella sig að mér segir Drottinn til þess að það skyldi vera minn lýður og mér til frægðar, lofstírs og prýði, en þeir hlýddu ekki.12Mæl til þeirra þetta orð: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Sérhver krukka verður fyllt víni. En segi þeir þá við þig: Vitum vér þá ekki, að sérhver krukka verður fyllt víni?13þá seg við þá: Svo segir Drottinn: Sjá, ég fylli alla íbúa þessa lands og konungana, sem sitja í hásæti Davíðs, og prestana og spámennina og alla Jerúsalembúa, svo að þeir verði drukknir,14og mola þá sundur hvern við annan, feður og sonu alla saman segir Drottinn. Ég tortími þeim hlífðarlaust, án nokkurrar vægðar og miskunnar.15Heyrið og takið eftir! Verið ekki dramblátir, því að Drottinn hefir talað!16Gefið Drottni, Guði yðar, dýrðina, áður en dimmir, áður en fætur yðar steyta á rökkurfjöllum. Þér væntið ljóss, en hann mun breyta því í niðdimmu og gjöra það að svartamyrkri.17En ef þér hlýðið því ekki, þá mun ég í leyni gráta vegna hrokans og sífellt tárast, já augu mín munu fljóta í tárum, af því að hjörð Drottins verður flutt burt hertekin.18Seg við konung og við konungsmóður: Setjist lágt, því að fallin er af höfðum yðar dýrlega kórónan!19Borgir Suðurlandsins eru lokaðar, og enginn opnar, Júdalýður hefur verið burt fluttur allur saman, burt fluttur með tölu.20Hef upp augu þín og sjá, þeir koma að norðan! Hvar er hjörðin, sem þér var fengin, þínir ágætu sauðir?21Hvað munt þú segja, þegar þeir setja þá menn höfðingja yfir þig, sem þú hefir sjálf kennt að vera á móti þér? Munu ekki hviður að þér koma, eins og að jóðsjúkri konu,22er þú segir í hjarta þínu: Hví ber mér slíkt að höndum? Sakir þinnar miklu misgjörðar er klæðafaldi þínum upp flett, hælar þínir með valdi berir gjörðir.23Getur blámaður breytt hörundslit sínum eða pardusdýrið flekkjum sínum? Ef svo væri munduð þér og megna að breyta vel, þér sem vanist hafið að gjöra illt.24Ég vil tvístra þeim eins og hálmleggjum, sem berast fyrir eyðimerkurvindi.25Þetta er hlutur þinn, afmældur skammtur þinn frá minni hendi segir Drottinn af því að þú hefir gleymt mér og treystir á lygi.26Fyrir því kippi ég og klæðafaldi þínum upp að framan, svo að blygðan þín verði ber.27Hórdóm þinn og losta-hví, hið svívirðilega fúllífi þitt á fórnarhæðunum úti á víðavangi hefi ég séð viðurstyggðir þínar. Vei þér, Jerúsalem, þú munt ekki hrein verða hve langt mun enn þangað til?

13.1 Táknrænar athafnir Jer 19; 27; 32; 43.8-13; 51.59-64
13.10 Neitar að hlýða Jer 7.26+ – þrjóska Jer 3.17 – eta framandi guði Jer 7.9+
13.11 Ganga með Guði 5Mós 10.20; 11.22; 13.4; 30.20; 2Kon 18.6; Slm 63.9; 119.31; sbr 1Kor 6.17 – mín þjóð Jer 7.23+ – til lofstírs Jer 33.9
13.13 Drukknir Jer 25.15+ ; 51.39
13.14 Hvorki vorkunn né miskunn Jer 15.5; 21.7; 51.3
13.16 Gefið Guði dýrðina Jós 7.19; Jóh 9.24 – áður en dimmir Préd 12.1-2 – skrika fótur Jóh 11.10; 12.35 – nótt Jes 5.30; 8.22; Am 8.9 – niðdimma Jer 2.6; sbr Job 3.5
13.17 Tárin streyma Jer 8.23+
13.18 Konungur og konungsmóðir 2Kon 24.8; sbr Jer 22.24+ ; 29.2
13.20 Úr norðri Jer 1.14+
13.21 Vinfengi við stórþjóðir 2Kon 16.7; 20.13 – þjáningar Jer 22.23
13.22 Pilsfaldi lyft Jer 13.26; Jes 47.2-3; Nah 3.5; sbr Hab 2.16; Opb 17.16
13.23 Getir þér gert gott Jer 6.29; Slm 55.20; Matt 12.34
13.24 Ég mun dreifa Jer 9.15
13.25 Gleyma Guði Jer 2.32+ – treystir lygum Jer 28.15; 29.31
13.27 Hórdómur Jer 2.20 – andstyggileg hegðun Jer 4.1+ – hreinsar þig ekki Jer 4.14; Esk 24.13; Hós 8.5