1„Þessir eru synir Davíðs, er hann eignaðist í Hebron: Ammon, frumgetningurinn, við Akínóam frá Jesreel; annar var Daníel, við Abígail frá Karmel;“2„hinn þriðji Absalon, sonur Maöku, dóttur Talmaí konungs í Gesúr; hinn fjórði Adónía, sonur Haggítar;“3„hinn fimmti Sefatja, við Abítal; hinn sjötti Jitream, við Eglu, konu sinni.“4Sex fæddust honum í Hebron. Þar ríkti hann sjö ár og sex mánuði, en í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú ár.5Og þessa eignaðist hann í Jerúsalem: Símea, Sóbab, Natan og Salómon fjóra alls við Batsúa Ammíelsdóttur,6enn fremur Jíbhar, Elísama, Elífelet,7Nóga, Nefeg, Jafía,8Elísama, Eljada, Elífelet níu alls.9Þetta eru allir synir Davíðs, að hjákvennasonum eigi meðtöldum. En systir þeirra var Tamar.10Sonur Salómons var Rehabeam, hans son var Abía, hans son Asa, hans son Jósafat,11hans son Jóram, hans son Ahasía, hans son Jóas,12hans son Amasía, hans son Asaría, hans son Jótam,13hans son Akas, hans son Hiskía, hans son Manasse,14hans son Amón, hans son Jósía.15Og synir Jósía voru: Jóhanan, frumgetningurinn, annar Jójakím, þriðji Sedekía, fjórði Sallúm.16„Og synir Jójakíms: Jekonja, sonur hans; hans son var Sedekía.“17Synir Jekonja, hins herleidda: Sealtíel, sonur hans,18Malkíram, Pedaja, Seneassar, Jekamja, Hósama og Nedabja.19Synir Pedaja voru: Serúbabel og Símeí, og synir Serúbabels: Mesúllam og Hananja. Systir þeirra var Selómít.20Og enn fremur Hasúba, Óhel, Berekía, Hasadja, Júsab Hesed fimm alls.21Synir Hananja voru: Pelatja og Jesaja, synir Refaja, synir Arnans, synir Óbadía, synir Sekanja.22Synir Sekanja voru: Semaja, og synir Semaja: Hattúa, Jígeal, Baría, Nearja og Safat sex alls.23Synir Nearja voru: Eljóenaí, Hiskía, Asríkam þrír alls.24En synir Eljóenaí voru: Hódavja, Eljasíb, Pelaja, Akkúb, Jóhanan, Delaja, Ananí sjö alls.
3.5-8 2Sam 5.14-16
3.9 2Sam 5.13; 13.1