1Saraí kona Abrams ól honum ekki börn. En hún hafði egypska ambátt, sem hét Hagar.2Og Saraí sagði við Abram: Heyrðu, Drottinn hefir varnað mér barngetnaðar. Gakk því inn til ambáttar minnar, vera má að hún afli mér afkvæmis. Og Abram hlýddi orðum Saraí.3Saraí, kona Abrams, tók Hagar hina egypsku, ambátt sína, er Abram hafði búið tíu ár í Kanaanlandi, og gaf manni sínum Abram hana fyrir konu.4Og hann gekk inn til Hagar, og hún varð þunguð. En er hún vissi, að hún var með barni, fyrirleit hún húsmóður sína.5Þá sagði Saraí við Abram: Sá óréttur, sem ég verð að þola, bitni á þér! Ég hefi gefið ambátt mína þér í faðm, en er hún nú veit, að hún er með barni, fyrirlítur hún mig. Drottinn dæmi milli mín og þín!6En Abram sagði við Saraí: Sjá, ambátt þín er á þínu valdi. Gjör þú við hana sem þér gott þykir. Þá þjáði Saraí hana, svo að hún flýði í burtu frá henni.7Þá fann engill Drottins hana hjá vatnslind í eyðimörkinni, hjá lindinni á veginum til Súr.8Og hann mælti: Hagar, ambátt Saraí, hvaðan kemur þú og hvert ætlar þú að fara? Hún svaraði: Ég er á flótta frá Saraí, húsmóður minni.9Og engill Drottins sagði við hana: Hverf þú heim aftur til húsmóður þinnar og gef þig undir hennar vald.10Engill Drottins sagði við hana: Ég mun margfalda afkvæmi þitt, svo að það verði eigi talið fyrir fjölda sakir.11Engill Drottins sagði við hana: Sjá, þú ert þunguð og munt son fæða. Hans nafn skalt þú kalla Ísmael, því að Drottinn hefir heyrt kveinstafi þína.12Hann mun verða maður ólmur sem villiasni, hönd hans mun vera uppi á móti hverjum manni og hvers manns hönd uppi á móti honum, og hann mun búa andspænis öllum bræðrum sínum.13Og hún nefndi Drottin, sem við hana talaði, Þú ert Guð, sem sér. Því að hún sagði: Ætli ég hafi einnig hér horft á eftir honum, sem hefir séð mig?14Þess vegna heitir brunnurinn Beer-Lahaj-róí, en hann er á milli Kades og Bered.15Hagar ól Abram son, og Abram nefndi son sinn, sem Hagar ól honum, Ísmael.16En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael.
16.9 Snúðu aftur Film 8-21; 1Pét 2.18-20
16.10 Niðjum þínum 1Mós 17.20; 21.13,18; 25.12-18; sbr 12.2+
16.15 Sonur Gal 4.22