1Drottinn sagði við Abram: Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu og úr húsi föður þíns, til landsins, sem ég mun vísa þér á.2Ég mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa þig og gjöra nafn þitt mikið, og blessun skalt þú vera.3Ég mun blessa þá, sem þig blessa, en bölva þeim, sem þér formælir, og af þér skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessun hljóta.4Þá lagði Abram af stað, eins og Drottinn hafði sagt honum, og Lot fór með honum. En Abram var sjötíu og fimm ára að aldri, er hann fór úr Harran.5Abram tók Saraí konu sína og Lot bróðurson sinn og alla fjárhluti, sem þeir höfðu eignast, og þær sálir, er þeir höfðu fengið í Harran. Og þeir lögðu af stað og héldu til Kanaanlands. Þeir komu til Kanaanlands.6Og Abram fór um landið, allt þangað er Síkem heitir, allt til Mórelundar. En þá voru Kanaanítar í landinu.7Þá birtist Drottinn Abram og sagði við hann: Niðjum þínum vil ég gefa þetta land. Og hann reisti þar altari Drottni, sem hafði birst honum.8Þaðan hélt hann til fjallanna fyrir austan Betel og setti þar tjöld sín, svo að Betel var í vestur, en Aí í austur. Og hann reisti þar Drottni altari og ákallaði nafn Drottins.9Og Abram færði sig smátt og smátt til Suðurlandsins.10En hallæri varð í landinu. Þá fór Abram til Egyptalands til að dveljast þar um hríð, því að hallærið var mikið í landinu.11Og er hann var kominn langt á leið til Egyptalands, sagði hann við Saraí konu sína: Sjá, ég veit að þú ert kona fríð sýnum.12Það mun því fara svo, að þegar Egyptar sjá þig, þá munu þeir segja: Þetta er kona hans, og drepa mig, en þig munu þeir láta lífi halda.13Segðu fyrir hvern mun, að þú sért systir mín, svo að mér megi líða vel fyrir þínar sakir og ég megi lífi halda þín vegna.14Er Abram kom til Egyptalands, sáu Egyptar, að konan var mjög fríð.15Og höfðingjar Faraós sáu hana og létu mikið af henni við Faraó, og konan var tekin í hús Faraós.16Og hann gjörði vel við Abram hennar vegna, og hann eignaðist sauði, naut og asna, þræla og ambáttir, ösnur og úlfalda.17En Drottinn þjáði Faraó og hús hans með miklum plágum vegna Saraí, konu Abrams.18Þá kallaði Faraó Abram til sín og mælti: Hví hefir þú gjört mér þetta? Hví sagðir þú mér ekki, að hún væri kona þín?19Hví sagðir þú: Hún er systir mín, svo að ég tók hana mér fyrir konu? En þarna er nú konan þín, tak þú hana og far burt.20Og Faraó skipaði svo fyrir um Abram, að menn sínir skyldu fylgja honum á braut og konu hans með öllu, sem hann átti.

12.1 Abram (Abraham) Js 24.3; Jes 51.2; SSal 10.5; Sír 44.19-21; Post 7.2-4; Heb 11.8-10
12.2 Mikil þjóð 1Mós 13.16; 15.5; 17.4-5; 22.17; 26.4,24; 35.11; 47.27; 48.4; Gal 3.16; Heb 11.12
12.3 Ég blessa 1Mós 27.29; 4Mós 24.9 – allar ættkvíslir jarðar hljóta blessun 1Mós 18.18; 22.18; 26.4; 28.14; Post 3.25; Gal 3.8-9
12.6 Síkem (Síkar) 1Mós 33.18-20; Js 24; 1Kon 12.1-16; Jóh 4.5
12.7 Fyrirheit um land 1Mós 13.15; 15.18; 17.8; 26.3; 28.13; 35.12; 48.4; 5Mós 1.8; 34.4; Slm 105.11; Post 7.5
12.8 Betel 1Mós 28.10-22; Dóm 1.22-26; 20.26-27; 1Kon 12.29-13.34; Am 4.4; 5.5-6; 7.10-13
12.10-20 Dvöl í Egyptalandi 1Mós 20; 26.1-11; Slm 105.12-14