1Æ, hversu blakkt er gullið orðið, umbreyttur málmurinn dýri, æ, hversu var helgum steinum fleygt út á öllum strætamótum.2Síon-búar hinir dýrmætu, jafnvægir skíragulli, hversu voru þeir metnir jafnt og leirker, jafnt og smíð úr pottara höndum.3Jafnvel sjakalarnir bjóða júgrið og gefa hvolpum sínum að sjúga, en dóttir þjóðar minnar er orðin harðbrjósta, eins og strútsfuglarnir í eyðimörkinni.4Tunga brjóstmylkingsins loddi við góminn af þorsta, börnin báðu um brauð, en enginn miðlaði þeim neinu.5Þeir sem vanir hafa verið að eta krásir, örmagnast nú á strætunum, þeir sem bornir voru á purpura, faðma nú mykjuhauga.6Því að misgjörð dóttur þjóðar minnar var meiri en synd Sódómu, sem umturnað var svo að segja á augabragði, án þess að manna hendur kæmu þar nærri.7Höfðingjar hennar voru hreinni en mjöll, hvítari en mjólk, líkami þeirra rauðari en kórallar, ásýnd þeirra eins og safír.8Útlit þeirra er orðið blakkara en sót, þeir þekkjast ekki á strætunum. Skinnið á þeim er skorpið að beinum, það er þornað eins og tré.9Sælli voru þeir er féllu fyrir sverði heldur en þeir er féllu fyrir hungri, þeir er hnigu hungurmorða, af því að enginn var akurgróðinn.10Viðkvæmar konur suðu með eigin höndum börnin sín, þau voru þeim til næringar, þá er dóttir þjóðar minnar var eydd.11Drottinn tæmdi heift sína, úthellti sinni brennandi reiði og kveikti eld í Síon, er eyddi henni til grunna.12Konungar jarðarinnar hefðu ekki trúað því, né neinn af íbúum jarðríkis, að fjendur og óvinir mundu inn fara um hlið Jerúsalem.13Vegna synda spámanna hennar, misgjörða presta hennar, er úthelltu inni í henni blóði réttlátra,14reika þeir eins og blindir menn um strætin, ataðir blóði, svo að eigi mættu menn snerta klæði þeirra.15Víkið úr vegi! Óhreinn maður! kölluðu menn á undan þeim, víkið úr vegi, víkið úr vegi, snertið hann eigi! Þegar þeir skjögruðu, sögðu menn meðal heiðingjanna: Þeir skulu eigi dveljast hér lengur.16Reiðitillit Drottins hefir tvístrað þeim, hann lítur eigi framar við þeim. Hann virti prestana að vettugi og miskunnaði sig ekki yfir gamalmennin.17Hversu lengi störðu augu vor sig þreytt eftir hjálp sem ekki kom. Af sjónarhól vorum mændum vér eftir þjóð sem ekki hjálpar.18Menn röktu slóðir vorar, svo að vér gátum ekki gengið á götum vorum. Endalok vor nálguðust, dagar vorir fullnuðust, já, endalok vor komu.19Ofsækjendur vorir voru léttfærari en ernirnir í loftinu, þeir eltu oss yfir fjöllin, sátu um oss í eyðimörkinni.20Andi nasa vorra, Drottins smurði, varð fanginn í gryfjum þeirra hann sem vér sögðum um: Í skjóli hans skulum vér lifa meðal þjóðanna!21Fagna þú og ver glöð, dóttirin Edóm, þú sem býr í Ús-landi: Til þín mun og bikarinn koma, þú munt verða drukkin og bera blygðan þína!22Sekt þín er á enda, dóttirin Síon, hann mun eigi framar gjöra þig landræka. Hann vitjar misgjörðar þinnar, dóttirin Edóm, dregur skýluna af syndum þínum.
4.4 Þorsti Jes 41.17
4.5 Sorphaugar 1Sam 2.8; Slm 113.7; Neh 2.13
4.6 Sem Sódóma Jes 1.10; Jer 23.14; Esk 16.46-52; Matt 10.15; 11.23-24 – á augabragði 1Mós 19.23-25
4.7 Hreinir, helgaðir 4Mós 6.1-21
4.10 Suðu börnin sín Hlj 2.20+
4.11 Heift Drottins Hlj 1.12+
4.12 Hefðu ekki trúað Jes 52.15-53.1
4.13 Svik presta og spámanna Jer 5.31; 6.13
4.14 Ataðir blóði 4Mós 35.33; Jes 59.3
4.15 Óhreinn sbr 3Mós 13.45-46; Jes 52.11
4.16 Gamalmennin Hlj 5.12
4.17 Hjálpar ekki Esk 29.6-16
4.18 Endalok vor Esk 7.1-14
4.20 Í skjóli konungs sbr Hós 10.3
4.21 Fagna þú Jes 66.10 – Edóm Am 1.11+ – bikarinn Jer 25.15+ – drukkin og nakin Hab 2.15-16
4.22 Á enda Jes 40.2 – misgjörð Edóm Jl 3.19; Ób 11+ – hegning Jer 49.8; Esk 25.14