1Vei hinum andvaralausu á Síon og hinum öruggu á Samaríufjalli, aðalsmönnum hinnar ágætustu meðal þjóðanna, og þeim, er Ísraels hús streymir til.2Farið til Kalne og litist um, og haldið þaðan til Hamat hinnar miklu og farið ofan til Gat í Filisteu. Eruð þér betri en þessi konungsríki, eða er land yðar stærra en land þeirra?3Þeir ímynda sér, að hinn illi dagur sé hvergi nærri, og efla yfirdrottnun ranglætisins.4Þeir hvíla á legubekkjum af fílsbeini og liggja flatir á hvílbeðjum sínum. Þeir eta lömb af sauðahjörðinni og ungneyti úr alistíunni.5Þeir raula undir með hörpunni, setja saman ljóð eins og Davíð.6Þeir drekka vínið úr skálum og smyrja sig með úrvals-olíu en eyðing Jósefs rennur þeim ekki til rifja.7Fyrir því skulu þeir nú herleiddir verða í fararbroddi hinna herleiddu, og þá skal fagnaðaróp flatmagandi sælkeranna þagna.8Drottinn Guð hefir svarið við sjálfan sig, segir Drottinn, Guð allsherjar: Ég hefi viðbjóð á ofmetnaði Jakobs, ég hata hallir hans og framsel borgina og allt, sem í henni er.9Ef tíu menn eru eftir í einu húsi, skulu þeir deyja,10og ef frændi hans og líkbrennumaður tekur hann upp til þess að bera beinin út úr húsinu og segir við þann, sem er í innsta afkima hússins: Er nokkur eftir hjá þér? og hinn segir: Nei! þá mun hann segja: Þei, þei! Því að nafn Drottins má ekki nefna.11Því sjá, Drottinn býður að slá skuli stóru húsin, þar til er þau hrynja, og litlu húsin, þar til er þau rifna.12Hlaupa hestar yfir kletta, eða erja menn sjóinn með uxum, úr því þér umhverfið réttinum í eitur og ávöxtum réttlætisins í malurt?13Þér gleðjist yfir Lódebar, þér segið: Höfum vér ekki fyrir eigin rammleik unnið Karnaím?14Já, sjá, gegn yður, Ísraelsmenn, segir Drottinn, Guð allsherjar mun ég hefja þjóð, og hún skal kreppa að yður þaðan frá, er leið liggur til Hamat, allt að læknum á sléttlendinu.

6.1 Vei Jes 28.1-4; Lúk 6.24-26+
6.2 Kalne, Hamat Jes 10.9-10 – sjálfsánægja Lúk 18.11
6.4 Hvíla á legubekkjum … Am 3.12
6.6 Svall Am 2.8; 4.1; jes 5.11-12 – tilfinningaleysi sbr Hós 7.9; 11.3+
6.7 Reknir í útlegð Am 5.5,27+
6.8 Drottinn hefur svarið Am 4.2; 8.7; 1Mós 22.16; Jer 51.14; Slm 89.36; 110.4; Heb 6.13
6.9 Tíu eftir Am 5.3+
6.10 Þei, þei Am 5.13+ ; 8.3; Hab 2.20; Sef 1.7; Sak 2.17; Opb 8.1
6.11 Rúst Am 3.15; 9.1
6.12 Breyta réttinum Am 5.7+
6.13 Af eigin rammleik 5Mós 8.17; 9.4; 32.27; Jós 24.12; Dóm 7.2; Jes 10.13-15; sbr Hós 1.7+ ; Lúk 12.19; Ef 2.8-9
6.14 Assýringar sigra Ísrael 2Kon 17.5-6