1Jefta Gíleaðíti var kappi mikill, en hann var skækjuson. Gíleað hafði getið Jefta,2og er kona Gíleaðs fæddi honum sonu og synir hennar uxu upp, þá ráku þeir Jefta burt og sögðu við hann: Eigi skalt þú taka arf í ætt vorri, því að þú ert sonur annarrar konu.3Þá flýði Jefta burt frá bræðrum sínum og settist að í landinu Tób. Þá söfnuðust til Jefta lausingjar og fylgdu þeir honum.4Nokkrum tíma eftir þetta hófu Ammónítar hernað á hendur Ísrael.5En er Ammónítar herjuðu á Ísrael, lögðu öldungarnir í Gíleað af stað til þess að sækja Jefta í landið Tób.6Og þeir sögðu við Jefta: Kom þú og ver þú fyrirliði vor, og munum vér berjast við Ammóníta.7Jefta sagði við öldungana í Gíleað: Hafið þér ekki lagt hatur á mig og rekið mig burt úr ætt minni? Hví komið þér þá nú til mín, þá er þér eruð í nauðum staddir?8Öldungarnir í Gíleað sögðu við Jefta: Fyrir því erum vér nú aftur komnir til þín, og ef þú fer með oss og berst við Ammóníta, þá skalt þú vera höfðingi vor, allra þeirra er búa í Gíleað.9Þá sagði Jefta við öldungana í Gíleað: Ef þér sækið mig til þess að berjast við Ammóníta, og Drottinn gefur þá á mitt vald, þá vil ég vera höfðingi yfir yður!10Þá sögðu öldungarnir í Gíleað við Jefta: Drottinn veri heyrnarvottur að tali voru og hegni oss, ef vér gjörum eigi það, sem þú hefir mælt.11Og Jefta fór með öldungunum í Gíleað, og lýðurinn tók hann til höfðingja yfir sig og fyrirliða. Og Jefta talaði öll orð sín frammi fyrir Drottni í Mispa.12Þá gjörði Jefta sendimenn á fund konungs Ammóníta og lét segja honum: Hvað er þér á höndum við mig, er þú hefir farið í móti mér til þess að herja á land mitt?13Konungur Ammóníta svaraði sendimönnum Jefta: Ísrael lagði undir sig land mitt, þá er hann fór af Egyptalandi, frá Arnon til Jabbok og að Jórdan. Skila þú því nú aftur með góðu!14Jefta gjörði enn menn á fund Ammónítakonungs15og lét segja honum: Svo segir Jefta: Ísrael lagði ekki undir sig Móabsland né land Ammóníta,16því að þegar þeir fóru af Egyptalandi og Ísrael hafði farið um eyðimörkina að Sefhafi og var kominn til Kades,17þá gjörði Ísrael menn á fund Edómkonungs og lét segja honum: Leyf mér að fara um land þitt! En Edómkonungur daufheyrðist við. Þá sendi hann og til Móabskonungs, en hann vildi ekki. Hélt Ísrael nú kyrru fyrir í Kades,18hélt síðan áfram um eyðimörkina og fór í bug kringum Edómland og Móabsland og kom austan að Móabslandi og setti búðir sínar hinumegin Arnon. En inn yfir landamæri Móabs komu þeir ekki, því að Arnon ræður landamærum Móabs.19Þá gjörði Ísrael sendimenn á fund Síhons Amorítakonungs, konungs í Hesbon, og Ísrael lét segja honum: Leyf oss að fara um land þitt, þangað sem ferðinni er heitið.20En Síhon treysti eigi Ísrael svo, að hann vildi leyfa honum að fara um land sitt, heldur safnaði Síhon öllu liði sínu, og settu þeir herbúðir sínar í Jahsa, og hann barðist við Ísrael.21En Drottinn, Ísraels Guð, gaf Síhon og allt hans lið í hendur Ísraels, svo að þeir unnu sigur á þeim, og lagði Ísrael undir sig allt land Amoríta, er byggðu það land.22Lögðu þeir þannig undir sig allt land Amoríta frá Arnon að Jabbok, og frá eyðimörkinni að Jórdan.23Drottinn, Guð Ísraels, hefir því stökkt Amorítum burt undan lýð sínum Ísrael, og nú ætlar þú að taka land hans til eignar?24Hvort tekur þú ekki til eignar það, sem Kamos, guð þinn, gefur þér til eignar? Svo tökum vér og til eignar land allra þeirra, sem Drottinn, Guð vor, stökkvir burt undan oss.25Og hvort munt