1Þegar Davíð hafði endað tal sitt við Sál, þá lagði Jónatan ást mikla við Davíð og unni honum sem lífi sínu.2Og Sál tók Davíð að sér upp frá þeim degi og leyfði honum ekki að fara heim aftur til föður síns.3Og Jónatan gjörði fóstbræðralag við Davíð, af því að hann unni honum sem lífi sínu.4Og Jónatan fór úr skikkju sinni, sem hann var í, og gaf Davíð hana, svo og brynjukufl sinn og jafnvel sverð sitt, boga sinn og belti.5Og Davíð fór í leiðangra. Var hann giftudrjúgur, hvert sem Sál sendi hann. Setti Sál hann því yfir hermennina. Og hann var vel þokkaður af öllum lýð og einnig þjónum Sáls.6Þegar þeir komu heim, þá er Davíð hafði lagt Filistann að velli, þá gengu konur úr öllum borgum Ísraels syngjandi og dansandi út í móti Sál konungi, með bumbum, strengleik og mikilli gleði.7Og konurnar stigu dansinn, hófu upp söng og mæltu: Sál felldi sín þúsund, en Davíð sín tíu þúsund.8Þá varð Sál reiður mjög, og honum mislíkuðu þessi orð og hann sagði: Davíð hafa þær gefið tíu þúsundin, en mér hafa þær gefið þúsundin. Nú vantar hann ekki nema konungdóminn!9Og Sál leit Davíð öfundarauga ávallt upp frá því.10Daginn eftir kom illur andi frá Guði yfir Sál, og æði greip hann inni í húsinu, en Davíð var að leika hörpuna hendi sinni, eins og hann var vanur að gjöra á degi hverjum, og Sál hafði spjót í hendi.11Þá reiddi Sál spjótið og hugsaði með sér: Ég skal reka það gegnum Davíð og inn í vegginn. En Davíð skaut sér tvívegis undan.12Sál var hræddur við Davíð, því að Drottinn var með honum, en var vikinn frá Sál.13Fyrir því lét Sál hann frá sér og gjörði hann að hersveitarforingja. Var hann nú fyrir liðinu bæði þegar það fór og kom.14En Davíð var giftudrjúgur í öllu, sem hann tók sér fyrir hendur, af því að Drottinn var með honum.15Og er Sál sá, að hann var giftusamur mjög, tók honum að standa uggur af honum.16En allur Ísrael og Júda elskaði Davíð, því að hann gekk jafnan þeirra fremstur.17Sál sagði við Davíð: Sjá, ég vil gefa þér Merab, eldri dóttur mína, fyrir konu. En þú verður að reynast mér hraustur maður og þú verður að heyja bardaga Drottins! En Sál hugsaði með sér: Ég skal ekki leggja hönd á hann, en Filistar skulu leggja hönd á hann.18Davíð sagði við Sál: Hver er ég og hvert er kyn mitt, ætt föður míns í Ísrael, að ég skuli verða tengdasonur konungsins?19En er sá tími kom, að gifta skyldi Davíð Merab, dóttur Sáls, þá var hún gefin Adríel frá Mehóla fyrir konu.20En Míkal, dóttir Sáls, elskaði Davíð. Og Sál var sagt frá því, og honum líkaði það vel.21Þá hugsaði Sál með sér: Ég vil gefa honum hana, svo að hún verði honum að tálsnöru og Filistar leggi hönd á hann. Og Sál sagði í annað sinn við Davíð: Þú skalt verða tengdasonur minn í dag.22Og Sál bauð þjónum sínum: Talið leynilega við Davíð og segið: Sjá, konungur hefir mætur á þér, og allir þjónar hans elska þig, og því skalt þú mægjast við konung.23Þjónar Sáls töluðu þessi orð í eyru Davíðs. En Davíð sagði: Sýnist yður það lítils um vert að mægjast við konung, þar sem ég er maður fátækur og lítilsháttar?24Þjónar Sáls báru honum þetta og sögðu: Slíkum orðum hefir Davíð mælt.25Þá sagði Sál: Mælið svo við Davíð: Eigi girnist konungur annan mund en hundrað yfirhúðir Filista til þess að hefna sín á óvinum konungs. En Sál hugsaði sér að láta Davíð falla fyrir hendi Filista.26Og þjónar hans báru Davíð þessi orð, og Davíð líkaði það vel að eiga að mægjast við konung. En tíminn var enn ekki liðinn,27er Davíð tók sig upp og lagði af stað með menn sína og drap hundrað manns meðal Filista. Og Davíð fór með yfirhúðir þeirra og lagði þær allar með tölu fyrir konung, til þess að hann næði mægðum við konung. Þá gaf Sál honum Míkal dóttur sína fyrir konu.28Sál sá það æ betur og betur, að Drottinn var með Davíð og að allur Ísrael elskaði hann.29Þá varð Sál enn miklu hræddari við Davíð. Varð Sál nú óvinur Davíðs alla ævi.30Og höfðingjar Filistanna fóru í leiðangur. En í hvert skipti, sem þeir fóru í leiðangur, varð Davíð giftudrýgri en allir þjónar Sáls, svo að nafn hans varð víðfrægt.

18.1 Jónatan unni Davíð 1Sam 19.1-7; 20; 23.16-18; 2Sam 1.26
18.5 Fór í hernað 1Sam 18.14,16,30; 23.5; 27.8-11; 30.1-20
18.6 Syngjandi og dansandi 1Sam 21.12; 2Mós 15.20; Dóm 5.1; 11.34; Júdt 15.12
18.7 Sál felldi … 1Sam 21.12; 29.5
18.10 Illur andi 1Sam 16.14
18.12 Óttast Davíð 1Sam 18.29 – Drottinn var með honum 1Sam 16.18; 17.37; 1Mós 39.2; 4Mós 23.21; 2Sam 5.10; 2Kon 18.7
18.16 Gekk fremstur 2Sam 5.2
18.17 Dóttir mín 1Sam 17.25 – bardagar Drottins 1Sam 25.28
18.19 Adríel frá Mehóla 2Sam 21.8
18.27 Dóttur sína 1Sam 17.25
18.28 Drottinn var með Davíð 1Sam 18.12+