1Aronsniðjar höfðu og flokkaskipun fyrir sig. Synir Arons voru: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.2En Nadab og Abíhú dóu á undan föður sínum og áttu eigi sonu, og urðu svo þeir Eleasar og Ítamar prestar.3Og þeir Davíð og Sadók af Eleasarsniðjum og Ahímelek af Ítamarsniðjum skiptu þeim niður í starfsflokka eftir embættum þeirra.4En það kom í ljós, að af Eleasarsniðjum voru fleiri höfðingjar en af Ítamarsniðjum. Fyrir því skiptu menn þeim svo, að af Eleasarsniðjum urðu sextán ætthöfðingjar, en átta af Ítamarsniðjum.5Og hvorum tveggja skiptu menn eftir hlutkesti, því að helgidómshöfðingjar og Guðs höfðingjar voru af niðjum Eleasars og af niðjum Ítamars.6Og Semaja Netaneelsson ritari, einn af levítum, skráði þá í viðurvist konungs og höfðingjanna og Sadóks prests og Ahímeleks Abjatarssonar og ætthöfðingja prestanna og levítanna. Var ein ætt tekin frá af Eleasar og ein af Ítamar.7Fyrsti hluturinn féll á Jójaríb, annar á Jedaja,8þriðji á Harím, fjórði á Seórím,9fimmti á Malkía, sjötti á Mijamín,10sjöundi á Hakkos, áttundi á Abía,11níundi á Jesúa, tíundi á Sekanja,12ellefti á Eljasíb, tólfti á Jakím,13þrettándi á Húppa, fjórtándi á Jesebeab,14fimmtándi á Bilga, sextándi á Immer,15seytjándi á Hesír, átjándi á Happísses,16nítjándi á Pelashja, tuttugasti á Jeheskel,17tuttugasti og fyrsti á Jakín, tuttugasti og annar á Gamúl,18tuttugasti og þriðji á Delaja, tuttugasti og fjórði á Maasja.19Er það starfskvöð þeirra að fara inn í musteri Drottins, eftir þeim reglum, er Aron forfaðir þeirra hafði sett, samkvæmt því, er Drottinn, Guð Ísraels, hafði boðið honum.20En að því er snertir aðra niðja Leví, þá voru af Amramsniðjum Súbael, af Súbaelsniðjum Jehdeja,21af Rehabja, af Rehabjaniðjum Jissía höfðingi,22af Jíseharítum Selómót, af Selómótsniðjum Jahat,23en af niðjum Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.24Niðjar Ússíels voru: Míka, af niðjum Míka var Samír.25Bróðir Míka var Jissía, af niðjum Jissía var Sakaría.26Niðjar Merarí voru Mahlí og Músí og niðjar Jaasía, sonar hans.27Niðjar Merarí frá Jaasía syni hans voru: Sóham, Sakkúr og Íbrí.28Frá Mahlí var Eleasar kominn. Hann átti eigi sonu.29Frá Kís: Synir Kís: Jerahmeel.30Niðjar Músí voru: Mahlí, Eder og Jerímót. Þessir voru niðjar levíta eftir ættum þeirra.31Þeir vörpuðu og hlutkesti, eins og frændur þeirra, Aronsniðjar, í viðurvist Davíðs konungs og Sadóks og Ahímeleks og ætthöfðingja prestanna og levítanna, ætthöfðingjarnir eins og yngri frændur þeirra.
24.19 Koma til húss Drottins Lúk 1.8-9