1Nahas Ammóníti fór og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu allir Jabesbúar við Nahas: Gjör þú sáttmála við oss, og munum vér þjóna þér.2Nahas Ammóníti svaraði þeim: Með þeim kostum vil ég gjöra sáttmála við yður, að ég stingi út á yður öllum hægra augað og gjöri öllum Ísrael háðung með því.3Öldungarnir í Jabes sögðu við hann: Gef oss sjö daga frest, og munum vér senda sendiboða um allt Ísraels land, og ef enginn þá hjálpar oss, munum vér gefast upp fyrir þér.4Þegar sendiboðarnir komu til Gíbeu Sáls og báru upp erindi sitt í áheyrn lýðsins, þá hóf allur lýðurinn upp raust sína og grét.5Og sjá, þá kom Sál á eftir nautunum utan af akri. Og Sál mælti: Hvað ber til þess, að fólkið er að gráta? Og þeir sögðu honum erindi Jabesmanna.6Þá kom andi Guðs yfir Sál, er hann heyrði þessi tíðindi, og varð hann reiður mjög.7Og hann tók tvo uxa og brytjaði þá og sendi stykkin um allt Ísraels land með sendiboðunum og lét þá orðsending fylgja: Svo skal farið með naut hvers þess manns, er eigi fylgir Sál og Samúel í hernað. Þá kom ótti Drottins yfir fólkið, svo að þeir lögðu af stað sem einn maður.8Og hann kannaði liðið í Besek, og voru þá Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund.9Og þeir sögðu við sendiboðana, sem komnir voru: Segið svo mönnunum í Jabes í Gíleað: Á morgun um hádegisbil skal yður koma hjálp. Og sendimennirnir komu og sögðu Jabesbúum frá þessu, og urðu þeir glaðir við.10Og Jabesbúar sögðu við Nahas: Á morgun munum vér gefast upp fyrir yður. Þá getið þér gjört við oss hvað sem yður gott þykir.11En morguninn eftir skipti Sál liðinu í þrjá flokka, og brutust þeir inn í herbúðirnar um morgunvökuna og felldu Ammóníta fram til hádegis. Og þeir, sem af komust, dreifðust víðsvegar, svo að ekki urðu eftir af þeim tveir saman.12Þá sagði fólkið við Samúel: Hverjir voru það, sem sögðu: Á Sál að verða konungur yfir oss? Framseljið þá menn, svo að vér getum drepið þá.13En Sál sagði: Engan mann skal deyða á þessum degi, því að í dag hefir Drottinn veitt Ísrael sigur.14Samúel sagði við lýðinn: Komið, vér skulum fara til Gilgal og endurnýja þar konungdóminn.15Þá fór allur lýðurinn til Gilgal og gjörði Sál þar að konungi frammi fyrir Drottni í Gilgal. Og þeir fórnuðu þar heillafórnum frammi fyrir Drottni, og Sál og allir Ísraelsmenn glöddu sig þar mikillega.

11.6 Andi Guðs 1Sam 16.13; Dóm 3.10; 6.34; 11.29; 13.25; 14.19
11.7 Sendi hlutana Dóm 19.29 – ótti 1Sam 14.15; 1Mós 35.5
11.10 Gefast upp 1Sam 11.3
11.11 Þrjár fylkingar Dóm 7.16
11.12 Ríkja yfir okkur 1Sam 10.27
11.13 Á þessum degi 1Sam 14.45; 2Sam 19.23
11.14 Gilgal Jós 4.19-20