1Á fjögur hundruð og áttugasta ári frá því, er Ísraelsmenn fóru af Egyptalandi, fjórða árið, sem Salómon ríkti yfir Ísrael, í sívmánuði það er öðrum mánuðinum reisti hann Drottni musterið.2Musterið, sem Salómon konungur reisti Drottni, var sextíu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð.3Forsalurinn fyrir framan musterishúsið var tuttugu álnir á breidd fram með musterisendanum og tíu álnir á dýpt fram af musterinu.4Hann gjörði glugga á musterið með föstum grindum fyrir.5Og upp að musterisveggnum hringinn í kring reisti hann þriggja hæða hliðarhús upp að musterisveggjunum, hringinn í kringum aðalhúsið og innhúsið og gjörði stúkur allt í kring.6Fyrsta hæð þessa hliðarhúss var fimm álnir á breidd, miðhæðin sex álnir á breidd, og efsta hæðin sjö álnir á breidd, því að hann hafði sett stalla utan á musterið hringinn í kring, til þess að bitarnir skyldu ekki ganga inn í musterisveggina.7Þegar musterið var reist var byggt úr steinum, sem höfðu verið höggnir til, er grjótið var tekið, svo að hvorki heyrðist hamarshljóð né axar, né nokkurs annars járntóls, meðan á byggingu musterisins stóð.8Dyrnar á fyrstu hæð hliðarhússins voru á suðurhlið musterisins, og var gengið upp um hringstiga upp á miðhæðina og þaðan upp á efstu hæð.9Þannig reisti hann musterið og lauk við það og þakti musterið með bjálkum og þiljum úr sedrusviði.10Hann reisti hliðarhús utan um allt musterið, fimm álnir á hæð hver hæð, og tengdi þau við musterið með sedrusviði.11Þá kom orð Drottins til Salómons svolátandi:12Þú hefir byggt þetta hús. Ef þú gengur eftir boðorðum mínum og breytir eftir lögum mínum og varðveitir allar skipanir mínar með því að ganga eftir þeim, þá mun ég efna heit mitt við þig, er ég gaf Davíð föður þínum,13og ég mun búa meðal Ísraelsmanna og eigi yfirgefa lýð minn Ísrael.14Þannig byggði Salómon musterið og lauk við það.15Salómon þiljaði musterisveggina að innan með sedrusviði. Frá gólfi hússins upp að loftbjálkum þiljaði hann það að innan með viði og lagði gólf í húsið úr kýpresviðarborðum.16Og hann þiljaði tuttugu álnir aftan af húsinu neðan frá gólfi og upp undir bjálka með sedrusviði. Gjörði hann þannig úr því að innan innhús, það er Hið allrahelgasta.17Húsið var fjörutíu álnir, það er aðalhúsið fyrir framan innhúsið.18Innan á musterinu var sedrusviður, útskorinn með hnöppum og blómstrum. Var það allt af sedrusviði, og sá hvergi í stein.19Hann bjó út innhús, Hið allrahelgasta, inni í musterinu, til þess að þangað mætti flytja sáttmálsörk Drottins.20Og fyrir framan innhúsið en það var tuttugu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og tuttugu álnir á hæð, og hann lagði það skíru gulli gjörði hann altari af sedrusviði.21Salómon lagði musterið með skíru gulli að innan, og dró gullfestar fyrir kórinn og lagði hann gulli.22Og allt húsið lagði hann gulli algjörlega allt húsið. Einnig lagði hann gulli allt altarið, sem tilheyrði innhúsinu.23Hann gjörði í innhúsinu tvo kerúba af olíuviði, tíu álna háa.24Hvor vængur annars kerúbsins var fimm álnir, og hvor vængur hins kerúbsins fimm álnir, svo að tíu álnir voru frá enda annars vængsins til enda hins vængsins.25Báðir kerúbarnir voru tíu álnir, báðir voru þeir jafnstórir og eins að gerð.26Annar kerúbinn var tíu álnir á hæð, svo og hinn kerúbinn.27Og hann setti kerúbana upp inni í Hinu allrahelgasta, og breiddu þeir út vængina, svo að annar vængur annars nam við vegginn og hinn vængur hins kerúbsins nam við hinn vegginn, en í miðju húsinu námu vængir þeirra hvor við annan.28Og hann lagði kerúbana gulli.29Hann lét skera út á veggina hringinn í kring kerúba, pálma og blómfléttur, inni og fyrir utan.30Gólf hússins lagði hann og gulli, inni og fyrir utan.31Fyrir dyr innhússins lét hann gjöra vængjahurð úr olíuviði. Umgjörðin yfir dyrunum og dyrastafirnir mynduðu fimmhyrning.32Á báðar vængjahurðirnar, sem voru úr olíuviði, lét hann skera kerúba, pálma og blómfléttur og leggja gulli, en kerúbana og pálmana lagði hann slegnu gulli.33Og fyrir dyr aðalhússins lét hann sömuleiðis gjöra ferstrenda dyrastafi af olíuviði34og tvær vængjahurðir af kýpresviði. Var hvor vængurinn um sig gjörður af tveimur hlerum, er léku á hjörum.35Og hann lét skera kerúba, pálma og blómfléttur á þá og lagði það gulli, sem út var skorið.36Hann gjörði vegginn um innri forgarðinn úr þrem lögum af höggnum steini og einu lagi af sedrusbjálkum.37Á fjórða ári var grundvöllurinn lagður að húsi Drottins, í sívmánuði.38Og á ellefta ári, í búlmánuði það er áttunda mánuðinum var húsið fullgjört í öllum greinum, með öllu sem því tilheyrði. Í sjö ár var hann að byggja það.
6.2 Lýsing á musterinu sbr 2Mós 26; Esk 40-42
6.13 Búa meðal 3Mós 15.31
6.19 Hið allrahelgasta 2Mós 26.33-34
6.22 Altari lagt gulli 2Mós 30.1-3
6.23 Kerúbar 2Mós 25.18-22+
6.29 Útskornir kerúbar Esk 41.18; sbr 2Mós 26.31
6.36 Forgarður 2Mós 27.9-19; Esk 42.15-20