1Benjamín gat Bela, frumgetning sinn, annan Asbel, þriðja Ahra,2fjórða Nóha, fimmta Rafa.3Og Bela átti að sonum: Addar, Gera, Abíhúd,4Abísúa, Naaman, Ahóa,5Gera, Sefúfan og Húram.6Þessir voru synir Ehúðs þessir voru ætthöfðingjar Gebabúa, og þeir herleiddu þá til Manahat,7og Naaman, Ahía og Gera, hann herleiddi þá hann gat Ússa og Ahíhúd.8Saharaím gat í Móabslandi, er hann hafði rekið þær frá sér, Húsím og Baöru konur sínar9þá gat hann við Hódes konu sinni: Jóbab, Síbja, Mesa, Malkam,10Jeús, Sokja og Mirma. Þessir voru synir hans, ætthöfðingjar.11Og við Húsím gat hann Abítúb og Elpaal.12Og synir Elpaals voru: Eber, Míseam og Semer. Hann byggði Ónó og Lód og þorpin umhverfis.13Bería og Sema þeir voru ætthöfðingjar Ajalonbúa, þeir ráku burt íbúana í Gat14og Elpaal bróðir hans og Sasak og Jeremót.15Sebadja, Arad, Eder,16Míkael, Jispa og Jóha voru synir Bería.17Sebadja, Mesúllam, Hiskí, Heber,18Jísmeraí, Jíslía og Jóbab voru synir Elpaals.19Jakím, Síkrí, Sabdí,20Elíenaí, Silletaí, Elíel,21Adaja, Beraja og Simrat voru synir Símeí.22Jíspan, Eber, Elíel,23Abdón, Síkrí, Hanan,24Hananja, Elam, Antótía,25Jífdeja og Penúel voru synir Sasaks.26Samseraí, Seharja, Atalja,27Jaaresja, Elía og Síkrí voru synir Jeróhams.28Þessir voru ætthöfðingjar í ættum sínum, höfðingjar. Þeir bjuggu í Jerúsalem.29Í Gíbeon bjuggu: Jegúel, faðir að Gíbeon, og kona hans hét Maaka.30Frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Súr, Kís, Baal, Ner, Nadab,31Gedór, Ahjó og Seker.32En Míklót gat Símea. Einnig þeir bjuggu andspænis bræðrum sínum, hjá bræðrum sínum í Jerúsalem.33Ner gat Kís, og Kís gat Sál, og Sál gat Jónatan, Malkísúa, Abínadab og Esbaal.34Og sonur Jónatans var Meríbaal, og Meríbaal gat Míka,35og synir Míka voru: Píton, Melek, Tarea og Akas.36En Akas gat Jóadda, Jóadda gat Alemet, Asmavet og Simrí. Simrí gat Mósa,37Mósa gat Bínea, hans son var Rafa, hans son Eleasa, hans son Asel.38En Asel átti sex sonu. Þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía og Hanan. Allir þessir voru synir Asels.39Synir Eseks bróður hans voru: Úlam, frumgetningurinn, annar Jeús, þriðji Elífelet.40Og synir Úlams voru kappar miklir, bogmenn góðir og áttu marga sonu og sonasonu, hundrað og fimmtíu alls. Allir þessir heyra til Benjamínssona.
8.29-32 1Kro 9.35-38
8.33-40 sbr 1Kro 9.39-44