þú nú vera nokkru betri en Balak Sippórsson, konungur í Móab? Átti hann í deilum við Ísrael eða fór hann með hernað á hendur þeim?26Þar sem Ísrael hefir búið í Hesbon og smáborgunum, er að liggja, og í Aróer og smáborgunum, er að liggja, og í öllum borgunum, sem liggja meðfram Arnon báðumegin, í þrjú hundruð ár, hvers vegna hafið þér þá ekki náð þeim aftur allan þennan tíma?27Ég hefi ekki gjört þér neitt mein, en þú beitir mig ranglæti, er þú herjar á mig. Drottinn, dómarinn, dæmi í dag milli Ísraelsmanna og Ammóníta!28En konungur Ammóníta sinnti ekki orðum Jefta, þeim er hann lét færa honum.29Þá kom andi Drottins yfir Jefta, og hann fór um Gíleað og Manasse og hann fór til Mispe í Gíleað, og frá Mispe í Gíleað fór hann í móti Ammónítum.30Og Jefta gjörði Drottni heit og sagði: Ef þú gefur Ammóníta í hendur mér,31þá skal sá, er fyrstur gengur út úr dyrum húss míns í móti mér, er ég sný aftur heilu og höldnu frá Ammónítum, heyra Drottni, og skal ég fórna honum að brennifórn.32Síðan fór Jefta í móti Ammónítum til þess að berjast við þá, og Drottinn gaf þá í hendur honum.33Hann vann mjög mikinn sigur á þeim frá Aróer alla leið til Minnít, tuttugu borgir, og til Abel-Keramím. Þannig urðu Ammónítar að lúta í lægra haldi fyrir Ísraelsmönnum.34En er Jefta kom heim til húss síns í Mispa, sjá, þá gekk dóttir hans út í móti honum með bumbum og dansi. Hún var einkabarnið hans. Hann átti engan son né dóttur nema hana.35Og er hann sá hana, reif hann klæði sín og sagði: Æ, dóttir mín, mjög beygir þú mig nú. Sjálf veldur þú mér nú sárustum trega. Ég hefi upp lokið munni mínum gagnvart Drottni, og ég get ekki tekið það aftur.36En hún sagði við hann: Faðir minn, ef þú hefir upp lokið munni þínum gagnvart Drottni, þá gjör þú við mig eins og fram gengið er af munni þínum, fyrst Drottinn hefir látið þig koma fram hefndum á óvinum þínum, Ammónítum.37Og enn sagði hún við föður sinn: Gjör þetta fyrir mig: Lát mig fá tveggja mánaða frest, svo að ég geti farið hér ofan í fjöllin og grátið það með stallsystrum mínum, að ég verð að deyja ung mær.38Hann sagði: Far þú! og lét hana burt fara í tvo mánuði. Fór hún þá burt með stallsystrum sínum og grét það á fjöllunum, að hún varð að deyja ung mær.39En að tveim mánuðum liðnum sneri hún aftur til föður síns, og hann gjörði við hana samkvæmt heiti því, er hann hafði unnið. En hún hafði aldrei karlmann kennt. Og varð það siður í Ísrael:40Ár frá ári fara Ísraels dætur að lofsyngja dóttur Jefta Gíleaðíta, fjóra daga á ári hverju.

11.1 Jefta Heb 11.32
11.2 Rekinn burt 1Mós 21.10
11.3 Lausamenn Dóm 9.4
11.4 Ammónítar Dóm 10.7
11.10 Vottur sbr 1Sam 12.5; Jer 29.23; 42.5; Mal 2.14; Róm 1.9; 2Kor 1.23; Fil 1.8; 1Þess 2.5,10; Opb 1.5; 3.14
11.11 Mispa 1Mós 31.49
11.12 Hvað áttu söksótt? 2Sam 16.10; 19.22; 1Kon 17.18; 2Kro 35.21; sbr Mrk 1.24; Jóh 2.4
11.13 Land Ammóníta 5Mós 2.17-23
11.16-17 Kades, Edómkonungur 4Mós 20.1,14-21
11.19-22 Síhon 4Mós 21.21-26; 5Mós 2.26-37
11.23 Amorítum stökkt burt 5Mós 4.38+
11.24 Kamos 4Mós 21.29
11.25 Balak 4Mós 22-24
11.26 Ísrael í Aróer Jós 13.25-26
11.27 Drottinn dæmi 1Mós 16.5; 1Sam 24.13,16
11.29 Andi Drottins Dóm 3.10+ – Mispe v.11
11.30 Heit 1Sam 14.24; sbr 3Mós 27.1-25
11.31 Maður sem brennifórn 2Kon 3.27; sbr 1Mós 22.1-19; Mík 6.7
11.34 Bumbur og sigurdans 2Mós 15.20; 1Sam 18.6; Júdt 16.1
11.35 Reif klæði sín Jós 7.6 – lokið upp munni 4Mós 30.3; Préd 5.3-5; sbr Job 35.16
11.39 Siður í Ísrael 2Kro 35.25