1Þegar Ísrael var ungur, fékk ég ást á honum, og frá Egyptalandi kallaði ég son minn.2Þegar ég kallaði á þá, fóru þeir burt frá mér. Þeir færðu Baölunum sláturfórnir og skurðgoðunum reykelsisfórnir.3Ég kenndi Efraím að ganga og tók þá á arma mér. En þeir urðu þess ekki varir, að ég læknaði þá.4Með böndum, slíkum sem þeim er menn nota, dró ég þá að mér, með taugum kærleikans, og fór að þeim eins og sá sem lyftir upp okinu á kjálkunum og rétti þeim fæðu.5Þeir skulu snúa aftur til Egyptalands, og Assýringar munu drottna yfir þeim, því að þeir vilja ekki taka sinnaskiptum.6Því skal og sverðið geisa í borgum þeirra og eyðileggja slagbranda þeirra og eyða virkjum þeirra.7Lýður minn hefir stöðuga tilhneiging til þess að snúa við mér bakinu, og þótt kallað sé til þeirra: Upp á við! þá hefur enginn sig upp.8Hvernig ætti ég að sleppa hendi af þér, Efraím, ofurselja þig, Ísrael? Ætti ég að fara með þig eins og Adma, útleika þig eins og Sebóím! Hjartað kemst við í brjósti mér, ég kenni brennheitrar meðaumkunar.9Ég vil ekki framkvæma heiftarreiði mína, ekki aftur eyðileggja Efraím. Því að ég er Guð, en ekki maður. Ég bý á meðal yðar sem heilagur Guð og kem ekki til yðar í bræði.10Þeir munu fylgja Drottni, sem öskra mun eins og ljón. Já, hann mun öskra, og synir munu koma skjálfandi úr vestri.11Þeir munu koma skjálfandi frá Egyptalandi, eins og fuglar, og eins og dúfur frá Assýríu. Þá vil ég láta þá búa í húsum sínum segir Drottinn.12Efraím hefir umkringt mig með lygi og Ísraels hús með svikum, og Júda er enn reikull gagnvart Guði og gagnvart Hinum heilaga, sem aldrei breytist.

11.1 Ísrael, sonur 2Mós 4.22; 5Mós 32.6; Jes 1.2; Jer 3.19; Mal 1.6; sbr Jes 63.16; Jer 31.9; Hós 11.10 – frá Egyptalandi Matt 2.15
11.3 Á örmum mér 5Mós 1.31 – skildu ekki Hós 2.10; sbr 4.6; 7.9; 8.14; 13.6
11.4 Drottinn gefur fæðuna 2Mós 16.4,8,12; 4Mós 11.7-9; 5Mós 8.16
11.5 Aftur til Egyptalands Hós 8.13+ – undir stjórn Assýringa Hós 9.3; 10.6 – hverfa aftur Hós 2.9; 5.4; 6.1; 7.10; 12.7; 14.2
11.8 Adma og Sebóím 1Mós 10.19; 14.2,8
11.9 Guð og ekki maður 4Mós 23.19; sbr Mal 3.6; Job 9.32 – heilagur Guð Jes 5.16; 6.3; sbr 1.4; Hós 12.1
11.10 Hinir dreifðu snúa aftur Jes 11.10-12; 43.5-7; Jer 31.8-9