1Eftir þetta sá ég annan engil stíga ofan af himni, og hafði hann mikið vald og jörðin ljómaði af dýrð hans.2Og hann hrópaði með sterkri röddu og sagði: Fallin er, fallin er Babýlon hin mikla og orðin að djöfla heimkynni og fangelsi alls konar óhreinna anda og fangelsi alls konar óhreinna og viðbjóðslegra fugla.3Því að hún hefur byrlað öllum þjóðum af reiði-víni saurlifnaðar síns, og konungar jarðarinnar drýgðu saurlifnað með henni og kaupmenn jarðarinnar auðguðust af gnóttum munaðar hennar.4Og ég heyrði aðra rödd af himni, sem sagði: Gangið út, mitt fólk, út úr henni, svo að þér eigið engan hlut í syndum hennar og hreppið ekki plágur hennar.5Því að syndir hennar hlóðust allt upp til himins og Guð minntist ranglætis hennar.6Gjaldið henni eins og hún hefur goldið og tvígjaldið henni eftir verkum hennar, byrlið henni tvöfalt í bikarinn, sem hún hefur byrlað.7Veitið henni eins mikla kvöl og sorg og hennar stærilæti og óhóf hefur verið. Hún segir í hjarta sínu: Hér sit ég og er drottning, ekkja er ég eigi, sorg mun ég aldrei sjá.8Fyrir því munu plágur hennar koma á einum degi: Dauði, sorg og hungur, og í eldi mun hún verða brennd, því að máttugur er Drottinn Guð, sem hana dæmdi.9Og konungar jarðarinnar, sem með henni drýgðu saurlifnað og lifðu í munaði, munu gráta og kveina yfir henni er þeir sjá reykinn af brennu hennar.10Af ótta fyrir kvöl hennar munu þeir standa langt frá og segja: Vei, vei, borgin mikla, Babýlon, borgin volduga, á einni stundu kom dómur þinn.11Og kaupmenn jarðarinnar gráta og harma yfir henni, því að enginn kaupir nú framar vörur þeirra,12farma af gulli og silfri, gimsteinum og perlum, dýru líni og purpura, silki og skarlati og alls konar ilmvið og alls konar muni af fílabeini og alls konar muni af hinum dýrasta viði og af eiri og járni og marmara,13og kanelbörk og balsam, ilmjurtir og smyrsl, reykelsi, vín og olíu og fínt mjöl, og hveiti og eyki og sauði og hesta og vagna og man og mannasálir.14Og ávöxturinn, sem sála þín girnist, hefur brugðist þér, öll sæld og glys þér horfið og enginn mun framar örmul af því finna.15Seljendur þessara hluta, sem auðgast hafa á henni, munu standa álengdar af ótta yfir kvöl hennar, grátandi og harmandi16og segja: Vei, vei, borgin mikla, sem klæddist dýru líni, purpura og skarlati og var gulli roðin og gimsteinum og perlum.17Á einni stundu eyddist allur þessi auður. Og allir skipstjórar, allir farmenn og hásetar og allir þeir, sem atvinnu reka á sjónum, stóðu álengdar18og hrópuðu, er þeir sáu reykinn af brennu hennar, og sögðu: Hvaða borg jafnast við borgina miklu?19Og þeir jusu mold yfir höfuð sér og hrópuðu grátandi og harmandi: Vei, vei, borgin mikla, sem allir þeir, er skip eiga á sjónum, auðguðust á vegna auðæfa hennar. Á einni stundu var hún í eyði lögð.20Fagna yfir henni, þú himinn og þér heilögu og þér postular og spámenn, því að Guð hefur rekið réttar yðar á henni.21Og einn sterkur engill tók upp stein, eins og mikinn kvarnarstein, og kastaði í hafið og sagði: Svo voveiflega mun Babýlon kollvarpast, borgin mikla, svo að engar menjar skulu eftir verða.22Og hörpusláttur og sönglist, pípuhljómur og lúðurþytur skal ekki framar heyrast í þér og engir iðnaðarmenn og iðnir skulu framar í þér finnast og kvarnarhljóð skal eigi framar í þér heyrast.23Lampaljós skal eigi framar í þér lýsa og raust brúðguma og brúðar skal eigi framar heyrast í þér. Kaupmenn þínir voru höfðingjar jarðarinnar, af því að allar þjóðir leiddust í villu af töfrum þínum.24Og í henni fannst blóð spámanna og heilagra og allra þeirra, sem hafa drepnir verið á jörðinni.
18.3 Lostavín saurlífis Opb 14.8+ – konungar jarðarinnar Opb 17.2
18.4 Forðið yður Jes 48.20; 52.11; Jer 50.8; 51.6-9,45; 2Kor 6.17
18.5 Allt til himins 1Mós 18.20-21; Jer 51.9
18.6 Komið fram við hana Slm 137.8; Jer 50.15,29; 2Þess 1.6
18.7 Stærilæti hennar Jes 47.7-9
18.8 Brennd Opb 17.16+
18.9 Konungar kveina Esk 26.16-17; 27.30-35
18.11 Kaupmenn Esk 27.36
18.12-13 Farmar Esk 27.12-24
18.16 Skart skækjunnar Opb 17.4+
18.17-19 Sjófarendur harma Esk 27.29-34
18.20 Fagna þú himinn Opb 12.12+
18.21 Steini kastað í hafið Jer 51.63-64 – engar menjar Esk 26.21
18.22 Sbr Jes 24.8; Esk 26.13
18.23 Sbr Jer 7.34; 25.10 – kaupmenn Jes 23.8
18.24 Blóð spámanna og heilagra Opb 16.6+