1Þér eruð börn Drottins, Guðs yðar. Þér skuluð eigi rista skinnsprettur á yður né raka yður krúnu eftir framliðinn mann.2Því að þú ert Drottni Guði þínum helgaður lýður, og þig hefir Drottinn kjörið til að vera eignarlýður hans umfram allar þjóðir, sem á jörðinni eru.3Þú skalt ekki eta neitt viðbjóðslegt.4Þessi eru þau ferfætt dýr, sem þér megið eta: naut, sauðfé og geitfé,5hirtir, skógargeitur, dáhirtir, steingeitur, fjallageitur, antílópur og gemsur.6Öll ferfætt dýr, sem hafa klaufir, og þær alklofnar, og jórtra, megið þér eta.7„Af þeim sem jórtra, og af þeim sem alklofnar klaufir hafa, megið þér þó ekki þessi eta: Úlfaldann, hérann og stökkhérann, því að þeir jórtra að sönnu, en hafa eigi klaufir; þeir séu yður óhreinir,“8„og svínið, því að það hefir að sönnu klaufir, en jórtrar ekki; það sé yður óhreint. Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta, og hræ þeirra skuluð þér ekki snerta.“9Af lagardýrunum megið þér eta þessi: Öll þau, sem hafa sundugga og hreistur, megið þér eta,10„en öll þau, sem ekki hafa sundugga og hreistur, megið þér ekki eta; þau séu yður óhrein.“11Alla hreina fugla megið þér eta,12en þessa megið þér ekki eta: örninn, skegggamminn og gamminn,13gleðuna og fálkakynið,14allt hrafnakynið,15strútinn, svöluna, mávinn og haukakynið,16ugluna, náttugluna og hornugluna,17pelíkanann, hrægamminn og súluna,18storkinn og lóukynið, herfuglinn og leðurblökuna.19„Öll fleyg skriðkvikindi séu yður óhrein; þau má eigi eta.“20Öll hrein flugdýr megið þér eta.21Þér skuluð ekki eta neitt sjálfdautt. Útlendum manni, sem er innan borgarhliða þinna, mátt þú gefa það til að eta, eða selja það aðkomnum manni, því að þú ert Drottni Guði þínum helgaður lýður. Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður þinnar.22Þú skalt tíunda vandlega allan ávöxt af útsæði þínu, allt það er vex á mörkinni, á ári hverju,23og þú skalt eta frammi fyrir Drottni Guði þínum á þeim stað, sem hann velur til þess að láta nafn sitt búa þar, tíundina af korni þínu, aldinlegi þínum og olíu þinni og frumburði nautgripa þinna og sauðfénaðar, svo að þú lærir að óttast Drottin Guð þinn alla daga.24Og sé vegurinn of langur fyrir þig og getir þú eigi borið það, af því að staðurinn, sem Drottinn Guð þinn velur til þess að láta nafn sitt búa þar, er langt í burtu frá þér, þegar Drottinn Guð þinn hefir blessað þig,25þá skalt þú koma því í peninga, taka silfrið með þér og geyma þess vel og fara til þess staðar, er Drottinn Guð þinn velur.26Og fyrir silfrið skalt þú kaupa hvað sem þig lystir, nautgripi, sauðfé, vín, áfengan drykk eða hvað annað, sem þig langar í, og þú skalt neyta þess þar frammi fyrir Drottni Guði þínum og gleðja þig ásamt fjölskyldu þinni.27Og levítana, sem eru innan borgarhliða þinna, skalt þú ekki setja hjá, því að þeir hafa ekki hlut né óðal með þér.28Þriðja hvert ár skalt þú færa út alla tíund af ávexti þínum það árið og leggja hana niður innan borgarhliða þinna,29svo að levítar, því að þeir hafa ekki hlut né óðal með þér, útlendingar, munaðarleysingjar og ekkjur þær, sem eru innan borgarhliða þinna, megi koma og eta sig mett, til þess að Drottinn Guð þinn blessi þig í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur að gjöra.

14.1 Ísrael barn Guðs 5Mós 1.31+ – skera hár eða skegg 3Mós 19.27+
14.2 Helguð þjóð, eignarlýður Guðs 5Mós 7.6+
14.4-20 Hrein dýr og óhrein 3Mós 11.1-16
14.21 Eta sjálfdautt 3Mós 17.15+ – helguð þjóð 5Mós 7.6+ – kið 2Mós 23.19; 34.26
14.22 Tíund 5Mós 26.12-15; 3Mós 27.30-33; 4Mós 18.21-32; Tób 1.6-8; Sír 35.11
14.23 Eta frammi fyrir Drottni 5Mós 12.7+ – óttast Drottin 5Mós 4.10+ – Guð velur 5Mós 12.5
14.26 Gleðja þig 5Mós 12.7+
14.27 Umhyggja fyrir levítum 5Mós 12.19; sbr 26.12
14.29 Ekkert land 4Mós 18.20+ – Levítar … 5Mós 10.8+ – að Guð blessi þig Sír 7.32