1Næst kom upp hlutur Símeons, kynkvíslar Símeons sona eftir ættum þeirra, en arfleifð þeirra lá inni í arfleifð Júda sona miðri.2Þeir fengu að arfleifð: Beerseba og Seba, Mólada,3Hasar Súal, Bala, Esem,4Eltólað, Betúl, Horma,5Siklag, Bet Markabót, Hasar Súsa,6Bet Lebaót og Sarúhen, þrettán borgir og þorpin, er að liggja.7Aín, Rimmon, Eter og Asan, fjórar borgir og þorpin, er að liggja,8auk þess öll þau þorp, er lágu kringum borgir þessar allt til Baalat Beer, Rama suðurlandsins. Þetta var arfleifð kynkvíslar Símeons sona, eftir ættum þeirra.9Arfleifð Símeons sona var nokkur hluti af landshluta Júda sona, því að hluti Júda sona var of stór fyrir þá, og fyrir því fengu Símeons synir arfleifð í miðri arfleifð þeirra.10Þá kom upp þriðji hluturinn. Það var hlutur Sebúlons sona eftir ættum þeirra, og náðu landamerki arfleifðar þeirra allt til Saríd.11Og landamerki þeirra lágu í vestur upp til Marala, þaðan út til Dabbeset og lentu hjá læknum, sem rennur fyrir austan Jokneam.12Til austurs aftur á móti, gegnt upprás sólar, lágu þau frá Saríd til landamæra Kislót Tabors, þaðan til Daberat og þaðan upp til Jafía.13Þaðan lágu þau í austur, mót upprás sólar, yfir til Gat Hefer, til Et Kasín, síðan til Rimmon, sem nær allt til Nea.14Og landamerkin beygðu þar við, norður til Hannatón, og alla leið til Jifta-El-dals,15ásamt Katat, Nahalal, Simron, Jidala og Betlehem, tólf borgir og þorpin, er að liggja.16Þetta var arfleifð Sebúlons sona, eftir ættum þeirra: þessar borgir og þorpin, er að liggja.17Þá kom upp fjórði hluturinn. Það var hlutur Íssakars, Íssakars sona eftir ættum þeirra.18Og land þeirra tók yfir: Jesreel, Kesúllót, Súnem,19Hafaraím, Síón, Anaharat,20Rabbít, Kisjon, Ebes,21Remet, En-Ganním, En-Hadda og Bet Passes.22Og landamerkin náðu til Tabor, Sahasíma og Bet Semes, og alla leið til Jórdanar, sextán borgir og þorpin er að liggja.23Þetta var arfleifð kynkvíslar Íssakars sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin er að liggja.24Þá kom upp fimmti hluturinn. Það var hlutur kynkvíslar Assers sona, eftir ættum þeirra.25Og land þeirra tók yfir: Helkat, Halí, Beten, Aksaf,26Allammelek, Amead og Míseal, og þau náðu vestur að Karmel og Síhór Libnat.27Þaðan lágu þau í austur til Bet Dagón, og náðu að Sebúlon og Jifta-El-dal í norðri, Bet Emek og Negíel, og lágu norður til Kabúl,28Ebron, Rehób, Hammon og Kana, allt til hinnar miklu Sídon.29Þaðan beygðust landamerkin til Rama og allt til hinnar víggirtu borgar Týrus, og þaðan aftur til Hósa og þaðan alla leið til sjávar, frá því er Aksíbhéraði sleppir.30Auk þess Akkó, Afek og Rehób, tuttugu og tvær borgir og þorpin, er að liggja.31Þetta var arfleifð kynkvíslar Assers sona, eftir ættum þeirra, þessar borgir og þorpin, er að liggja.32Þá