1Segið við bræður yðar: Minn lýður! og við systur yðar: Náðþegi!2Deilið á móður yðar, deilið á hana, því að hún er eigi mín kona og ég er ekki maður hennar, svo að hún fjarlægi hórdóm sinn frá andliti sínu og hjúskaparbrot sín frá brjóstum sínum.3Ella mun ég færa hana úr öllu og láta hana standa nakta, eins og þegar hún fæddist, og gjöra hana eins og eyðimörk og láta hana verða eins og þurrt land og láta hana deyja af þorsta.4Og yfir börn hennar mun ég ekki miskunna mig, því að þau eru hórbörn,5því að móðir þeirra hefir drýgt hór, hún sem þau gat, hefir framið svívirðu. Því að hún sagði: Ég vil elta friðla mína, sem gefa mér brauð mitt og vatn, ull mína og hör, olífuolíu mína og drykki.6Fyrir því vil ég girða fyrir veg hennar með þyrnum og hlaða vegg fyrir hana, til þess að hún finni ekki stigu sína.7Og þegar hún þá eltir friðla sína, skal hún ekki ná þeim, og er hún leitar þeirra, skal hún ekki finna þá, heldur mun hún segja: Ég vil fara og snúa aftur til míns fyrra manns, því að þá leið mér betur en nú.8Hún veit þá ekki, að það er ég, sem hefi gefið henni kornið og vínberjalöginn og olífuolíuna og veitt henni gnótt silfurs og gulls, en þeir hafa varið því handa Baal.9Fyrir því vil ég taka aftur korn mitt á korntíðinni og vínberjalög minn, þegar hans ákveðni tími kemur, og nema burt ull mína og hör, er hún skyldi skýla með nekt sinni.10Og nú vil ég bera gjöra blygðan hennar í augsýn friðla hennar, enginn skal fá hrifið hana úr minni hendi11og gjöra enda á alla kæti hennar, á hátíðir hennar, tunglkomudaga og hvíldardaga og á allar löghátíðir hennar,12og eyða víntré hennar og fíkjutré, er hún sagði um: Þau eru hórgjald, sem friðlar mínir hafa gefið mér! Og ég vil gjöra þau að kjarrskógi, til þess að villidýrin eti þau.13Ég vil hegna henni fyrir daga Baalanna, þá er hún færði þeim reykelsisfórnir og prýddi sig með nefhringum og hálsmenjum og fylgdi friðlum sínum, en gleymdi mér, segir Drottinn.14Ég vil lokka hana og leiða hana út í eyðimörk og hughreysta hana,15og ég gef henni þar víngarða sína og gjöri Mæðudal að Vonarhliði, og þá mun hún verða eftirlát eins og á æskudögum sínum og eins og þá er hún fór burt af Egyptalandi.16Á þeim degi, segir Drottinn munt þú ávarpa mig Maðurinn minn, en ekki framar kalla til mín Baal minn.17Og ég vil venja hana af að hafa nöfn Baalanna á vörum sér, svo að þeirra skal eigi verða framar getið með nafni.18Og á þeim degi gjöri ég fyrir þá sáttmála við dýr merkurinnar og fugla himinsins og skriðkvikindi jarðarinnar, og eyði bogum, sverðum og bardögum úr landinu og læt þá búa örugga.19Og ég mun festa þig mér eilíflega, ég mun festa þig mér í réttlæti og réttvísi, í kærleika og miskunnsemi,20ég mun festa þig mér í trúfesti, og þú skalt þekkja Drottin.21Og á þeim degi mun ég bænheyra, segir Drottinn. Ég mun bænheyra himininn, og hann mun bænheyra jörðina,22og jörðin mun bænheyra kornið, vínberjalöginn og olíuna, og þau munu bænheyra Jesreel.23Og ég vil gróðursetja lýð minn í landinu og auðsýna Náðvana náð og segja við Ekki-minn-lýð: Þú ert minn lýður! og hann mun segja: Guð minn!

2.1 Sem sandkorn 1Mós 22.17; 1Kon 4.20; Jes 10.22 – ekki þjóð mín Róm 9.26 – lifandi Guð 5Mós 5.26+
2.2 Sameining Ísraels og Júda Jer 3.18; Esk 37.17 – einn leiðtogi Esk 37.22,24
2.4 Drottinn kærir þjóðina Hós 4.1; 12.3; Jes 1.18; 3.13-15; Mík 6.1-2 – skilnaður Jes 50.1
2.5 Nakin Esk 16.4-5,22, o.áfr.; 23.29
2.6 Hórbörn Hós 1.2
2.7 Hór Hós 1.2+ – elta ástmenn sína Jer 2.25 – skurðgoðadýrkun Jer 44.17
2.9 Leit Hós 5.15 – ég sný aftur Jer 3.22; Lúk 15.17-18
2.10 Ég gaf 5Mós 7.13; 8.16-17; Hag 2.8 – silfur og gull Hós 8.4; 13.2
2.12 Bera blygðun Esk 16.36-37 – úr greipum mínum Hós 5.14; 5Mós 32.39; Mík 5.7; Slm 50.22; Job 10.7; 19.21; Dan 4.32; sbr Jóh 10.28
2.14 Vínvið og fíkjutré 1Kon 5.5; Jes 36.16; Mík 4.4; Sak 3.10 – landið verður auðn 3Mós 26.32-35; Jes 5.5-6; 32.13
2.16 Lokka Jer 20.7 – í eyðimörk 5Mós 8.2-5; Hós 13.5; sbr 12.10 – mæla ástarorðum (hughreysta) 1Mós 34.3; Dóm 19.3; Rut 2.13
2.17 Mæðudalur (Akor-dalur) Jós 7.26; Jes 65.10 – hlið Opb 3.7-8 – vonar Jer 29.11 – á æskudögum sínum Hós 11.1-3
2.20 Sáttmáli við dýr Jes 11.6-9; 65.25; Esk 34.25; Job 5.23; Mrk 1.13 – vopn Hós 1.7 – eyða bardögum Jes 2.4; Sak 9.10
2.21 Trúlofun, nýr sáttmáli Jes 54.5-10; Jer 31.31-33
2.23 Bænheyra Hós 2.17; 14.9
2.24 Korn, vín, olía Hós 2.7,10
2.25 Sbr Róm 9.25; 1Pét 2.10 – miskunnarvana, ekki-þjóð-mína Hós 1.3-9 – þjóð mín, Guð minn Jer 7.23+