1Dína dóttir Leu, er hún hafði fætt Jakob, gekk út að sjá dætur landsins.2Þá sá Síkem hana, sonur Hevítans Hemors, höfðingja landsins, og hann tók hana og lagðist með henni og spjallaði hana.3Og hann lagði mikinn ástarhug á Dínu, dóttur Jakobs, og hann elskaði stúlkuna og talaði vinsamlega við hana.4Síkem kom að máli við Hemor föður sinn og mælti: Tak mér þessa stúlku fyrir konu.5En Jakob hafði frétt, að hann hefði svívirt Dínu dóttur hans, en með því að synir hans voru úti í haga með fénað hans, þá lét hann kyrrt vera, þar til er þeir komu heim.6Þá gekk Hemor, faðir Síkems, út til Jakobs til þess að tala við hann.7Og synir Jakobs komu heim úr haganum, er þeir heyrðu þetta. Og mennirnir styggðust og urðu stórreiðir, því að hann hafði framið óhæfuverk í Ísrael, er hann lagðist með dóttur Jakobs, og slíkt hefði aldrei átt að fremja.8Þá talaði Hemor við þá og mælti: Síkem sonur minn hefir mikla ást á dóttur yðar. Ég bið að þér gefið honum hana fyrir konu.9Mægist við oss, gefið oss yðar dætur og takið yður vorar dætur10og staðnæmist hjá oss, og landið skal standa yður til boða. Verið hér kyrrir og farið um landið og takið yður bólfestu í því.11Og Síkem sagði við föður hennar og bræður: Ó, að ég mætti finna náð í augum yðar. Hvað sem þér til nefnið, það skal ég greiða.12Krefjist af mér svo mikils mundar og morgungjafar sem vera skal, og mun ég greiða það, er þér til nefnið, en gefið mér stúlkuna fyrir konu.13Þá svöruðu synir Jakobs þeim Síkem og Hemor föður hans, og töluðu með undirhyggju, af því að hann hafði svívirt Dínu systur þeirra,14og sögðu við þá: Eigi megum vér þetta gjöra, að gefa systur vora óumskornum manni, því að það væri oss vanvirða.15Því aðeins viljum vér gjöra að yðar vilja, að þér verðið eins og vér, með því að láta umskera allt karlkyn meðal yðar.16Þá skulum vér gefa yður vorar dætur og taka yðar dætur oss til handa og búa hjá yður, svo að vér verðum ein þjóð.17En viljið þér eigi láta að orðum vorum og umskerast, þá tökum vér dóttur vora og förum burt.18Og Hemor og Síkem, syni Hemors, geðjaðist vel tal þeirra.19Og sveinninn lét ekki á því standa að gjöra þetta, því að hann elskaði dóttur Jakobs. En hann var talinn maður ágætastur í sinni ætt.20Hemor og Síkem sonur hans komu í hlið borgar sinnar og töluðu við borgarmenn sína og sögðu:21Þessir menn bera friðarhug til vor. Látum þá setjast að í landinu og fara allra sinna ferða um það, því að nóg er landrýmið á báðar hendur handa þeim. Dætur þeirra munum vér taka oss fyrir konur og gefa þeim dætur vorar.22En því aðeins vilja mennirnir gjöra að vorum vilja og búa vor á meðal, svo að vér verðum ein þjóð, að vér látum umskera allt karlkyn meðal vor, eins og þeir eru umskornir.23Hjarðir þeirra, fjárhlutur þeirra og allur fénaður þeirra, verður það ekki vor eign? Gjörum aðeins að vilja þeirra, svo að þeir staðnæmist hjá oss.24Og þeir létu að orðum Hemors og Síkems sonar hans, allir sem gengu út um hlið borgar hans, og allt karlkyn lét umskerast, allir þeir, sem gengu út um hlið borgar hans.25En svo bar til á þriðja degi, er þeir voru sjúkir af sárum, að tveir synir Jakobs, þeir Símeon og Leví, bræður Dínu, tóku hvor sitt sverð og gengu inn í borgina, sem átti sér einskis ills von, og drápu þar allt karlkyn.26Drápu þeir einnig Hemor og son hans Síkem með sverðseggjum og tóku Dínu úr húsi Síkems og fóru síðan burt.27Synir Jakobs réðust að hinum vegnu og rændu borgina, af því að þeir höfðu svívirt systur þeirra.28Sauði þeirra, naut þeirra og asna, og allt, sem var í borginni, og það, sem var í högunum, tóku þeir.29Og öll auðæfi þeirra, öll börn þeirra og konur tóku þeir að herfangi og rændu, sömuleiðis allt, sem var í húsunum.30Jakob sagði við Símeon og Leví: Þið hafið stofnað mér í ógæfu með því að gjöra mig illa þokkaðan af landsmönnum, af Kanaanítum og Peresítum. Nú með því að ég er liðfár, munu þeir safnast saman á móti mér og vinna sigur á mér. Verð ég þá afmáður, ég og mitt hús.31En þeir svöruðu: Átti hann þá að fara með systur okkar eins og skækju?

34.1 Dína 1Mós 30.1
34.2-3 Hugfanginn af Dínu 2Mós 22.15-16; 5Mós 22.28-29
34.5 Aðhafðist ekkert Am 5.13; Préd 3.7
34.7 Óhæfuverk 2Sam 13.12-13
34.15 Umskurn 1Mós 17.10-14+
34.25 Þjáðir af sárum Jós 5.8
34.30 Fáliðaðir 5Mós 7.7; 26.5; 1Kon 20.27; Slm 105.12