1Lýðurinn tók að mögla hátt gegn Drottni yfir böli sínu. Og er Drottinn heyrði það, upptendraðist reiði hans. Kviknaði þá eldur frá Drottni meðal þeirra og eyddi ysta hluta herbúðanna.2Þá kveinaði lýðurinn fyrir Móse, og Móse bað til Drottins. Tók þá eldurinn að slokkna.3Var staður þessi kallaður Tabera, því að eldur Drottins kviknaði meðal þeirra.4Útlendur lýður, sem með þeim var, fylltist lysting. Tóku Ísraelsmenn þá einnig að kveina og sögðu: Hver gefur oss nú kjöt að eta?5Víst munum vér eftir fiskinum, sem vér átum á Egyptalandi fyrir ekki neitt, eftir agúrkunum, melónunum, graslauknum, blómlauknum og hnapplauknum.6En nú örmagnast sála vor. Hér er alls ekki neitt, vér sjáum ekkert nema þetta manna.7Manna var eins og kóríanderfræ og að útliti sem bedolakharpeis.8Fólkið fór á víð og dreif og tíndi, og þeir möluðu það í handkvörnum eða steyttu það í mortéli, suðu því næst í pottum og gjörðu úr því kökur, en það var á bragðið eins og olíukökur.9Og þegar dögg féll á nóttum yfir herbúðirnar, þá féll og manna yfir þær.10Móse heyrði fólkið gráta, hvern með sitt skuldalið fyrir dyrum tjalds síns. Upptendraðist þá reiði Drottins ákaflega, og féll Móse það illa.11Móse sagði við Drottin: Hví gjörir þú svo illa við þjón þinn, og hví hefi ég eigi fundið náð í augum þínum, að þú skulir leggja á mig byrði alls þessa fólks?12Hefi ég gengið þungaður að öllu þessu fólki? Hefi ég borið það í heiminn, að þú skulir segja við mig: Ber það í faðmi þér, eins og barnfóstri ber brjóstmylking, inn í landið, sem þú sórst feðrum þeirra?13Hvaðan á ég að fá kjöt til að gefa öllu þessu fólki? Því að þeir gráta fyrir mér og segja: Gef oss kjöt að eta!14Ég rís ekki einn undir öllu þessu fólki, því að það er mér of þungt.15Og ef þú ætlar að fara svona með mig, þá deyð mig heldur hreinlega, ef ég hefi fundið náð í augum þínum, svo að ég þurfi eigi að horfa upp á ógæfu mína.16Þá sagði Drottinn við Móse: Safna þú mér sjötíu mönnum af öldungum Ísraels, sem þú veist að eru öldungar meðal fólksins og tilsjónarmenn þess, og skalt þú fara með þá að samfundatjaldinu, svo að þeir skipi sér þar ásamt þér.17Og ég vil stíga niður og tala þar við þig, og ég vil taka af anda þeim, sem yfir þér er, og leggja yfir þá, svo að þeir beri með þér byrði fólksins og þú berir hana ekki einn.18Og til fólksins skalt þú mæla: Helgið yður til morguns. Þá skuluð þér fá kjöt að eta. Því að þér hafið kveinað í eyru Drottins og sagt: Hver gefur oss kjöt að eta? því að vel leið oss í Egyptalandi. Og Drottinn mun gefa yður kjöt að eta.19Þér skuluð ekki eta það einn dag, og ekki tvo daga, og ekki fimm daga, og ekki tíu daga, og ekki tuttugu daga,20heldur heilan mánuð, þangað til það gengur út af nösum yðar og yður býður við því, af því að þér hafið hafnað Drottni, sem meðal yðar er, og kveinað fyrir augliti hans og sagt: Hví fórum vér burt úr Egyptalandi?21Þá sagði Móse: Fólkið, sem ég er með, er sex hundruð þúsund fótgangandi manna, og þú segir: Ég vil gefa þeim kjöt að eta í heilan mánuð.22Á þá að slátra sauðum og nautum handa þeim, svo að þeim nægi? Eða á að safna saman öllum fiskum í sjónum handa þeim, svo að þeim nægi?23Drottinn sagði við Móse: Er þá hönd Drottins stutt orðin? Nú skalt þú sjá, hvort orð mín koma fram við þig eða ekki.24Móse gekk burt og bar fólkinu orð Drottins og safnaði saman sjötíu manns af öldungum fólksins og lét þá skipa sér umhverfis tjaldið.25Og Drottinn sté niður í skýinu og talaði við hann, og hann tók af anda þeim, sem yfir honum var, og lagði hann yfir öldungana sjötíu. Og er andinn kom yfir þá, spáðu þeir, og aldrei síðan.26Tveir menn höfðu orðið eftir í herbúðunum. Hét annar Eldad, en hinn Medad, og andinn kom yfir þá voru þeir meðal hinna skráðu, en höfðu ekki gengið út að tjaldinu, og þeir spáðu í herbúðunum.27Þá kom ungmenni hlaupandi og sagði Móse og mælti: Eldad og Medad eru að spá í herbúðunum!28Jósúa Núnsson, er þjónað hafði Móse frá æsku, svaraði og sagði: Móse, herra minn, bannaðu þeim það!29En Móse sagði við hann: Tekur þú upp þykkjuna fyrir mig? Ég vildi að allur lýður Drottins væri spámenn, svo að Drottinn legði anda sinn yfir þá.30Og Móse gekk aftur í herbúðirnar, hann og öldungar Ísraels.31Þá tók að blása vindur frá Drottni, og flutti hann lynghæns frá sjónum og varp þeim yfir herbúðirnar, svo sem dagleið í allar áttir, hringinn í kringum herbúðirnar, og um tvær álnir frá jörðu.32Og fólkið fór til allan þann dag og alla nóttina og allan daginn eftir og safnaði lynghænsum. Sá sem minnstu safnaði, safnaði tíu kómer. Og þeir breiddu þau allt í kringum herbúðirnar.33Meðan kjötið var enn milli tanna þeirra, áður en það var upp unnið, upptendraðist reiði Drottins gegn fólkinu, og Drottinn lét þar verða mjög mikinn mannfelli meðal fólksins.34Og staður þessi var nefndur Kibrót-hattava, því að þar grófu þeir fólkið, er fyllst hafði græðgi.35Frá Kibrót-hattava hélt lýðurinn til Haserót, og þeir staðnæmdust í Haserót.
11.4 Flokkarnir 2Mós 12.38
11.6 Manna 2Mós 16.13-15
11.14 Of þungt 2Mós 18.18; 1Kon 3.9
11.16 Sjötíu öldungar 2Mós 18.21-26; 5Mós 1.9-18
11.17 Andanum úthellt Jes 44.3; Esk 39.29; Jl 3.1-2; Post 2.17-18; Gal 4.6
11.22 Svo að nægi? 2Kon 4.43; Matt 14.17 og hlst.; 15.33 og hlst.
11.31 Lynghænsn 2Mós 16.12-13