1Að því er snertir hliðvarðaflokkana, þá voru þar af Kóraítum: Meselemja Kóreson af Asafsniðjum.2En synir Meselemja voru: Sakaría, frumgetningurinn, annar Jedíael, þriðji Sebadja, fjórði Jatníel,3fimmti Elam, sjötti Jóhanan, sjöundi Elíóenaí.4Synir Óbeð Edóms voru: Semaja, frumgetningurinn, annar Jósabad, þriðji Jóa, fjórði Sakar, fimmti Netaneel,5sjötti Ammíel, sjöundi Íssakar, áttundi Pegúlletaí, því að Guð hafði blessað hann.6En Semaja, syni hans, fæddust og synir, er réðu í ættum sínum, því að þeir voru hinir röskustu menn.7Synir Semaja voru: Otní, Refael, Óbeð og Elsabat. Bræður þeirra voru Elíhú og Semakja, dugandi menn.8Allir þessir voru af niðjum Óbeð Edóms, þeir og synir þeirra og bræður, dugandi menn, vel hæfir til þjónustunnar, sextíu og tveir alls frá Óbeð Edóm.9Meselemja átti og sonu og bræður, dugandi menn, átján alls.10„Synir Hósa, er var af Meraríniðjum, voru: Simrí höfðingi; þótt eigi væri hann frumgetningurinn, þá gjörði faðir hans hann að höfðingja;“11annar Hilkía, þriðji Tebalja, fjórði Sakaría. Synir og bræður Hósa voru þrettán alls.12Þessum hliðvarðaflokkum eftir ætthöfðingjum hlotnaðist starf við þjónustuna í húsi Drottins, þeim sem frændum þeirra.13Og menn vörpuðu hlutkesti um hvert hlið fyrir sig, eftir ættum, yngri sem eldri.14Fyrir hliðið gegnt austri féll hluturinn á Selemja. Menn vörpuðu og hlutkesti fyrir Sakaría son hans, hygginn ráðgjafa, og féll hans hlutur á hliðið gegnt norðri,15fyrir Óbeð Edóm gegnt suðri, og fyrir son hans á geymsluhúsið,16fyrir Súppím og Hósa gegnt vestri við Sallekethliðið, við götuna, sem liggur upp eftir, hver varðstöðin við aðra.17Við hliðið gegnt austri voru sex levítar, gegnt norðri fjórir dag hvern, gegnt suðri fjórir dag hvern, og við geymsluhúsið tveir og tveir.18Við Parbar gegnt vestri: fjórir fyrir götuna, tveir fyrir Parbar.19Þessir eru hliðvarðaflokkarnir af Kóraítaniðjum og af Meraríniðjum.20Levítar frændur þeirra höfðu umsjón með fjársjóðum Guðs húss og með helgigjafafjársjóðunum.21Niðjar Laedans, niðjar Gersoníta, Laedans, ætthöfðingjar Laedansættar Gersoníta, Jehíelítar,22niðjar Jehíelíta, Setam og Jóel bróðir hans höfðu umsjón með fjársjóðum í húsi Drottins.23Að því er snertir Amramíta, Jíseharíta, Hebroníta og Ússíelíta,24þá var Sebúel Gersómsson, Mósesonar, yfirumsjónarmaður yfir fjársjóðunum.25Og að því er snertir frændur þeirra frá Elíeser, þá var Rehabja sonur hans, hans son Jesaja, hans son Jóram, hans son Sikrí, hans son Selómít.26Höfðu þeir Selómít þessi og bræður hans umsjón með öllum helgigjafafjársjóðunum, þeim er Davíð konungur og ætthöfðingjarnir, þúsundhöfðingjarnir og hundraðshöfðingjarnir og herforingjarnir höfðu helgað27úr ófriði og af herfangi höfðu þeir helgað það til þess að endurbæta með musteri Drottins,28og allt, er Samúel sjáandi, Sál Kísson, Abner Nersson og Jóab Serújuson höfðu helgað, allt hið helgaða, var undir umsjón Selómíts og bræðra hans.29Af Jíseharítum höfðu þeir Kenanja og synir hans á hendi hin veraldlegu störf í Ísrael, sem embættismenn og dómarar.30Af Hebronítum höfðu þeir Hasabja og frændur hans, dugandi menn, seytján hundruð alls, á hendi stjórnarstörf Ísraels hérna megin Jórdanar, að vestanverðu. Stóðu þeir fyrir öllum störfum Drottins og þjónustu konungs.31Til Hebroníta taldist Jería, höfðingi Hebroníta eftir kyni þeirra og ættum voru þeir kannaðir á fertugasta ríkisári Davíðs, og fundust meðal þeirra hinir röskustu menn í Jaser í Gíleað32og frændur hans, röskir menn, tvö þúsund og sjö hundruð ætthöfðingjar alls. Setti Davíð konungur þá yfir Rúbensniðja, Gaðsniðja og hálfa kynkvísl Manasseniðja, að því er snertir öll erindi Guðs og erindi konungsins.
Fyrri kroníkubók 26. kafliHið íslenska biblíufélag2021-06-06T10:57:09+00:00
Fyrri kroníkubók 26. kafli
26.4-5 Guð blessaði hann 1Kro 13.14; 2Sam 6.11
Hægt er að nálgast texta þessa kafla í öðrum íslenskum þýðingum með því að smella á nafn þýðingarinnar hér fyrir neðan. Þýðingin opnast í nýjum glugga.