kom upp sjötti hluturinn. Það var hlutur Naftalí, Naftalí sona eftir ættum þeirra.33Og landamerki þeirra lágu frá Helef, frá eikunum hjá Saananním, Adamí Nekeb og Jabneel allt til Lakkúm og alla leið að Jórdan.34Þaðan gengu landamærin í vestur til Asnót Tabor, þaðan út til Húkkók, náðu til Sebúlons að sunnanverðu, til Assers að vestanverðu og til Júda við Jórdan gegnt upprás sólar.35Og víggirtar borgir voru þar: Siddím, Ser, Hammat, Rakkat, Kinneret,36Adama, Rama, Hasór,37Kedes, Edreí, En Hasór,38Jirón, Migdal, El, Horem, Bet Anat og Bet Semes nítján borgir og þorpin, er að liggja.39Þetta var arfleifð kynkvíslar Naftalí sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja.40Loks kom upp sjöundi hluturinn, og var það hlutur kynkvíslar Dans sona, eftir ættum þeirra.41Og landamerkin að arfleifð þeirra voru Sorea, Estaól, Ír-Semes,42Saalabbín, Ajalon, Jitla,43Elón, Timnat, Ekron,44Elteke, Gibbetón, Baalat,45Jehúd, Bene Berak, Gat Rimmon,46Me-Jarkón og Rakkon, ásamt landinu gegnt Jafó.47En land Dans sona gekk undan þeim. Þá fóru Dans synir og herjuðu á Lesem, unnu hana og tóku hana herskildi, slógu síðan eign sinni á hana og settust þar að og nefndu hana Dan eftir nafni Dans, föður þeirra.48Þetta var arfleifð kynkvíslar Dans sona eftir ættum þeirra, þessar borgir og þorpin, er að liggja.49Er Ísraelsmenn höfðu skipt landinu öllu til ystu ummerkja, gáfu þeir Jósúa Núnssyni óðal meðal sín.50Eftir boði Drottins gáfu þeir honum borg þá, er hann sjálfur kaus, en það var Timnat Sera í Efraímfjöllum. Hann byggði upp borgina og bjó þar síðan.51Þessar voru arfleifðirnar, er þeir Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu með hlutkesti í Síló frammi fyrir Drottni, við dyr samfundatjaldsins. Höfðu þeir nú lokið því að skipta landinu.
19.1 Símeon 1Mós 49.5; 1Kro 4.28-33
19.10 Sebúlon 1Mós 49.13; 5Mós 33.18-19
19.11 Jokneam Jós 12.22
19.17 Íssakar 1Mós 49.14-15; 5Mós 33.18-19
19.18 Jesreel Jós 17.16+ – Súnem 1Sam 28.4; 2Kon 4.8; sbr 1Kon 1.3
19.22 Tabor sbr Dóm 4.6; 8.18
19.24 Asser 1Mós 49.20; 5Mós 33.24
19.25 Aksaf Jós 11.1; 12.20
19.26 Karmel 1Kon 18.19; 2Kon 2.25; Jes 33.9; Jer 46.18
19.27 Kabúl 1Kon 9.13
19.30 Rehób 4Mós 13.21; Dóm 1.31
19.32 Naftalí 1Mós 49.21; 5Mós 33.23
19.35 Borgir Naftalís Jós 11.1,2,10; 12.3,19,22; 13.27; 21.32; Dóm 1.33
19.40 Dan 1Mós 49.16-17; 5Mós 33.22
19.41 Sorea, Estaól Jós 15.33; Dóm 13.25+
19.42-45 Landamerkjaborgir Dans Jós 10.12; Dóm 1.35; 1Kon 4.9; Jós 15.10-11; 1Kon 9.18
19.46 Joppa Jón 1.3; Esr 3.7; 2Kro 2.15; Post 9.36
19.47 Of þröngt… Dóm 18.1 – Lesem, Laís, Dan Dóm 18.7,27-29 – íbúum útrýmt Jós 6.21; 8.24; 10.28-39
19.49 Jósúa Núnsson Jós 1.1+
19.50 Timnat Sera Jós 24.30; Dóm 2.9
19.51 Eleasar prestur og Jósúa Jós 14.1+ – hlutkesti Jós18.6+