1Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir íklæðst hátign, Drottinn hefir skrýðst, hann hefir spennt sig belti styrkleika síns og fest jörðina, svo að hún haggast eigi.2Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú.3Straumarnir hófu upp, Drottinn, straumarnir hófu upp raust sína, straumarnir hófu upp dunur sínar.4Drottinn á hæðum er tignarlegri en gnýr mikilla, tignarlegra vatna, tignarlegri en boðar hafsins.5Vitnisburðir þínir eru harla áreiðanlegir, húsi þínu hæfir heilagleiki, ó Drottinn, um allar aldir.
93.1 Drottinn er konungur Slm 29.10; 47.9; 59.14; 96.10; 97.1; 99.1; 145.1; 146.10; 2Mós 15.18; 1Kro 16.31; Jes 24.23; 52.7; Opb 19.6; sbr Slm 9.8+ – skrýddur Slm 104.1+ – haggast ekki sbr Slm 125.1
93.2 Hásæti þitt Slm 47.9+ – frá eilífð ert þú Slm 90.2; Hab 1.12
93.4 Sterkari náttúruöflunum Slm 29.10; Job 38.8
93.5 Um allar aldir 1Kon 8.13
93.2 Hásæti þitt Slm 47.9+ – frá eilífð ert þú Slm 90.2; Hab 1.12
93.4 Sterkari náttúruöflunum Slm 29.10; Job 38.8
93.5 Um allar aldir 1Kon 8.13